Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 138
138 139
Kirkjuþing afgreiddi fjármál þjóðkirkjunnar með eftirfarandi
þingsályktun:
Kirkjuþing 2014 afgreiðir ársreikninga þjóðkirkjunnar fyrir árið 2013 um einstaka
sjóði, stofnanir og viðfangsefni þjóðkirkjunnar athugasemdalaust. Farið hefur verið yfir
fyrirliggjandi endurskoðunarskýrslu til kirkjuþings frá Ríkisendurskoðun. Kirkjuþing
staðfestir að reikningshald kirkjulegra embætta, stofnana og sjóða fyrir árið 2013 hafi
hlotið fullnægjandi endurskoðun.
Undanfarin sex ár hefur þjóðkirkjan og söfnuðir hennar tekið á sig tekjuskerðingu sem
í heild nemur um 6,5 milljörðum króna. Annars vegar er þar um að ræða lögbundin
sóknargjöld, félagsgjöld, sem ríkið innheimtir og hins vegar samningsbundnar greiðslur
vegna kirkjueigna sem ríkinu voru afhentar með sérstöku samkomulagi frá 1997.
Kirkjujarðasamkomulagið fjallar um afhendingu kirkjujarða til ríkisins á móti
skuldbindingu um að greiða laun presta og starfsmanna þjóðkirkjunnar. Þjóðkirkjan hefur
ekki vikist undan ábyrgð og fallist á skerðingu á kirkjujarðasamkomulaginu undanfarin ár.
Uppsöfnuð skerðing frá árinu 2010 vegna kirkjujarðasamkomulagsins er um 2,1 milljarður
króna. Kirkjuþing væntir þess að fyrirhugaðar viðræður ríkis og kirkju um endurskoðun
3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði við samninginn.
Sóknargjöldin eru lögbundin félagsgjöld sem ganga til reksturs safnaða þjóðkirkjunnar,
annarra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga um land allt. Óumdeilt er að sóknargjöld hafa verið
skert mun meira en framlög til stofnana innanríkisráðuneytisins. Frá fjárlögum ársins
2008 til 2014 hafa sóknargjöld lækkað sem nemur um 25% umfram framlög til stofnana
innanríkisráðuneytisins, samanber skýrslu nefndar innanríkisráðherra til að meta áhrif
niðurskurðar fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar frá apríl 2012 og skýrslu starfshóps
um fjárhagsleg málefni þjóðkirkjunnar og safnaða hennar frá maí 2014. Enn meira vantar
uppá að sóknargjöldin séu í samræmi við lög um sóknargjöld o.fl. nr. 91/1987. Uppsöfnuð
skerðing til þjóðkirkjusafnaða vegna sóknargjaldanna á árunum 2008 – 2014 er um 4,4
milljarðar króna.
Kirkjuþing 2014 treystir því að stjórnvöld standi við fyrirheit sem gefin hafa verið um
leiðréttingu sóknargjalda, þannig að gengið verði frá samningi ríkis og kirkju um gjöldin
á næstu mánuðum. Ennfremur treystir kirkjuþing því, að fyrirhugaðar viðræður ríkis og
kirkju um endurskoðun 3. greinar kirkjujarðasamkomulagsins leiði til þess að staðið verði
að fullu við það.