Frón - 01.03.1945, Qupperneq 52
50
Jakob Benediktsson
ræSa, enda mætti ákveða aS bækur til skemmtilesturs yrSu ekki
léSar meS slíkum kjörum.
Næsta skrefiS væri aS sameina öll sýslubókasöfn og önnur
stærri söfn undir einni stjórn, svo aS hægt væri aS koma sama
fyrirkomulagi á um allt land. ViS þaS mundi sparast mikil fyrir-
höfn og kostnaSur, því aS þá væri hægt aS sameina öll kaup á
einn staS, bæSi á bókum, bókbandi og öSru sem bókasöfnin
þyrftu á aS halda. Slík miSstjórn mundi einnig vera hentug,
ef ekki nauSsynleg, vegna þess aS allur þorri bókasafnanna yrSi
a. m. k. fyrst í staS aS vera án sérmenntaSra starfsmanna. En
sé sama fasta bókasafnskerfiS um allt land er hægSarleikur aS
búa smásöfn svo í hendur viStakanda aS viSunandi sé og hver
sæmilega skynugur maSur geti séS um rekstur þeirra án annars
lærdóms en greinilegrar leiSbeiningar í eitt skipti fyrir öll.
SvipaSar aSferSir hafa veriS viShafSar meS góSum árangri í
Noregi og víSar í strjálbýlum löndum.
Eins er enn ógetiS, sem er þó mikilsvert atriSi, en þaS eru
húsakynni. Mér virSist augljóst aS á þessu sviSi ætti aS vera náin
samvinna milli barnaskóla og bókasafna. Nú er sem óSast veriS
aS byggja ný skólahús í sveitum og kauptúnum. MeS litlum
aukakostnaSi mætti sjá fyrir húsnæSi undir bókasafn í skólanum,
og barnakennarinn gæti einatt veriS manna bezt fallinn til aS
sjá um safniS. Eins er þaS mikilsvert atriSi aS börnin venjist
snemma á aS nota sér bækur safnsins, og þaS væri hvergi hægara
en ef þær væru í skólanum sjálfum.
En mundi þetta ekki verða allt of dýrt? Ég er sannfærSur um
aS svo er ekki ef skynsamlega er á haldiS. Á síSustu fjárlögum
sem ég hef séS— fyrir áriS 1941 — eru veittar 34000 kr. til
bókasafna sem telja má til alþýSubókasafna, og hefur sú upphæS
staSiS aS mestu í staS í nokkur síSustu ár. Pess er aS gæta aS
lestrarfélögum er enginn styrkur ætlaSur. Ef ætla mætti aS
sveita- og bæjafélög gætu lagt fram aS jafnaSi tvöfalt á viS
ríkisstyrkinn, þyrfti ekki nema aS tvöfalda þessa upphæS til þess
aS slaga hátt upp í framlög Dana til bókasafna sinna aS tiltölu
viS íbúafjölda. En meS 200 þús. kr. tekjum — miSaS viS verSlag
fyrir stríSiS — mætti gera miklar endurbætur ef allrar sparsemi
er gætt og ekkert látiS fara í súginn.
Til þess aS umbætur á þessu sviSi verSi ekki tómt kák þarf
einkum tvennt: í annan staS aS vekja áhuga almennings á því
aS sameinast um bókasafnsmálin, koma á samtökum milli lestrar-