Félagsbréf - 01.06.1963, Page 57

Félagsbréf - 01.06.1963, Page 57
Stefán um fólk sem hann fann til með, líf sem hann þekkti. Þær sögur voru ekki út í bláinn. En Stefán Júlíusson virðist eitthvað hafa villst af leið á þessum tíu árum. Jökull Jakobsson. Forvitnilegar þ jóð'sögur Grískar þjóSsögur og æfintýri. Friðrik Þórðarson snéri úr grísku. Heimskringa 1%2. Þjóðsögur og sagnir eru fyrir margra hluta sakir merkilegar bókmenntir. Oft er í þeim hinn fegursti og tærasti skáldskapur. En burtséð frá bókmennta- gildi þeirra, mun fátt vera betur fallið til skilningsauka á einni þjóð og al- þýðumenningu hennar en það, hvaða sagnir hún helzt kýs að segja og hverjar myndir þjóðtrú hennar tekur á sig munnlegri sagnageymd. Þjóð- sögur allra landa eiga að vísu margt sameiginlegt. Minni þeirra berast víða og eru ekki bundin af venjuleg- Um landamærum þjóða og tungumála. Þjóðsagnaminni Evrópu eru geysimörg hin sömu alls staðar, hvort heldur er á I\orðurlöndum eða sunnan Mundíu- fjalla. En þó er blær sagnanna oft allt annar og frásagnarmátinn gerólíkur, eftir þvi hvar í landi sagnirnar eru sagðar. Bókaforlagið Heimskringla hefur nú gefið út safn grískra þjóðsagna og æfintýra, sem ungur menntamaður hef- ur snúið úr frummálinu. Hingað til hefur ekki verið mikið gert að því, að gera íslenzkum lesendum aðgengilegar þjóðsögur og sagnir annarra þjóða. Eitthvað hefur þó verið þýtt af sögum næstu nágrannaþjóða okkar, en nokk- uð mun það tilviljunarkennt, hvað tek- ið hefur verið. Og fátt hefur verið dregið af fjarlægari miðum. Það er því óneitanlega fagnaðarefni að fá í hendur bók sem þessa, 27 þjóðsagnir og æfintýri austan af Balkanskaga. Þess er helzt að sakna, að bókin skuli ekki vera stærri og flytja fleiri sögur. Þó kennir í kverinu margra grasa. Þar eru æfintýri um álög og hamskipti, sem öllum lyktar farsællega eins og vera ber í æfintýrum. Þar eru sagnir um kynjaverur þjóðtrúarinnar, drauga og náttúruvættir, helgisögur og dæmi- sögur, sögur um nafngreinda menn og raunverulega atburði. Því er ekki að leyna, að margt í sögum þessum kemur íslenzkum les- anda kunnuglega fyrir sjónir. Mörg minnanna eru alþekkt í íslenzkum sög- um, og ættarmót virðast ýmis með íslenzkri þjóðtrú og grískri. Má sem dæmi um líkindin nefna hin tíðu ham- skipti af völdum álaga og stjúpuminn- ið (sem að vísu kemur undarlega sjald- an fyrir í sögunum eða aðeins í sög- unni af Maró og jólasveinunum). Þá gæti sú örlagatrú, sem gegnsýrir marg- ar sagnanna vel verið íslenzk. En á hinn bóginn er margt æði ólíkt. Sá refsingamáti að slíta sökudólginn sund- ur milli óðra hesta, lætur framandlega í íslenzkum eyrum. Og engin dæmi veit ég þess, að íslenzkir draugar, sem þó gátu verið býsna veraldlegir og efnis- FÉLAGSBRÉF 53

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.