Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 143
143
Verkefni 2.3: Prestar og starfsfólk kirkjunnar sem koma að boðun og fræðslu skulu huga
að ábyrgð sinni varðandi málfar beggja kynja. Leitast skal við að nota nýjustu þýðingu
Biblíunnar í öllu starfi kirkjunnar. Jafnréttisfulltrúi sendi út bréf árlega til að minna á þetta.
Ábyrgð: Biskup Íslands og jafnréttisfulltrúi.
Tímamörk: Allt tímabilið
3. Jöfn laun og kjör starfsfólks
Í lögum nr. 10/2008 er hvers konar mismunun á grundvelli kyns óheimil. Samkvæmt 19.
gr. ber hverjum atvinnurekanda að greiða starfsfólki sínu sömu laun og veita sömu kjör
fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki er ávallt heimilt, ef það kýs svo, að skýra frá
launakjörum sínum.
Verkefni 3.1: Árlega verði framkvæmd einföld könnun á launakjörum starfsfólks
kirkjunnar og safnaðanna og starfsaðstæðum sjálfboðaliða. Könnunin skal lögð fyrir í
lok janúar ár hvert og kynnt á héraðsfundum á vorin. Ef launamunur kemur í ljós sendir
Jafnréttirfulltrúi prófasti bréf, sem fylgir málinu eftir. Þannig næst ákveðin yfirsýn með
samanburði á milli ára.
Ábyrgð: Þjónustusvið biskupsstofu, prófastar og jafnréttisfulltrúi.
Tímamörk: Allt tímabilið eða 2015, 2016, 2017
4. Staða kynjanna innan kirkjunnar
Við skipan í nefndir og ráð skal fara eftir 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla. Einnig skal þess sérstaklega gætt við ráðningar á starfsfólki sókna og
stofnana kirkjunnar sbr. 1. mgr. 18. gr og 1. mgr. 20. gr. laganna.
Verkefni 4.1: Samhliða könnun á launum og kjörum starfsfólks verði birtar í Árbók
kirkjunnar og á heimasíðu jafnréttisnefndar upplýsingar um kynjahlutföll í nefndum,
ráðum og stjórnum kirkjunnar.
Ábyrgð: Jafnréttisfulltrúi vinni að greiningu á hlut kvenna og karla innan kirkjunnar.
Tímamörk: Birtist í Árbók kirkjunnar 2015, 2016 og 2017
Verkefni 4.2: Mikilvægt er að upplýsa valnefndir um lagalegar skyldur þeirra gagnvart
jafnréttislögum og jafnréttisstefnu kirkjunnar. Mannauðsstjóri kirkjunnar sendi
valnefndum bréf í hvert skipti sem kemur að því að velja prest. Þar sé farið yfir skyldur
nefndarinnar, auk þess sem gefnar eru upplýsingar um stöðu jafnréttismála t.d. með
því að tiltaka fjölda presta af hvoru kyni á samstarfssvæðinu sem og í prófastsdæminu.
Mannauðsstjóri skal senda formlega ábendingu til valnefnda ef kynjahlutfall innan
nefndarinnar er ekki í samræmi við jafnréttisstefnu kirkjunnar.
Ábyrgð: Mannauðsstjóri og jafnréttisfulltrúi.
Tímamörk: Sístætt verkefni.