Gerðir kirkjuþings - 01.01.2014, Page 158
158 159
Fasteignasvið þjóðkirkjunnar skal starfrækt af kirkjuráði. Fasteignasviðið sinnir daglegum
rekstri þeirra verkefna sem kirkjuráði eru falin í starfsreglum þessum, eftir nánari
fyrirmælum nefndarinnar og ráðsins.
Kirkjuráð skipar sviðsstjóra fasteignasviðs og felur honum að annast daglegan rekstur
fasteigna og eignaumsýslu samkvæmt samþykktri fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
Kirkjuráð skipar staðgengil sviðsstjóra.
7. gr.
12. gr. orðist svo:
Kirkjuráð ásamt viðkomandi presti fer með málefni prestsseturs og almennt fyrirsvar
þess. Kirkjuráð fer með stjórn prestssetursjarða gagnvart prestum á prestssetursjörðum
samkvæmt ábúðalögum eftir því sem við getur átt og gegnir hlutverki leigusala gagnvart
presti í prestsbústað með þeim afbrigðum sem leiðir af sérstöðu prestssetra.
Kirkjuráð setur prestum haldsbréf vegna afnota þeirra af prestssetrum. Skal það liggja
fyrir þegar prestsembætti er auglýst.
Kirkjuráð gerir leigusamninga vegna prestssetra, hluta prestssetra eða réttinda, sem þeim
tilheyra, aðra en þá sem prestum er heimilt að gera skv. ákvæðum haldsbréfa.
8. gr.
13. gr. orðist svo:
Prestur hefur varðveisluskyldu gagnvart prestssetri, sem hann situr, enda þótt hann njóti
ekki allra hluta þess.
Prestur skal gera kirkjuráði og prófasti viðvart án tafar ef hann telur að hlunnindi, ítök,
greiðslumark, gæði eða réttindi prestssetursjarðar séu illa nýtt, vanrækt eða hætta á að þau
gangi undan.
Um eftirlitsskyldu prófasta fer eftir ákvæðum gildandi starfsreglna um prófasta hverju
sinni.
9. gr.
15. gr. orðist svo:
Prestur hefur öll lögmæt og eðlileg afnot prestsseturs meðan hann gegnir embætti
samkvæmt haldsbréfi og gildandi starfsreglum hverju sinni. Prestur hefur umsjón með
prestssetri og nýtur arðs og hlunninda samkv. ákvæðum í haldsbréfi.
Prestur getur eigi ráðstafað prestssetri eða réttindum sem því tengjast, þannig að það bindi
kirkjumálasjóð og/eða þannig að ráðstöfun gildi lengur en hann gegnir embætti sínu, án
samþykkis kirkjuráðs og annarra lögmæltra aðilja hverju sinni.
Prestur getur ekki, án samþykkis kirkjuráðs, ráðstafað prestssetri nema í samræmi við
eðlileg og hefðbundin not þess.
Alla samninga, sem fela í sér varanlega skerðingu eða breytingu á prestssetri, ásýnd þess
– eða viðbætur við prestssetrið – gerir kirkjuráð, svo og löggerninga vegna réttinda sem
undanskilin kunna að vera afnotarétti prests.