Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 33
33
Skólavarðan 2. tbl. 2012
Veftímarit um tísku, heilsu, mat,
útlit og hönnun blómstra. Að
okkar mati er menntun barna
ekki síður mikilvæg og því teljum
við eðlilegt að veftímarit um
málefni skólastarfs verði öflugt.
Dæmi um efni af Krítinni af spaugsamari gerðinni
- þar til betur er að gáð.
Til kennarans – 10 góð ráð til að búa
til ERFIÐAN bekk
1. Takmarkaðu undirbúning þinn fyrir hverja
kennslustund, leiktu heldur af fingrum fram.
2. Forðastu hástemmda faglega ígrundun og
markmiðssetningar þegar þú undirbýrð þig. Það er
allt of tímafrekt og skiptir hvort sem er engu máli.
3. Sjáðu til þess að kennslan sé eingöngu munnleg
og notaðu ekki hagnýt dæmi og verkefni. Þú getur
jú ekki alltaf verið að draga allan heiminn inn í
kennslustofuna.
4. Þú skalt leitast við að segja eitt en gera annað, það
er ein af öruggustu aðferðunum.
5. Sjáðu til þess að nemendur haldi sig að verki en
forðastu þreytandi samræður.
6. Talaðu við allan bekkinn í einu og taktu ekki tillit
til einstaklinga, talaðu svo aðeins meira.
7. Notaðu ekki annað efni en hefðbundnar
námsbækur.
8. Segðu nemendunum að það séu arkitektarnir sem
ákveði í skólanum.
9. Þú ættir að forðast samskipti við svokallaða
sérfræðinga. Venjulega gera þeir þig ábyrga(n)
fyrir öllu.
10. Haltu samstarfi við foreldra í lágmarki – einkum
því sem fer fram utan skólatíma.
vefurinn
teljum áríðandi að fagleg umræða um þau mál sem brenna
á skólafólki hverju sinni eigi sér vettvang. Veftímarit um
tísku, heilsu, mat, útlit og hönnun blómstra. Að okkar mati
er menntun barna ekki síður mikilvæg en þessi atriði og því
teljum við eðlilegt að veftímarit um málefni skólastarfs verði
öflugt,“ segja þær Edda og Nanna.
Krítin talar einkum til grunnskólakennara, er vefurinn
eingöngu hugsaður fyrir grunnskóla? „Vefurinn talar að
mestu leyti til grunnskólakennara því þar liggur okkar
bakgrunnur. Við höfum báðar kennt í grunnskóla áratugum
saman. En okkur dreymir um að ná til kennara á fleiri
skólastigum.“
Kröftugri umræða
Skólavörðunni lék forvitni á að vita hvort eitthvað hefði
komið þeim á óvart þegar vefurinn var orðinn að veruleika
og þær farnar að fá viðbrögð.
„Við erum ánægðar með viðbrögðin, margir koma að máli
við okkur og hrósa framtakinu. Við viljum að sjálfsögðu
að útbreiðslan verði enn meiri og að viðbrögð við greinum
verði kröftugri. Síðast en ekki síst langar okkur til að fleira
skólafólk sendi okkur efni á Krítina. Við höfum til dæmis
leitast við að höfða til kennara á Menntavísindasviði og hvatt
þá til að benda nemendum í framhaldsnámi á Krítina sem
tímarit til að birta áhugvert efni frá kennaranemum. Einnig
höfum við sent beiðni í alla leik-, grunn- og framhaldskóla
um góðar ábendingar,“ segja þær Edda og Nanna bjartsýnar.
Íslensk
myndlist
fyrir heimili og fyrirtæki
Til leigu og sölu myndlist eftir íslenska listamenn.
Leigan er 1.000 – 10.000 kr. á mánuði. Listaverkin má
leigja þar til þau eru að fullu greidd eða ljúka greiðslu fyrr
og dregst þá frá áður greidd leiga.
Listaverkin eru til sýnis á staðnum og einnig eru
upplýsingar og myndir á www.artotek.is
Daði Guðbjörnsson: Í grænum fíling
Artótek
Tryggvagötu 15, sími 411 6100
artotek@borgarbokasafn.is
www.artotek.is
Artótek í Borgarbókasafni
Sigrid Valtingojer: Gjálfur