Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 148
148 149
stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og upplýsingalaga nr. 140/2012 um meðferð umsókna eftir því
sem við á.
6. gr.
Meta skal hvernig umsækjendur uppfylla sérstök skilyrði og hæfni samkvæmt
þarfagreiningu og áskilin eru í auglýsingu. Að öðru leyti skal við mat á hæfni umsækjenda
horfa til eftirfarandi: menntunar, starfsferils og starfsreynslu
Umsækjendur skulu eiga þess kost með umsókn sinni að sýna fram á sérstaka hæfni til
helgihalds, til boðunar og til sálgæslu auk leoiðtoga- og samskiptahæfni.
Matsnefnd skilgreinir prósentuvægi einstakra viðmiða og greinir viðmiðin í þætti og
skilgreinir hvernig stig eru gefin fyrir hvern þátt og hvaða þættir hafa áhrif. Matsnefnd
notar 0-10 stigaskala í starfi sínu og gildir 10 hæst.
Matsnefnd fer yfir og metur umsóknir, fylgiskjöl þeirra og aðrar upplýsingar viðkomandi
umsækjanda. Taki matsnefnd viðtöl við umsækjendur skal hún styðjast við staðlaðan
spurningalista.
Matsnefnd getur, með samþykki umsækjenda, aflað frekari upplýsinga um þá og starfsferil
þeirra frá vinnuveitendum og öðrum sem samskipti hafa átt við umsækjendur vegna starfa
þeirra. Gæta ber jafnræðis milli umsækjenda.
Komi fram í gögnum, sem matsnefndin aflar, upplýsingar sem hún telur vera umsækjanda
í óhag skal kynna honum efni þeirra, frá hverjum þær koma og veita honum tækifæri til
þess að tjá sig um þær.
Eftir að nefndin hefur vinnu við mat á umsóknum er nefndinni ekki skylt að taka við
frekari umsóknargögnum, nema þau séu til að votta gögn sem fylgdu umsókn.
Matsnefnd skal sjá til þess að mál séu nægilega upplýst.
Matsnefndin skal skila niðurstöðu innan fjögurra vikna frá því að umsóknarfestur
rennur út. Ef sérstakar aðstæður valda, svo sem mikill fjöldi umsókna, getur biskup veitt
matsnefndinni allt að tveggja vikna viðbótarfrest til að skila niðurstöðu. Sóknarnefnd og
umsækjendum skal tilkynnt frestunin.
Í niðurstöðuskýrslu matsnefndar skal vera skrifleg lýsing á matsferlinu og niðurstöðu þess
þar sem fram kemur hvern eða hverja umsækjendur nefndin eða meiri hluti hennar telur
best fallna til að gegna embættinu.
Matsnefnd skal kynna viðkomandi umsækjanda niðurstöðu sína og gefur sjö daga frest
til skriflegra athugasemda. Gefi athugasemdirnar tilefni til svara að mati meirihluta
matsnefndar, skulu andmæli og svör nefndarinnar fylgja endanlegri niðurstöðu.
Umsækjendur eru bundnir trúnaði.
Dragi umsækjandi umsókn sína til baka áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir á