Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 27

Skólavarðan - 01.12.2012, Síða 27
27 Skólavarðan 2. tbl. 2012 Texti: Bjarni Benedikt Björnsson. Höfundur er íslenskukennari við MH og doktorsnemi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Styrkjandi samvinna Hugleiðing í kjölfar erindis Johns MacBeath í Háskóla Íslands 16. október 2012. Tilfinningar og skólasamfélagið MacBeath vakti mig til umhugsunar um gildi tilfinninga í skólastarfinu og hvernig skólasamfélagið hefur áhrif á alla, jafnt nemendur, kennara og annað starfsfólk. Hann minnti okkur á að allt nám hefst með tilfinningu, tengingu okkar við nýtt efnisatriði eða upplýsingar. Sú tilfinning getur verið þrungin spennu, eftirvæntingu eða jafnvel hræðslu við hið óþekkta. Það á jafnt við um nemandann sem lærir nýtt námsefni og kennarann sem fetar ótroðnar slóðir í kennslu sinni. Miklu skiptir að geta stutt við hvert annað og geta borið jafnt vandamál sem hugmyndir undir aðra. Samfélagið og samstarfið skiptir þar sköpum. Nemandinn í skólanum Staða nemandans innan skólasamfélagsins þarf að vera upp- byggjandi og jákvæð. Mjög forvitnilegt var að sjá svonefnda Toyota-nálgun yfirfærða á nám nemandans. Taldi MacBeath of mikla einstefnuhugsun ríkja um nám og þroska, og hún birtist í að þekking og færni ætti að stigmagnast frá einstökum nemanda til hins alþjóðlega samhengis. Minnti hann á að hluti af velgengi Toyota væri að hugsa ávallt í báðar áttir, og yfirfærsla þeirrar aðferðar sýndi okkur að það væri ekki síður mikilvægt að gera það alþjóðlega aðgengilegt nemandanum. Sem dæmi um þetta datt mér í hug hvernig Aðalnámskrá og lög um framhaldsskóla skilgreina hlutverk skólans í að stuðla að virkri þátttöku nemandans í lýðræðisþjóðfélagi. Þarna er kjörið tækifæri til að prófa Toyota-nálgunina og skoða til dæmis hvernig færa má lýðræðisþjóðfélagið inn í skólann, í stað þess að einblína á að við lok skólagöngunnar hafi nemandinn verið Hvernig get ég þróað mig og bætt kennsluna mína? Hvaða neikvæðu þætti þarf ég að yfirvinna svo mér líði betur í starfi? Þessar spurningar brenna eflaust á mörgum. Þær tengjast fagvitund kennarans og starfskenningu hans, eilífri leit að jafnvægi og ánægju í starfi. Erindi Johns MacBeath, prófessors í menntavísindum hjá Cambridge- háskóla, var vatn á myllu þeirra sem langar að þróa sig áfram í starfinu og leita nýrra leiða. Hann varpaði ljósi á gildi tilfinninganna, skólasamfélagið, stöðu nemandans og mikilvægi samvinnu í þróunarstarfi. Einnig minnti hann okkur á viðvarandi vandamál og neikvæðar hliðar sem vert væri að vinna bug á. Síðast en ekki síst ítrekaði hann að hver og einn þarf að finna sér sína leið, sinn farveg að fylgja, til þess að starfið veiti þá ánægju sem hver og einn á skilið. Bjarni Benedikt Björnsson. málþing

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.