Frón - 01.03.1945, Page 62

Frón - 01.03.1945, Page 62
60 Orðabelgur í íslenzkri þýðingu (í Landnámi Ingólfs 1—2, 1935—36), en hún var gerð eítir uppkasti Skúla sem geymt er á Landsbókasafni. Hér er bókin gefin út eftir hreinrituðu eiginhandarriti höfundar sem varðveitt er á bókasafni Landbúnaðarháskólans danska. íslandslýsingin hefur ekki verið prentuð áður, og er handritið að henni geymt á sama stað. Báðar bækurnar hefur Jón Helgason gefið út með sinni alkunnu vandvirkni og samið innganga og skýringar, en jieirra er víða mikil þörf, því að framsetning Skúla er ekki alls staðar svo ljós sem skyldi, og tæpt á ýmsu sem mörgum lesanda mun torskilið nú á tímum. Við íslenzku jwðinguna eru mjög fáar skýringar, og bætir jiessi útgáfa jsví úr ])eim skorti, auk jjess að hún færir okkur rit Skúla eins og hann gekk frá þeim sjálfur. J. B. Nýtt færeyskt tímarit. Samfelagsrit. Kitstjóri: ErlendurPatursson. l.hefti,janúarl945. Blað Færeyinga í Danmörku, Búgvin, er nú komið á fimmta árið. Af eðlilegum ástæðum hefur það aldrei getað flutt langar greinar, nema með því að skipta þeim á fleiri tölublöð en eitt. Pessum annmarka á nýja tímaritið sem nefnt er hér að ofan að ráða bót á. Eftir nafninu að dæma er því eingöngu ætlað að fjalla um jjjóðfélagsmál, en hitt á eftir að koma í ljós hvernig ritstjórinn ætlar sér að takmarka I)að hugtak. í fyrsta heftinu eru þrjár fróðlegar greinar: um útróðra Færeyinga eftir rit- stjórann, um póstmál og póstflutninga eftir Hanus við Á, og rækilegt og greinargott yfirlit um stjórnmál Færeyinga á stríðs- árunum eftir ritstjórann. Ástæða er til að benda öllum íslending- um sem áhuga hafa á viðreisnarbaráttu frænda okkar á tímaritið. Ef jafnvel verður haldið áfram og hér er af stað farið má Jjar vænta mikils fróðleiks um ýms j>au efni sem liér er annars mjög torvelt að fá greinilega vitneskju um. Allar greinarnar sem nefndar voru eru gott dæmi jiessa, en einkum er stjórnmála- yfirlitið þarflegt, af því að dönsk blaðaskrif um þau mál hafa oftast verið bæði ónákvæm og lituð af pólitískum kreddum rit- stjórnanna, en hér er skýrt frá málunum frá sjónarmiði Fær- eyinga sjálfra. Pekking íslendinga á færeyskum efnum er yfirleitt mjög af skornum skammti, svo að ætla mætti að margir gripu fegins hendi j:>að tækifæri til fróðleiks sem hér býðst. Tímaritið er í sama broti og Frón; árgangurinn áætlaður 192 bls. í fjórum heftum, og kostar 10 kr. Afgreiðslumaður er Heini á Tröðni, Syriensvej 24, S. J. B.

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.