Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 134
134 135
06-701 Þjóðkirkjan/Biskupsstofa 2015
Fjárhagsáætlun 06-701 Þjóðkirkjunnar/Biskupsstofu 2015 –
í milljónum króna
2015
Prestar – launakostnaður - 125 embætti 1.276,2
Biskup Íslands - launakostnaður 16,6
Vígslubiskup í Skálholti - launakostnaður 13,7
Vígslubiskup á Hólum - launakostnaður 12,9
Prófastar - launakostnaður 23,1
Náms- og veikindaleyfi - launakostnaður 40,6
Aukaeiningar í fjölmennum prestaköllum 10,1
Einingar vegna niðurlagðra prestakalla 19,1
Rekstrarkostnaður presta og prófasta 137,2
Laun starfsfólks skv. kirkjujarðsamkomulagi 13,6 stöðug. 128,4
Samtals áætluð gjöld 2015 1.677,8
Greiðslur samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2015 1.486,9
Fjárvöntun 2015 -190,9
Rekstraráætlun 06701 Þjóðkirkjunnar árið 2014 – forsendur
Eins og fram hefur komið hefur 06-701 Þjóðkirkjan sætt hagræðingarkröfu að fjárhæð
431,5 m.kr. frá árinu 2010 og hefur tekist að skera niður sem nemur 240,7 m.kr. Fjárvöntun
vegna ársins 2015 er því um 191 m.kr. Til að brúa þetta bil er gert ráð fyrir að framlög
komi úr Kirkjumálasjóði að fjárhæð 71 m.kr. og úr Jöfnunarsjóði sókna 71 m.kr. auk þess
sem eignir verða seldar og andvirði 49 m.kr. greitt til 06-701 Þjóðkirkjunnar/Biskupsstofu.
Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður skrifstofu verði hjá Kirkjumálasjóði. Áður var
rekstrarkostnaður á Biskupsstofu en þá kom kostnaðarhlutdeild úr sjóðum á móti.
Á Biskupsstofu og Kirkjumálasjóði er áætlaður óbreyttur fjöldi stöðugilda starfsmanna
frá fyrra ári. Áætluð stöðugildi á Biskupsstofu árið 2015 eru 13,6 en áætluð stöðugildi
Kirkjumálasjóðs eru 12,6. eða samtals um 26 stöðugildi árið 2015. Frá árinu 2010 hefur
starfsfólki þá fækkað sem nemur 7 stöðugildum eða um 21%. Eftirfarandi breytingar eru
á mannahaldi Biskupsstofu/Kirkjumálasjóðs:
Ráðgert er að fjöldi prestsembætta verði óbreyttur árið 2015. Prestsembætti verða þannig
um 125 samkvæmt rekstraráætlun 2015.
Gert er ráð fyrir að embættiskostnaður presta hækki um 2,3% milli ára og að námsleyfi
presta verði 14 mánuðir alls. Í áætlun er miðað við að laun hækki um 3,5%.
Sérframlög
Sérframlög til stofnkostnaðar kirkjunnar lækka milli ára 6 m.kr. og eru því samtals 21
m.kr. í fjárlagafrumvarpi 2015.
Stofnkostnaðargreiðsla ríkisins vegna Skálholts er 4 m.kr. Framlag til Skálholts að fjárhæð
6 m.kr. fellur niður. Það var veitt í tilefni af 900 ára afmælis biskupsstóls í Skálholti og
ætlað til uppbyggingar í staðnum. Samtals voru greiddar 48 m.kr. á 6 árum.