Skólavarðan - 01.12.2012, Side 36

Skólavarðan - 01.12.2012, Side 36
36 Skólavarðan 2. tbl. 2012 leiðbeinendur, foreldra og fagfólk á leikskólaskrifstofu og einstaklingsviðtöl voru tekin við tvo stjórnmálamenn sem sátu í leikskólanefnd. Þátttakendur voru alls 29. Helstu niðurstöður Helstu niðurstöður eru þær að það koma fram átök á milli menntunarlegs hlutverks og efnahags- eða þjónustuhlutverks leikskóla þar sem leikskólakennarar leggja fyrst og fremst áherslu á menntunarlegt hlutverk sitt og leikskólans en stjórnmálamenn leggja ekki síður áherslu á þjónustu leikskóla við útivinnandi foreldra. Mjög lítið fór fyrir umræðu um það hlutverk leikskóla að stuðla að félagslegu réttlæti nema í tengslum við sérkennslu og átti það við um flesta rýnihópa svo og stjórnmálamenn. Leikskólakennarar upplifa þá þætti sem styðja við menntunarlega hlutverkið mjög jákvæða og þeir þættir stuðla jafnhliða að jákvæðri faglegri sjálfsmynd þeirra. Þar má nefna þátttöku í stefnumótun á vegum sveitarfélagsins og vinnu að þróunarverkefnum innan leikskólanna. Þættir sem tengjast þjónustuhlutverkinu, m.a. stórar barnmargar deildir, mikil stjórnunarleg skipulagning og langur daglegur dvalartími barna, hafa á hinn bóginn neikvæð áhrif á hlutverk þeirra, forystu og faglega sjálfsmynd. Foreldrar voru ánægðir með starf leikskólanna, fannst mjög mikilvægt að börnunum liði vel, öðluðust félagslega færni, horft væri til áhugasviðs hvers og eins og að þau kynntust viðfangsefnum sem þau hefðu ekki möguleika á að fást við heima. Einnig töldu þeir bæjarfélagið standa mjög vel að sérkennslumálum. Á hinn bóginn kölluðu þeir, að einum undanskildum, ekki sterklega eftir leikskólakennurum í almennu daglegu starfi og nefndu m.a. að þeir gætu tekið ábyrgð á skipulagningu starfsins, innlögn verkefna með starfsfólki og börnum en þess utan gætu stuðningsfulltrúar, líkt og í grunnskólum, verið með börnunum m.a. í matartímum, vettvangsferðum, úti í leik, setið með þeim þegar þau t.d klippa eða horft á þau í leik. Þegar upp væri staðið skipti persónan mestu máli og því væri mjög mikilvægt að standa vel að ráðningum. Leikskólakennarar í öllum stöðum innan sveitarfélagsins töldu sig hafa upplýst foreldra um menntunarhlutverk leikskólanna og leikskólakennarar á deildum töldu að það hefði leitt af sér jákvætt viðhorf og aukinn skilning foreldra á starfi þeirra. Það er þó ljóst að skilningur þeirra og foreldra er ekki sá sami þegar kemur að hugmyndafræði leikskólastarfsins því samkvæmt áherslum leikskólakennaranna er menntun ekki einvörðungu bundin formlegum stundum eða innlögn heldur á sér stað í öllu daglegu starfi. Foreldrar lýstu sig einnig reiðubúna til að rökræða m.a. kyngervi og jafnrétti í leikskólanum og gátu séð fyrir sér útvíkkað samfélagslegt hlutverk hans, að áhersla væri lögð á iðnir ekki síður en t.d. stærðfræði, og þeir væru tilbúnir til að leggja þar sitt af mörkum. Skoðanir þeirra voru því í töluverðu samræmi við hugmyndir lýðræðislegrar fagmennsku um þátttöku foreldra í leikskólastarfi. Stjórnmálamennirnir voru að hluta til sammála foreldrunum um hver ætti að sjá um menntun leikskólabarna. Þeim fannst leikskólakennarar vinna gott starf en það væri rými fyrir fleira fólk. Annar stjórnmálamaðurinn orðaði það svo: Við þurfum bara að hafa venjulegt fólk inni í skólunum líka …við þurfum að hafa fjölbreytnina. Það er t.d. ákaflega hollt og gott fyrir börn held ég, að það sé fólk sem að talar ekkert alveg hreina íslensku. Það er bara hinn fjölmenningarlegi þáttur …Mömmurnar með alla reynsluna og ömmurnar sem er bara alveg óskaplega mikilvægt að hafa líka …Ég segi þetta með mikilli virðingu fyrir leikskólakennurum …Það er pláss fyrir fagfólk í leikskólunum af því að leikskólakennarar verða aldrei nógu margir. Ég held að það sé styrkur en ekki veikleiki. Það er pláss fyrir þroskaþjálfana … það er pláss fyrir íþróttafræðinga … rannsóknir Mjög lítið fór fyrir umræðu um það hlutverk leikskóla að stuðla að félagslegu réttlæti nema í tengslum við sérkennslu og átti það við um flesta rýnihópa svo og stjórnmálamenn.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.