Skólavarðan - 01.12.2012, Page 15

Skólavarðan - 01.12.2012, Page 15
15 Skólavarðan 2. tbl. 2012kjaramál hann fari á vinnutíma. Barnshafandi konur eiga hins vegar rétt til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar án frádráttar á föstum launum, þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma. Þegar starfsmaður hefur verið óvinnufær vegna veikinda eða slysa samfellt í einn mánuð ber honum að skila svokölluðu starfshæfnisvottorði þegar hann hefur störf á ný. Starfsmaður má ekki hefja störf án þess að læknir votti að heilsa hans leyfi og heimilt er að krefjast vottorðs trúnaðarlæknis. Það er mjög mikilvægt að vinnuveitandi óski eftir starfshæfnisvottorði að loknum veikindum svo starfsmaður geti farið að ávinna sér veikindaréttinn að nýju. Óski vinnuveitandi ekki eftir því ber að líta svo að starfsmaður sé starfhæfur á ný. Veikindaréttur fellur niður við starfslok hvort heldur starfsmaður segir upp starfi eða honum er sagt upp störfum. Hafi starfsmanni borist uppsögn með venjulegum uppsagnarfresti en veikist eftir það greiðast laun ekki lengur en til loka ráðningartímans. Hafi veikindi hins vegar borið að áður en til uppsagnar kemur heldur starfsmaðurinn veikindarétti sínum þar til hann er vinnufær á ný eða veikindaréttur er tæmdur. Vinnuveitanda er þar af leiðandi ekki mögulegt að skerða veikindarétt starfsmanns með uppsögn úr starfi. Mikilvægt er að leita upplýsinga hjá KÍ ef starfsmaður íhugar Upplýsingar um veikindarétt má nálgast á vef KÍ og einnig má senda fyrirspurnir á netfangið ingibjorg@ki.is eða hringja síma 595 1111. uppsögn vegna veikinda svo réttindum sé ekki fyrirgert með ótímabærri uppsögn. Þegar starfsmaður segir starfi sínu lausu eða er leystur frá störfum vegna heilsubrests, varanlegrar óvinnufærni eða ef viðkomandi hefur tæmt veikindarétt og/eða haldið starfinu launalaust jafn lengi og veikindaréttur varði þá skulu honum greidd svokölluð lausnarlaun. Lausnarlaun eru þriggja mánaða laun sem greidd eru starfsmanni sem leystur er frá störfum enda votti læknir að hann sé varanlega óvinnufær. Þetta á við þegar starfsmaður hefur verið samfellt frá vinnu vegna veikinda eða slysa launalaust í jafnlangan tíma og þann tíma er hann átti rétt á að halda launum í veikindum. Mikilvægt er að nýta fyrst rétt til sjúkradagpeninga hjá Sjúkrasjóði KÍ áður en lausnarlaun greiðast, ef það á við, þar sem ráðning rofnar þegar lausnarlaun hafa verið greidd og viðkomandi er þar með ekki lengur félagsmaður í KÍ. Hægt er að sækja um sjúkradagpeninga hjá Sjúkrasjóði KÍ sem greiðir sjúkradagpeninga til félagsmanna sem eru í starfi en lenda tímabundið út af launaskrá eða verða fyrir skerðingu á launum vegna veikinda eða slysa. Nánari upplýsingar um veikindarétt má nálgast á vef KÍ og einnig má senda fyrirspurnir til mín í tölvupósti á netfangið ingibjorg@ki.is eða hringja hingað í síma 595 1111.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.