Skólavarðan - 01.12.2012, Side 37
37
Skólavarðan 2. tbl. 2012
Leikskólakennarar og deildarstjórar töluðu ekki um sig sem
faglega leiðtoga en horfðu fyrst og fremst til leikskólastjórans
hvað það hlutverk varðar. Bæði þeir og leiðbeinendur lýstu
forystunni á deildunum sem samvinnumiðaðri á meðan
aðrir stjórnendur leikskólans og hagsmunaaðilar lögðu
áherslu á forystu samkvæmt hefðbundnum valdapíramída.
Leikskólastjórar vildu styrkja til muna hlutverk deildarstjóra og
að þeir yrðu „þriðja hjólið undir vagninum“ og „sæju landslagið“
eins og þeir. Leikskólakennarar og deildarstjórar virðast á hinn
bóginn í „öðrum heimi“ þar sem þeir telja mikilvægt að fá
jákvæð viðbrögð frá börnum, samstarfsfólki og foreldrum og
leitast þannig við að varðveita jákvæða faglega sjálfsmynd sína.
Mikil togstreita kemur fram í skoðunum þeirra
hagsmunaaðila sem að leikskólanum koma á hlutverki
leikskóla og faglegu hlutverki leikskólakennara. Löggjafi nn
og sveitarfélagið virðast heldur ekki ganga í takt þar sem
áherslur löggjafans eru fyrst og fremst menntunarlegar á
meðan áherslur sveitarfélagsins á þjónustu við foreldra var
álitin mjög mikilvæg. Vandenbroeck o. fl . (2010) telja að sátt
á milli þessara hlutverka náist jafnvel aldrei. Mikilvægt er
þó að leikskólakennarar og hagsmunaaðilar er málið varðar
ræði þessi hlutverk leikskóla og reyni að ná samkomulagi um
áherslur. Greina má jafnframt stöðluð kynjuð viðhorf sumra
hagsmunaaðila til starfa leikskólakennara en jafnhliða má
draga fram að leikskólakennararnir sjálfi r töluðu ekki um
sig sem faglega leiðtoga og forystumenn gagnvart foreldrum
og stjórnmálamönnum. Merking (e. meaning) og þar með
fagleg sjálfsmynd mótast m.a. í samskiptum við mikilvæga
aðila, og áhrifi n eru gagnkvæm. Það er því mikilvæg
spurning hvaða áhrif leikskólakennarar vilja hafa á skilning
foreldra og stjórnmálamanna á sérfræðiþekkingu sinni og
menntunarhlutverki og hvaða leiðir þeir vilja fara til að ná þar
árangri. Veldur hver á heldur.
Heimildir:
Blumer, H. (1969). Symbolic interactionism: Perspective and method.
Harris, A. (2008). Distributed school leadership: Developing tomorrow’s leaders.
Langford, R. (2010). Critiquing child-centred pedagogy to bring children
and early childhood educators into the centre of a democratic pedagogy.
Contemporary Issues in Early Childhood, 11(1), 113–127.
Lunt, I. (2008). Ethical issues in professional life. In B. Cunningham (ed.),
Exploring professionalism (pp. 73–98).
Mead, G. H. (1934). Mind, self and society.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið [Ministry of Education, Culture
and Science]. (2011). Aðalnámskrá leikskóla [National Curriculum Guide for
Preschools].
Oberhuemer, P. (2005). Conceptualising the early childhood pedagogue:
Policy approaches and issues of professionalism. European Early Childhood
Education Journal, 13(1), 5–16.
Vandenbroeck, M., Coussée, F. and Bradt, L. (2010). The social and political
construction of early childhood education. British Journal of Educational
Studies, 58(2), 139–153.
Whitty, G. (2008). Changing modes of teacher professionalism: Traditional,
managerial, collaborative and democratic. In B. Cunningham (ed.), Exploring
professionalism (pp. 28–49).
Höfundur er lektor við Menntavísindasvið HÍ og varði
doktorsritgerð sína Professional roles, leadership and
identities of Icelandic preschool teachers: Perceptions of
stakeholders/ Faglegt hlutverk, forysta og sjálfsmynd
íslenskra leikskólakennara: Skilningur hagsmunaaðila
við Institute of Education, University í London síðastliðið
sumar. Hægt er að nálgast ritgerðina í Skemmunni. Slóðin er
skemman.is/item/view/1946/13199
rannsóknir
Öryggisbelti í öllum
bílum og yfir 800 sæti
með þriggja punkta
beltum.
Umhverfisvænar rútur
Árlegt öryggisnámskeið
fyrir bílstjóra
Vorferðir
Fræðsluferðir
Gönguferðir
Fjöruferðir
Sveitaheimsóknir
Heimsókn í Álfa-, trölla
og norðurljósasafnið
eða Draugasetrið
Bjóðum ódýra gistingu
fyrir hópa
Dæmi um skólaferð: létt fjallganga, Álfa-, trölla-
og norðurljósasafnið eða Draugasetrið og sund.
Guðmundur Tyrfingsson ehf
Sími 482 1210
gt@gtbus.is
www.gtyrfingsson.is
Félagsmenn munið
MÍNAR SÍðUR á www.ki.is
Eplið er á vefnum
Eplið, rafrænt fréttabréf KÍ, er á
vefnum. Lestu Eplið á www.ki.is