Frón - 01.03.1945, Page 42

Frón - 01.03.1945, Page 42
40 Tvö bréf til Erlendar Gottskálkssonar 2. Frá Benedikt sýslumanni Sveinssyni. ElliSavatni 18. dag nóvem. 1871. Elskulegi góði vin! Hjartans þakklæti fyrir allt vinfengi þitt og elskusemi. SíSan viS skildum á alþingi hefi eg mikiS hugsaS um, hvernig viS meiri hlutinn ættum aS reka af höndum sliSruorSiS. 1. MeS aS mótmæli vor gegn stöSulögunum sje og hafi veriS þjóSarvilji íslendinga, en eigi aSeins agitation eSa æsing einstakra manna, eins og hinn ósvífni minni hluti segir, og 2. A5 vjer gjörum stjórninni ómögulegt aS leggja stjórnarbótina á hylluna, og láta þ a n n i g orS minna hlutans rætast, aS allt standi í staS, ef vjer eigi göngum aS afarkostum hennar. Hvorugt af þessum axarsköptum minna hlutans má leggja rothöggiS á meiri hlutann. þessvegna hefi eg nú: Ad 1. SamiS ávarp til Konungs, sem eg i sambandi viS Pál Vídalín, sjera DavíS og fleiri hefi gjört ráSstafanir til aS ganga skyldi í eptirritum til a 11 r a þingmanna á landinu, frá Páli í NorSur- og Austuramtinu, og frá mjer í SuSur og Vesturamtinu, meS tilstyrk annara þingmanna. Þetta skjal ertu annars liklega búinn aS fá, og vona eg aS þú sýnir ötult fylgi meS aS láta nú eigi nöfnin ykkar góSir Þingeyingar vanta! Ad 2. Hefi eg, ef mögulegt er, ásett mjer aS koma á fót PjóSflokksblaSi, ef skje mætti aS þeir svæfu ekki sætt og óhult í sæludraumi þrælkunar sinnar á oss íslendingum, eins og þeir til allrar ógæfu hafa gjört hingaStil. Víst er um þaS, aS eg hefi ekki huga á aS snúa faSminum aS stjórninni aS svo stöddu, eSa rjettara hinum vanganum, en þarámóti blasir hann nú viS ykkur löndum mínum! Eg álít þig nú altof hjartagóSann og veglyndann íslending til þess aS vera meS í því aS gefa mjer þenna ódrengilega löSrung, en þaS gjörir þú meS engu móti betur en því, aS stySja e k k i þetta mitt fyrirtæki, sem eg því fel veglyndi þínu og velþekta drengskap. Eg sendi nú Tryggva vin okkar áskorun í þessu efni, sem á aS ganga til ykkar beggja, því eg endist ekki til aS senda öllum þingmönnum og varaþingmönnum afskript af henni. A8 öSru leyti vona eg, aS þú, þegar þú sjerS áskorunina, og til alvörunnar kemur, sannfærist um, aS fyrirtæki mitt mælir ekki til mikils af ykkur Islendingum móti því, sem eg tekst á

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.