Skólavarðan - 01.12.2012, Page 38
38
Skólavarðan 2. tbl. 2012
Hér er seinni hluti greinar um álag í starfs-
umhverfi félagsmanna KÍ í framhaldsskólum
og breytingar á þessum álagsbreytum frá
2008 til 2012. Bæði starfsánægja og líðan
félagsmanna KÍ í framhaldsskólum hefur
versnað á milli samanburðartímabila.
Stóraukið starfsálag í
framhaldsskólum landsins!
rannsóknir
Seinni hluti
Guðrún Ragnarsdóttir.
Texti: Guðrún Ragnarsdóttir
Guðrún Ragnarsdóttir doktorsnemi á menntavísindasviði HÍ,
framhaldsskólakennari og lýðheilsufræðingur rannsakaði
líðan og starfsumhverfi félagsmanna Kennarasambands
Íslands (KÍ) í framhaldsskólum árin 2008, 2010 og 2012. Hér er
um einstæða samanburðarrannsókn að ræða meðal íslenskra
kennara og niðurstöðurnar vitna því miður með ótvíræðum
hætti um versnandi vinnuaðstæður og líðan milli ára.
Vinnudagur framhaldsskólakennara í 100% starfi hefur
lengst umtalsvert frá efnahagshruni og bóknámskennarar
vinna lengri vinnudag en aðrir kennarahópar. Frá 2008 vinna
framhaldsskólakennarar sífellt lengri vinnudag. Munur á
vinnuálagi er jafnframt mikill á milli kennarahópa. Rúmlega
sex af hverjum tíu bóknámskennurum finna fyrir ójöfnu
vinnuálagi og að verkefni hlaðist upp en einn af hverjum
þremur verknámskennurum.
Um sex af hverjum tíu félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum
finnur fyrir streitu í starfi. Streitan hefur aukist um sextán
prósentustig frá árinu 2010 og bóknámskennarar finna frekar en
aðrir kennarahópar fyrir henni. Um helmingi finnst starfið sitt
vera andlega erfitt og bóknámskennurum finnst kennarastarfið
andlega erfiðara en öðrum kennarahópum.
Áhugavert er að skoða þessa niðurstöðu í ljósi nemendafjölda í
námshópum. Tafla 7 sýnir viðmiðunartölur skóla um nemenda-
fjölda í námshópum samkvæmt mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu. Leiða má líkur að því að þessi munur á nemenda-
fjölda í námshópum eftir eðli námsgreina geri það að verkum
að álagsmunur er verulegur á milli kennarahópa hvað varðar
yfirferð verkefna, einstaklingsmiðaða þjónustu sem í boði er í
kennslustundum og starfsálag. Þegar rannsóknarniðurstöður
eru skoðaðar í ljósi þessa kemur í ljós að kennarahópar sem
kenna að jafnaði 25 nemendum eða fleiri finna fyrir meira álagi
í starfi en hinir, telja sig síður geta sinnt nemendum með
sérþarfir og beitt fjölbreyttu námsmati og kennsluháttum.
Tafla 7. Viðmiðunartölur mennta- og menningarmálaráðuneytisins um
nemendafjölda í námshópum eftir kennarahópum (auglýsing nr. 4/2001*
og reiknilíkan mrn.)
Kennarahópar
Nemendafjöldinn í dag samkv. auglýsingu
nr. 4/2001* og reiknilíkani mrn.
Starfsnámskennari
12 (+25%)
25 (+25%)
Listnámskennari
15 (+25%)
25 (+25%)
Verknámskennari 12 (+25%)
Bóknámskennari
22 (+25%) – raungreinar
25 (+25%) – aðrar bóklegar greinar