Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Síða 40
40 41
1. mál Fskj. A
Fundur samstarfsnefndar Alþingis og Þjóðkirkjunnar
þriðjudaginn 10. desember 2013 kl. 16:00 í Alþingishúsinu.
Af hálfu Alþingis sátu fundinn Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, og einn
fulltrúi frá hverjum þingflokki, sbr. lög nr. 12/1982, en það voru Valgerður
Gunnarsdóttir, Höskuldur Þórhallsson, Össur Skarphéðinsson (vék af fundi kl.
16.45), Lilja Rafney Magnúsdóttir, Róbert Marshall (vék af fundi kl. 17.05) og Helgi
Hrafn Gunnarsson. Þá sátu fundinn Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis (vék
af fundi kl. 17.05), og Þorsteinn Magnússon aðstoðarskrifstofustjóri sem ritaði
fundargerð.
Af hálfu Þjóðkirkjunnar sátu fundinn frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup
Íslands og forseti kirkjuráðs, ásamt kirkjuráðsmönnunum sr. Gunnlaugi Stefánssyni,
sr. Gísla Gunnarssyni og Ásbirni Jónssyni. Þá sátu fundinn sr. Þorvaldur Víðisson
biskupsritari og Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs.
1. Frumvarp til þjóðkirkjulaga.
Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og
starfshætti Þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997 (þjóðkirkjulög), sem kirkjuþing
samþykkti að leggja til við innanríkisráðherra að verði flutt á Alþingi á
yfirstandandi löggjafarþingi. Ásbjörn Jónsson gerði grein fyrir frumvarpinu,
en í því er m.a. gert ráð fyrir að fjárstjórnarvald kirkjuráðs verði flutt til
kirkjuþings. Almenn umræða varð um frumvarpið og lagði biskup áherslu á
að góð sátt væri um það innan Þjóðkirkjunnar.
2. Sóknargjöld þjóðkirkjusafnaða.
Lagt fram minnisblað um sóknargjöld þjóðkirkjusafnaða, dags. 25. okt. sl.
Biskup gerði grein fyrir helstu efnisatriðum þess. Þar kemur m.a. fram að
greiðslur ríkisins til Þjóðkirkjunnar af innheimtu sóknargjalda hafi minnkað
verulega á árunum 2009-2011. Bent er á að mikið vanti upp á að sóknargjöldin
séu í samræmi við lög nr. 91/1987, um sóknargjöld o.fl. Nú sé svo statt að
grunnstoðir í starfsemi safnaða Þjóðkirkjunnar séu að hruni komnar. Biskup
lagði áherslu á að hér væri ekki eingöngu um vandamál Þjóðkirkjunnar að
ræða því sóknargjöld væru einnig lögbundin félagsgjöld annarra trú- og
lífsskoðunarfélaga. Almenn umræða varð um málið að loknu máli biskups.
3. Kirkjujarðasamkomulagið.
Lagt fram minnisblað um kirkjujarðasamkomulagið, dags. 25. okt. sl.
Samkomulagið (frá 1997) lýtur að afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti
skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna Þjóðkirkjunnar.
Biskup fylgdi minnisblaðinu úr hlaði, en þar kemur m.a. fram að vegna