Morgunblaðið - 30.10.2015, Page 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 255. tölublað 103. árgangur
SÖNGURINN
ALLTAF GEGNT
STÓRU HLUTVERKI
VILJA
NOTA
TÍMANN VEL
SVÖRT KÓMEDÍA
SEM UMBREYTIST Í
ÚTHVERFAHRYLLING
HRESSLEIKAR STYRKJA FJÖLSKYLDUNA 9 BEVERLY HILLS Á ÍSLANDI 46ÁGÚSTA SIGRÚN 10
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framtíðarsýn Cameron vill horfa til fram-
tíðar í samskiptum Íslands og Bretlands.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, sagði í gær að
hann og Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson hefðu átt mjög gagn-
legar umræður í fyrradag um
samskipti Íslands og Bretlands, en
Cameron er fyrsti forsætisráð-
herra Breta sem komið hefur í op-
inbera heimsókn frá stofnun lýð-
veldisins. Spurður hvort það kæmi
til greina að biðjast afsökunar á
ákvörðun ríkisstjórnar Gordons
Brown um að beita hryðjuverka-
lögum sagði Cameron að hann
teldi báðar þjóðir vera sammála
um það að láta Icesave-málið til-
heyra fortíðinni. Ríkin ættu í mjög
góðum samskiptum nú. Því væri
ástæða til að horfa til framtíðar
frekar en fortíðar. »4
Cameron segir
Icesave-málið
heyra fortíðinni til
Gjaldið sé verðtryggt
» Skv. fjárlögum á útvarps-
gjaldið að lækka úr 17.800 kr. í
16.400 kr. á næsta ári.
» Lagt er til að gjaldið verði
óbreytt, 17.800 kr., næstu ár,
að viðbættum verðbótum.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Stjórnendur RÚV hafa lagt fram
kröfur til stjórnvalda sem fela í sér
samtals 5,9 milljarða skilyrt við-
bótarframlag næstu fimm árin.
Lagt er til að ríkið yfirtaki skulda-
bréf við LSR að fjárhæð 3,2 millj-
arðar, veiti 182 milljóna viðbótar-
framlag í ár og tryggi 2,5 milljarða í
aukatekjur með útvarpsgjaldi, með
því að falla frá stiglækkandi útvarps-
gjaldi. Samanlagt eru þetta 5,9 millj-
arðar króna. Án þessara aðgerða
telja stjórnendur RÚV að skera
þurfi niður þjónustuna frekar.
Nefnd um starfsemi og rekstur
RÚV frá 2007 skilaði skýrslu í gær.
Kemur þar fram að heildarskuldir
RÚV voru 6.627 milljónir 31. ágúst
sl. og að félagið fékk 2 milljarða í
aukaframlög árin 2007-2009. Stjórn-
endur RÚV draga upp dökka mynd
af rekstri félagsins til 2020 ef ekki
kemur til áðurnefndrar aðstoðar.
Þannig geti uppsafnað tap orðið um
4 milljarðar á tímabilinu. Samningur
RÚV við Vodafone er gagnrýndur.
Hann sé 4 milljarða skuldbinding
sem sé ekki talin til skulda.
RÚV vill fá 5,9 milljarða
Fram kemur í nýrri skýrslu að félagið þarf mikla aðstoð frá ríkinu til ársins 2020
Skuldar 6,6 milljarða Án meiri aðstoðar gæti bæst við fjögurra milljarða tap
MSkuldirnar meiri en árstekjur »14
Morgunblaðið/Eggert
Reykjavík Október er nú sá 3. úr-
komumesti síðan mælingar hófust.
Október var í gær kominn í brons-
sætið hvað varðaði úrkomu október-
mánaða frá því að mælingar hófust í
Reykjavík. Þá var spurning hvort
október næði silfur- eða gullsætinu
áður en mánuðurinn yrði úti.
Sigurður Þór Guðjónsson, áhuga-
maður um veður, hefur skrifað grein-
ar á blogg sitt (nimbus.blog.is) um úr-
komusaman október. Aðeins einn
dagur mánaðarins, sá 27., hafði í gær
verið úrkomulaus í Reykjavík það
sem af var mánuðinum. Október-
úrkoman nú var orðin 155,2 mm.
„Það eru bara tveir dagar eftir af
mánuðinum en samt er þetta orðinn
þriðji úrkomusamasti október sem
mælst hefur í Reykjavík,“ sagði Sig-
urður. Metið á október 1936, þegar
úrkoman mældist 181 mm. Til að
jafna það met þyrfti 26 mm úrkomu
til mánaðamóta. Úrkoman í október
2007 var 174 mm og því vantaði 19
mm upp á að jafna það. Veðurspár í
gær gerðu ráð fyrir áframhaldandi
úrkomu en óvíst er hvort hún nægir
til að fleyta mánuðinum í gull- eða
silfursæti októbermánaða hvað úr-
komu varðar í Reykjavík.
gudni@mbl.is
Október í toppbaráttunni
Úrkoma mánaðarins var orðin 155,2 mm í Reykjavík
Icelandair hefur útbúið strætóskýli með nýstár-
legum hætti við Ingólfstorg, en þar býðst vegfar-
endum að bíða eftir strætisvögnum í flugvélar-
sætum. Þarna má sannarlega búast við að
hugurinn beri mann hálfa leið yfir hnöttinn á
meðan beðið er eftir strætó. Flestum sem bíða
þykja flugsætin sennilega kærkomin búbót enda
öllu þægilegri en hefðbundnir bekkir í strætó-
skýlum.
Ferðast til fjarlægra landa með strætó við Ingólfstorg
Morgunblaðið/Eggert
Icelandair útbýr strætóskýli í flugvélarstíl í miðbæ Reykjavíkur
Til greina
kemur að lækka
tryggingargjald
sem atvinnurek-
endur greiða til
mótvægis við
miklar launa-
hækkanir í
kjarasamningum
að undanförnu.
Þetta segir
Bjarni Bene-
diktsson fjármálaráðherra í viðtali
við Morgunblaðið. Hann segir að
skoða þurfi málið í tengslum við
mögulegar hækkanir á bótum al-
mannatrygginga. »6
Skoðar lækkun
tryggingargjalds
Bjarni
Benediktsson
Skuldir íslenskra heimila, sem hlut-
fall af ráðstöfunartekjum, eru lægri
en í Noregi, Danmörku og Hollandi.
Íslensk heimili eru komin nálægt
þeirri stöðu sem sænsk heimili búa
við í þessum efnum. Hin hagfellda
staða vekur athygli, meðal annars
vegna þess að íbúðareign er almenn-
ari hér en gengur og gerist í ná-
grannalöndunum.
Í nýrri skýrslu Íslandsbanka um
húsnæðismarkaðinn kemur fram að
skuldir heimilanna hafi um mitt árið
verið komnar niður í sem svarar 88%
af landsframleiðslu og höfðu því
lækkað um 12 prósentustig frá sama
tíma í fyrra.
Forstöðumaður greiningardeildar
Íslandsbanka segir skuldastöðu
heimilanna komna í gott horf og gefa
tilefni til að ætla að þau hafi meira
svigrúm til fjárfestinga og meiri
neyslu en verið hefur. Það hafi verið
áhyggjuefni á síðustu árum hversu
háar skuldirnar voru og það jafnvel
talið geta haldið aftur af efnahags-
batanum. Veðrými heimilanna hefur
aukist töluvert á síðustu misserum
og hækkandi húsnæðisverð mun ýta
enn frekar undir þá þróun. »20
Skuldastaða heimila
fer hratt batnandi