Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 47

Skólavarðan - 01.12.2012, Qupperneq 47
47 Skólavarðan 2. tbl. 2012sköpun skemmtilegt og kunnu að meta viðleitnina. Þetta eru þeir kennarar sem hafa enn einhverja sköpunarþrá. Svo eru það hinir sem eru löngu búnir að tapa sköpunarmætti sínum og trúa og treysta á mátt formsins og hina einu réttu lausn þess. Þeim er ekki skemmt. Gildi skapandi starfs og leikrænnar tjáningar í starfi kennarans er lífsnauðsynleg fyrir sköpunina. Kennarinn er með stórkostlegt vopn í höndunum. Hann hefur getu og vald til þess að hafa áhrif á einstaklinga. Hann getur bæði drepið niður skapandi hugsun og ýtt undir hana. Lifandi kennari er kennari sem hefur áhuga á viðfangsefninu, er skapandi og notar leikræna tjáningu í starfi sínu. Eðlislæg leikræn tjáning er partur af persónuleika kennara sem nær að vekja áhuga nemenda sinna og fær þá til þess að læra án þess að þeir geri sér grein fyrir því. Kennsla er nefnilega náðargáfa sem þú annaðhvort hefur eða hefur ekki. Hana er ekki hægt að kenna. Náðargáfa, nám og æfing vinna saman að því að skapa eitthvað nýtt og ómengað. Góður kennari er vel menntaður, skapandi, áhugasamur, hefur æft sig, hefur náðargáfu og síðast en ekki síst er vinur nemenda sinna. Einstaklingur sem er „í kompaníi við sköpunarkraftinn“ er frjáls. Ef ég væri hestur væri löngu búið að fella mig því enginn getur riðið svona hrekkjóttum hesti til lengdar. Lag og texti eftir Harald F. Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.