Félagsbréf - 01.06.1963, Qupperneq 11
ÞORKELL GRÍMSSON
Myndlist á fornsteinöld
SÍÐARI GREINARHRUTI
6. Tilurð listaverks er háð marghliða
sambandi náttúru og umhverfis, verks-
ins sjálfs og hins félagslega tilgangs.
Hún er og bundin örlögum þjóðfé-
lagsins, sem í hlut á. Mjög getur það
slævt heildarsýnina, ef ekki er vitað um
félagslega stöðu þeirra, er skópu,
hvort aðild einstakra gætti mjög eða
hvort fjöldi manna voru á einhvern
hátt mjög jafnfætis, og allt verður
skýrara og fastara í minni, ef um þetta
er vitað. George Stow, könnuðurinn,
sem J. Desmond Clark hermdi af í
hók sinni um forsögu Suður-Afríku,
°g til hennar var sótt í fyrri hluta
þessarar greinar, mun hafa haft spurn-
lr af ættarmálurum. Sjálfur gefur
Clark nokkra hugmynd um þjóðfélags-
aðstæður og viðhorf, sem málaralisl
Irumbyggjanna þróaðist við. Hliðsjón
her að hafa af þessu. Þá eru skrif
þeirra Maringers og Bondi stóralhygl-
isverð. Bregður í þeim ljósi yfir margt.
Þeir halda fram, að menn liafi mjög
þjálfað auga og hönd til að dýpka
°g þjóna sem bezt myndlistinni. Hat'a
þá ekki samfélögin hlynnt að þessum
gróðri, færir menn og duglegir feng-
ið að helga honum krafta sína langa
hríð? Verið getur, að meistarar hafi
komið fram, þeir kunna að hafa alið
upp meðal sín aðstoðarsveina og liðið
beinlínis unnið að skrýðingu ýmissa
staða.
Forverakyn höfðu búið um árþús-
undir í Evrópu, áður en maðurinn sett-
ist þar að. List hefst með honum, eðá
svo er ætíð talið. Bólstaðir og mynd-
þil finnast saman. Það samhvarf er
merkilegt. Gæti ég trúað, að menn eigi
eftir að sækja í þetta skýringu á
mörgu, en fram að þessu hefur mjög
verið horft á aðalmyndstaðina, hellana,
og það sem tilkomumest er í þeim,
aðalsalina. Þar er margt, sem njóta
verður rækilegrar skoðunar. Salirnir,
og stærð þeirra eru mismunandi, og má
þar með réttu sjá bæði stóra hvolf-
sali og hvelfd breiðgöng, vekja upp
hugmynd um tjaldaða skála forna eða
myndprýddar miðaldakirkjur. Þarna
er innrými formhcdgað af iðjandi viti
og höndum. En við þessi aðalsvið
safnast hugurinn hvarflandi, ef krafizt
er nýtrar, alhliða skýringar og ekki
mjög í önnur liorn leitað. Setjumst
FÉLAGSBRÉF 7