Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 145
145
7. mál kirkjuþings 2014
Flutt af Þórunni Júlíusdóttur, Stefáni Magnússyni,
Sigurði Árna Þórðarsyni og Leifi R. Jónssyni.
Tillaga að starfsreglum um val og veitingu prestsembætta
Kirkjuþing 2014 samþykkir að vísa breytingartillögu löggjafarnefndar á þingskjali 67
til kirkjuráðs sem sendi hana til kynningar og umsagna héraðsfunda, héraðsnefnda,
Prestafélags Íslands og aðildarfélaga þess og annarra þeirra kirkjulegra aðila sem málið
varðar. Kirkjuráð leggi umsagnir fyrir löggjafarnefnd. Löggjafarnefnd búi málið í hendur
kirkjuþingi 2015 og flytji það.
7. mál - þskj. 67
Breytingartillaga
að starfsreglum um val og veitingu prestsembætta
Frá löggjafarnefnd
Frsm. Steindór Haraldsson
1. gr.
Biskup Íslands skipar, samkvæmt 37. gr. laga nr. 78/1997, í embætti sóknarpresta,
presta, héraðspresta og sérþjónustupresta þjóðkirkjunnar. Um málsmeðferð samkvæmt
starfsreglum þessum skal fara að stjórnsýslulögum nr. 37/1993, eftir því sem við getur átt.
2. gr.
Biskup Íslands undirbýr auglýsingu embættis með því að kalla eftir þarfagreiningu
prestakalls og/eða héraðsnefndar. Prófastur skal sjá til þess að þarfagreining verði unnin
innan þeirra tímamarka sem biskup setur. Hún skal innihalda eftir því sem við á:
• Lýsingu á prestakallinu og sóknum þess, ef um er að ræða embætti sóknarprests eða
prests.
• Lýsingu á umfangi prestsþjónustunnar, starfsaðstöðu o.fl. er varðar hið kirkjulega starf.
• Kröfur um sérstaka þekkingu, hæfni eða reynslu, sem leitað er eftir hjá nýjum presti,
s.s. í stjórnun, safnaðarstarfi og/eða sérhæfðri þjónustu.
• Greiningu á helstu styrkleikum og veikleikum safnaðarstarfsins.
• Helstu áherslur sóknarnefndar eða héraðsnefndar í safnaðarstarfi næstu fimm árin.
3. gr.
Biskup Íslands auglýsir laus prestsembætti í samræmi við ákvæði 39. gr. laga nr. 78/1997.
Við undirbúning auglýsingar skal tekið tillit til þarfagreiningar samkvæmt 2. gr. Í
auglýsingu skal a.m.k. eftirtalið koma fram: