Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 122
122 123
BISKUPSSTOFA Laugavegi 31 150 Reykjavík Sími 528 4000 Fax 528 4098 kirkjan@kirkjan.is www.kirkjan.is
The Evangelical Lutheran Church of Iceland BISHOP’S OFFICE Laugavegur 31 IS 150 Reykjavik Iceland
Tel. 528 4000 Fax 528 4098 kirkjan@kirkjan.is www.kirkjan.is
eins og landskirkna og vegna ýmissa verkefna sem þjóðkirkjunni eru falin umfram önnur
trúfélög. Ekki var um nýtt eða aukið framlag að ræða, heldur nýtt og einfaldað form fyrir
framlög, sem áður byggðu ýmist á lögum um sóknargjöld eða á öðrum lögum um
þjóðkirkjuna og málefni hennar.
- Kirkjumálasjóður
Í svari ráðherra kemur fram að sóknargjald sé greitt til þjóðkirkjusafnaða í gegnum
kirkjumálasjóð. Með stofnun sjóðsins árið 1992 var til einföldunar slegið saman framlögum
til prestssetrasjóðs og ýmsum öðrum fjárlagaliðum sem byggðust á eldri lagaheimildum eins
og t.d. framlag vegna Tónskóla þjóðkirkjunnar, starfsþjálfunar guðfræðikandídata,
prestastefnu, kirkjuþings, ráðgjafar í fjölskyldumálum o.fl. Þá var enn farin sú leið til
einföldunar að miða upphæð framlagsins við ákveðið hlutfall sóknargjaldsins með svipuðum
hætti eins og áður hafði verið gert við Jöfnunarsjóð sókna. Þetta framlag hefur því ekkert með
sóknargjaldið að gera, enda hefur prestssetrasjóður og önnur þau verkefni sem tilgreind eru í
lögunum um kirkjumálasjóð aldrei tengst fjármálum sóknanna.
Það er því ekki rétt að framlög til Jöfnunarsjóðs sókna og Kirkjumálasjóðs séu sóknargjöld og
að þau séu þar með 30% hærri en til annarra trúfélaga, enda hefur slíkum málflutningi verið
hafnað í hæstaréttardómi.
Úrsagnir úr þjóðkirkjunni
Í síðustu málsgreininni í svari ráðherra (kafli 5) er sagt að hluti skerðingar á sóknargjöldum sé
vegna úrsagna úr þjóðkirkjunni. Þar segir: „Áætlað er að hrein áhrif úrsagna á tímabilinu svari
til 251 millj. kr. lækkunar á árlegu framlagi sóknargjalda þannig að það sé orðið um 10%
lægra en ella væri.“ Hér er um villandi framsetningu að ræða. Úrsagnir hafa haft áhrif en þó
ekkert í líkingu við það sem fullyrt er í svari ráðherra. Greiðendur sóknargjalda eru árið 2014
2,1 % færri en þeir voru flestir og hefur það í för með sér um 37 millj. kr. lækkun
sóknargjalda á ári. Þær tölur sem nefndar eru í niðurlagi svars ráðherra eru því ekki réttar.
Virðingarfyllst,
Fyrir hönd kirkjuráðs
Ragnhildur Benediktsdóttir
framkvæmdastjóri kirkjuráðs