Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 34

Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 34
34 Skólavarðan 2. tbl. 2012 Texti: GG Heimili og skóli - landssamtök foreldra hafa rekið vakningarátak um örugga netnotkun á Íslandi síðan í október 2004. Verkefnið sem er styrkt af fyrrnefndri aðgerðaáætlun ESB hefur frá upphafi gengið undir nafninu samfélag, fjölskylda og tækni, skammstafað SAFT (www.saft.is). Markmið SAFT er að reka vakningar- átak um örugga og jákvæða notkun Netsins og annarra nýmiðla meðal barna og ungmenna, foreldra, kennara, fjölmiðla og þeirra sem starfa við upplýsingatækni. Viðfangsefni verkefnisins snýr að því að fræða og styðja börn, ungmenni og foreldra í að nýta netið og nýja miðla á jákvæðan og öruggan hátt. Í dag koma fjölmargir aðilar að SAFT- verkefninu með einum eða öðrum hætti, meðal annars með samráði um forgangsröðun verkefna. Þar má telja fulltrúa frá ráðuneytum, stofnunum, menntunar- og forvarnaraðilum, rannsóknaraðilum og aðilum atvinnulífsins. Öflugt starf er unnið á vegum SAFT í forvörnum og fræðslu. Kannanir sýna fram á góðan árangur verkefnisins á Íslandi og aukna vitundarvakningu um öryggi í netnotkun. Til marks um þetta voru nýlega þrjú verkefni á vegum SAFT á Íslandi valin meðal þeirra bestu í Evrópu á þessu sviði. Ungmennaráð SAFT hefur einnig vakið athygli fyrir vasklega framgöngu, meðal annars í jafningjafræðslu, og sem stendur tekur það þátt í þróun rafrænna skilríkja sem nýst gætu á samfélagssíðum á borð við Facebook. Ungmennaráðið tók einnig þátt í að stofna Nordic Youth IGF (Internet Governance Forum) með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins, en stofnfundur var samhliða þátttöku á EuroDIG fundi í Stokkhólmi í júní síðastliðnum. Á þennan hátt hefur SAFT- verkefnið átt frumkvæði að því að mynda samráðsvettvang um netið á Íslandi. Í núgildandi samningi sameinast þrjú verkefni hjá SAFT: Hjálparlína, ábendingarlína og vakningarátak. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur lagt sérstaka áherslu á þátt- töku í vakningarátaksverkefni og innanríkisráðuneytið hefur lagt áherslu á verkefni tengd hjálparlínu (meðal annars með áframhaldandi samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun) og verkefni tengd ábendingalínu (meðal annars með áframhaldandi samstarfi við ríkislögreglustjóra). Samningur við ESB vegna SAFT- verkefnisins tók gildi 2004 og hefur verið endurnýjaður á tveggja ára fresti, síðast í júní 2012. Núgildandi stuðningur ESB snýr að rekstri SAFT-verkefnisins á Íslandi til 2014 og er hluti af Netöryggisáætlun ESB. SAFT forvarnir Frá árinu 1999 hefur Evrópusambandið (ESB) rekið aðgerðaáætlun um örugga netnotkun sem kallast Safer Internet Action Plan sem nú nær til 30 landa Evrópu. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að öruggri notkun netsins og annarra nýmiðla meðal barna og ungmenna. Áætluninni er skipt í fjórar meginaðgerðir: • Verndun barna gegn ólöglegu og meiðandi efni á Netinu. • Aðgerðir gegn óæskilegu og meiðandi efni á Netinu. • Hvatning til öruggara netumhverfis. • Vakningarátak um jákvæða og örugga netnotkun.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.