Tímarit Máls og menningar - 22.10.2002, Síða 41
Hver veit
Hver veit hvar stjörnunum er skipað í dýrðarkerfi
skaparans
og hvar friðurinn byrjar og hvort blóðfrosin tálkn fisksins
eru til þess ætluð í harmleik jarðarinnar að útfylla
stjörnumerkið
píslarvætti með eðalroða sínum,
að skrifa fyrsta bókstaf hins orðlausa máls.
Vissulega felst í kærleika það blik
er þýtur sem elding í gegnum merg og bein
og fylgir deyjendunum eftir gegnum síðasta andvarpið.
En hvar hinir endurleystu koma ríkdómi sínum fyrir
veit enginn.
Hindber koma upp um sig í myrkviði með ilmi sínum.
En afsíðis lögð sálarbyrði framliðinna,
gefur enga vísbendingu þó leitað sé.
Og getur þó tifað vængjum milli múra eða frumeinda,
eða allt til þar sem völ er á rúmi fyrir hjarta sem slær.
Ó þeir strompar
„Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af
mér mun ég líta Guð.“ – Job.
Ó þið strompar
á kænlega skipulögðum bústöðum dauðans.
Þegar líkami Ísraels sogaðist upp í loftið ummyndaður
í reyk –
Stjarna ein sem varð svört tók á móti honum,
eins og sótari.
Eða var það sólargeisli.
Ó þeir strompar!
Undankomuleiðir fyrir duft Jeremíasar og Jobs –
Hver fann ykkur upp og hlóð stein fyrir stein
slíkan veg handa flóttamönnum úr reyk?
Ó þeir bústaðir dauðans,
lumandi á notalegum þægindum
fyrir húsráðandann, sem raunar var þar gestur –
Ó þið fingur
sem lögðuð dyraþröskuldinn
eins og hnífsegg milli lífs og dauða –
Ó þið strompar
ó þið fingur
og líkami Ísraels reykjarsúla upp í loftið!
Jakob
Ó Ísrael
frumburður dagmálaglímunnar,
þar sem sérhver fæðing
stendur skrifuð með blóði á aftureldinguna –
Ó bitri hnífur hanagalsins rekinn í hjarta mannkynsins.
Ó sárið
milli nætur og dags sem ert heimkynni vort,
framherji í fæðingarhríðum stjörnuholdsins
í andvökusorginni,
þar sem fuglasöngur grætur.
Ó Ísrael
þú sem eitt sinn frelsaðist loks til fullsælu.
Drjúpandi náð morgundaggarinnar yfir höfði þínu –
Blessaður vor vegna sem erum ofurseld gleymskunni,
stynjandi í rekís dauða og upprisu og snúin úr liði til Guðs
af englinum þunga yfir oss,
eins og þú.
38 Ljóðaþýðingar Jóhannesar 22.10.2002 10:10 Page 41