Félagsbréf - 01.03.1962, Blaðsíða 13
RITSTJÓRNARGREINAR
Á srrlniudaníiílcili
Engurn er alls varnað, og foringjarnir i Moskvu mega eiga pað',
að þeir vita sannarlega á sig skömmina. Eftir þá reynslu, sem ver-
öld nútimans hefur öðlazt á starfsháttum og tilgangi hins alþjóð-
lega kommúnisma, hefur þeim um alllangt skeið þótt sigurstrang-
legra að láta flugumenn sina sigla undir fölsku flaggi, ef þeir áttu
að hafa nokkra von um áheyrn. Einnig hér á landi hafa þeir i
mörg ár verið önnum kafnir við að villa á sér heimildir að hœtti
eftirlýstra afbrotamanna, og t.d. hafa nafnaskipti á kommúnista-
flokknum verið svo tið, að treggáfaðri stuðningsmenn hafa jafn-
vel ofreynt sig á að fylgjast með þeim. En þó að flokkurinn hafi
þannig árum saman verið á eins konar grimudansleik kringum
flokkslínuna, hefur enginn slikur loddaraskapur orðið honum veru-
leg stoð stundinni lengur. Alltaf þegar verst gegndi hefur eitthvað
óvœnt komið fyrir, svo sem hóþmorð á verkamönnum i Austur-
Berlín, þjóðaruppreisn i Ungverjalandi, afhjúpun pólitískra hryðju-
verka eða rússneskt helsprengjuregn. Þá hefur ballið endað með
ósköpum, griman liefur fallið og hið „rétta andlit“ kommúnism-
ans hefur komið i Ijós. Slikt er vilanlega versta áfall, sem flokkinn
getur hent. Meðal frjálsra þjóða á hann sér enga von frá þeim
degi, er hann hœttir að geta siglt undir fölsku flaggi.
En þegar svo er liomið, er tekið til nýrra ráða. Að fengnu leyfi
húsbœndanna i Kreml er flokkurinn i bili látinn hafa hœgt um sig,
og þá er það m.a., að „Þjóðviljinn skrifar minna um stjórnmála-
ástandið i Rússlandi en nokkurt annað islenzkt dagblað“, (Þjóðv.
8. marz). En þá er einnig gripið til þess að stofna hjálparsveitir,
sem hafa að yfirvarpi ýmsar góðkunnar hugsjónir svo sem frið á