Félagsbréf - 01.06.1963, Qupperneq 15

Félagsbréf - 01.06.1963, Qupperneq 15
í október en fór norður í marz. Miðar Breuil mjög við hið franko-kanta- bríska svæði. Á þeim tíma, sem þessu lýtur, síðari hluta efri fornsteinaldar, og skilji ég Lantier rétt og hér komi göt- ur saman, hefur því víða verið gengið móti hjörðunum, er þarna fóru um. Onn- ur hagdýr liöfðu svo svipaðar árstíða- ferðir eða sóttu öndverðan veg ætíð. Áætlað er, að á síðustu ísöld hafi loft- hiti í Suður-Frakklandi verið tólf gráður í júlí en mínus tíu gráður í janúar. Er ályktað af gróðurleifum. Skör liins mikla norðurjíikuls teygð- ist suður undir Berlín og miklir jöklar teygðu sig frá Pyreneafjöllum og Olp- unum. Þetta hermir Kiihn. Án efa hafa lífshættir allir og sið- venjur mótað allt viðhorf til berg- myndastaðanna. Freistum að sjá þroskaleið þessarar listar í hverfis- Böndum og þjóðfélagslegri aðhlynn- uigu. Svæðið um Les Eyzies hvetur til þess. Má minnast þess, að þar er skammt milli úthorna. Mun til dæmis ekki meira en tæp hálfsdagsganga frá Les Eyzies til Lascaux, farið greiða, Beina leið norður og upp með Vézére. Og menn þessara tíma hafa ferðazt fótgangandi. Þetla va.r óra löngu áður en kvikfjárrækt hefst, og aldrei er tal- að nokkurt dýr liafi verið tamið, hvorki til dráttar né reiðar, ekkert sem til þess hetidir óyggjandi. Verkin, sem rist voru og máluð á berg og það annað, er haft var undir, eru yfirleitt mjög merkingarljós, og sem sjálfskýrð, en öll list efri forn- steinaldar er það ekki. Verkin eru í ^júpri einveru. Einkum andar ein- ntanaþögn af myndum steinþilanna. Ég ferðaðist um Les Eyzies svæðið fyrir all mörgum árum. Það var i nóvember- mánuði 1953. Veður var þurrt og svali. Héraðið var yndisfagurt, skógurinn dökkur, brúnir og fölgrænir litir yfir jörðinni. Klettar voru rakir, þegar sól hækkaði, en lengi héla í skugga. Akvegir eru þarna greiðir. Hafa vegir víða ver- ið lagðir á einkennilega fallegan hátt um landið. Þeir eru sléttir og harðir. Frá þeim sér lieim að snotrum einka- híbýlum og bændabýlum. Þorp eru vinaleg og dálítið fábreytilega forn- leg, eins og frönsk þorp eru tíðum. Ég fór hvergi erindisleysu. Einn góð- viðrismorgun gekk ég upp Beunedal. Þar í norðurhlíðinni er bergkrikinn Cap Blanc eða Hvíthöfði. Hann er áð- ur nefndur. Þangað fór ég. Mikið var moldin, sem ég tróð, hörð og þurr í freranum. Á bergi yfir krikagrunnin- um, sem geymir mannvistarlög frá Madeleine tímum, er fræg varpmynda- ræma, hestar séðir á hlið, og settir mjög í gangröð og einnig látnir snúa hver að öðrum. Þarna eru og fleiri dýr. Eru krikadýrin 8 að tölu. Hestar eru 3, og ræman þannig, að þeir hvelfast frá súð í jafnri hæð nokkurn veginn. Tvær myndir, hestarnir til vinstri, snúa höfð- um fram og til hægri, en hinn þriðji snýr móti þeim. Er vel höggvið frá þeim og sjálfar myndirnar bylgjast léttilega. Fegurstur er hesturinn, sem lengst stendur til hægri*. Þykir hann og meðal hins bezta í grópun frá efri fornsteinöld. Dýrin bærast. Einmana- leiki hlóðst að mér. Helzt var það * Sjá verk Paolo Graziosi, Kunst der Altsteinzeit, bls. 88—89. FÉLAGSBRÉF 11
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.