Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 46

Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 46
46 Skólavarðan 2. tbl. 2012 Ég var frekar fyrirferðamikið og orkumikið barn. Það hentaði mér engan veginn að sitja í 45 mínútur og stara á þurrar og leiðinlegar skólabækur. Enn þann dag í dag á ég erfitt með að einbeita mér lengur en í 15 mínútur og má segja að ég sé með korters athyglisgáfu. Ef að fyrirlestrar eru hægir og kennarinn flytur þá eins og hann sé að lesa dánartilkynningar hætti ég að hlusta. Fer að skapa allskonar ævintýri, tónlist eða bara hvað sem er í kollinum á mér. Ég hef fengið margar af mínum bestu hugmyndum undir þessum kringumstæðum. Það þarf í raun og veru mjög mikið til að ná athygli minni. Það verður að vera stuð, húmor og oft jafnvel smá átök. Átök um málefni, rök og rökleysu. Það er gaman að vera ósammála, ef allir væru alltaf sammála yrði engin þróun og þar af leiðandi engin sköpun. Ég veit ekkert af hverju ég er svona en svona hef ég alltaf verið. Ég hef oft reynt að breyta mér og falla inn í hópinn, vera ekki alltaf að segja hug minn, þegja bara og leyfa lífinu að þjóta áfram án þess að hafa áhrif á það. En það er ekki hægt. Sköpun er ótrúlegt fyrirbæri. Án hennar yrði ég brjálaður því ef ég er ekki að skapa verð ég ólýsanlega eirðarlaus. Sköpun er kraftur sem býr innra með manni og ef maður birgir þennan mikla kraft inni endar með því að maður springur. Ég er þeirrar skoðunar að öllum sé eðlilegt að skapa en því miður miðast stundum skólastarf og kennsla við það að drepa niður þessa löngun og móta alla í sama formið. Form leiðinda og sköpunarleysis þar sem unnið er með hluti sem allir hafa eina ákveðna lausn. Eftir 15 ára skólagöngu er búið að deyfa þig svo mikið að þú átt erfitt með að hugsa sjálfstætt og öll löngun til sköpunar er dauð. Einungis þeir sterkustu lifa af þessa aftöku. Þeir hafa einhverra hluta vegna náð að forðast síuna. Sköpunarþrá þeirra er svo sterk að erfitt er að brjóta þá niður. Það er reynt með öllum tilteknum ráðum. Þeir eru barðir niður með orðum, sendir í hinar og þessa atferlisfangabúðir og í verstu tilfellum er þeim byrlað eitur. En allt kemur fyrir ekki. Þeir eru sterkir og sleppa undan oki yfirvaldsins og halda áfram að skapa. Í minni skólagöngu kynntist ég oft kúgun formsins. Ég fann oft fyrir því að ekki er gott að hafa sjálfstæðar skoðanir. Sérstaklega ef skoðanir manns stangast á við skoðanir kennarans. Maður lærir að vera þræll meðalmennskunnar og sníða verk sín að því sem maður heldur að kennarinn vilji sjá og heyra. Það er farsælast og gefur bestu einkunnina. En ég er óþekkur og ekki svo auðtaminn. Ef ég væri hestur væri löngu búið að fella mig því enginn getur riðið svona hrekkjóttum hesti til lengdar. Stundum sýndi ég hæfni til að hugsa út fyrir rammann í verkefnum í skóla og laumaði inn í verkefnin óumbeðnum sköpunarkrafti. Sumum kennurum fannst það sköpun Gildi skapandi starfs Texti: Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.