Skólavarðan - 01.12.2012, Page 52

Skólavarðan - 01.12.2012, Page 52
52 Skólavarðan 2. tbl. 2012 Texti: Nanna Kristín Christiansen Myndir: Frá höfundi Einelti er grafalvarlegt mál og leita verður allra leiða til að sporna við því. Þess vegna var ákveðið að gefa vinnu gegn einelti aukið vægi í öllu skóla- og frístundastarfi þegar þessi starfsemi var sameinuð undir eitt svið; skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar haustið 2011. Fjölmargir skólar styðjast nú þegar við sérhæfð verkefni í vinnu gegn einelti og hafa náð góðum árangri en víst er að þekking og færni í þessum málaflokki verður seint fullnægjandi. Starfshópur sem leiðir verkefnið á skóla- og frístundasviði (SFS) og fengið hefur vinnuheitið Vinsamlegt samfélag stendur fyrir málstofum, ráðstefnum, fræðslufundum og hverfafundum auk þess að halda úti síðu á innri vef SFS með efni sem stuðlar að því að efla þekkingu og viðhorf starfsfólks í baráttunni gegn einelti. Óskað hefur verið eftir því að hver starfsstaður SFS tilnefni tvo tengiliði í verkefnið. Hér er um að ræða afar stóran hóp eða rúmlega 300 einstaklinga. Hlutverk tengiliðanna er einkum að sækja fundi og ráðstefnur og koma þekkingu, reynslu og viðhorfum til samstarfsfólks síns í leik- og grunnskólum og starfsstöðvum frístundamiðstöðvanna. Starfshópurinn hefur í áherslum sínum einkum haft til hliðsjónar niðurstöður umfangsmikillar sænskrar rannsóknar á einelti í skólum1 og áherslur menntastefnu Evrópuráðsins um skóla án ofbeldis sem framfylgt er af Pestalozzi stofnuninni. Segja má að meginskilaboðin felist í því að ofbeldi, þ.á.m. einelti, sé að miklu leyti lært félagslegt fyrirbæri. Alist börn upp við að illt umtal, útilokun, mismunun, ógnun, niðurlæging, lítilsvirðing og meiðingar séu óhjákvæmilegir þættir samskipta, hvernig eiga þau þá að tileinka sér samkennd, virðingu og ábyrgð í samskiptum við félaga sína? Það er á ábyrgð fullorðna fólksins, ekki síst foreldra og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi, að vera börnum góðar fyrirmyndir og kenna þeim með skipulögðum hætti að vera virkir og ábyrgir þátttakendur í samfélaginu. Það nægir ekki að segja börnum að sýna félagslega ábyrgð í samskiptum og refsa þeim þegar þau gera það ekki heldur þurfa þau að læra það í markvissu námi. Slíkt nám á ekki að fara fram á afmörkuðum tímum heldur þarf það að vera samofið öllu skóla- og frístundastarfi. Þetta samræmist vel þremur af sex grunnþáttum menntunar í leik-, grunn- og framhaldsskólum en það eru heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi og jafnrétti. Í nýrri aðalnámskrá er einmitt tekið fram að grunnþættirnir eigi að birtast í öllu starfi skólans. Í sænsku rannsókninni kemur m.a. fram að þar sem skólabragur er góður nær einelti mun síður að festa rætur meðal nemenda en góður skólabragur einkennist af miklum áherslum á samvinnuverkefni og skapandi starf. Meðal nemenda og starfsfólks ríkir samkennd og traust. Samræmi 1 Skolverket (2011). Utvärdering av metoder mot mobbning. Rapport 353. Stokkhólmur: Skolverket. Nanna Kristín Christiansen. Verkefnastjóri á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Vinsamlegt samfélag í skóla- og frístundastarfi einelti

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.