Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 9
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Hressleikar verða á morgun hjá
Hress í Hafnarfirði til styrktar fjöl-
skyldu sem gengur í gegnum mikla
erfiðleika, en fjölskyldufaðirinn,
Kristján Björn Tryggvason, eða
Kiddi eins og hann er kallaður, er
með ólæknandi heilakrabba. Kona
hans, Kristín Þórsdóttir, alltaf köll-
uð Stína, segir fjölskylduna vilja
nota tímann vel og skapa saman
góðar minningar. Hjónin eru rúm-
lega þrítug og eiga þrjú börn á aldr-
inum 2-12 ára.
Vorum í Pollýönnuleik
Kiddi greindist fyrst árið 2006 og
hefur þrisvar sinnum farið í skurð-
aðgerðir en einnig geisla- og lyfja-
meðferðir. Árið 2009 virtist krabb-
inn vera horfinn og segir Stína
læknana hafa klórað sér í hausnum
yfir því hvað þetta hefði gengið vel.
„Í aðgerðinni 2007 náðu þeir að
skera helminginn í burtu og svo
voru geislarnir og lyfin greinilega að
virka. Við vorum í eins konar Pollý-
önnuleik og ég var ekki að gúggla
heilaæxli. Mig langaði ekki að vita
neitt um þetta nema það sem lækn-
irinn sagði okkur og bara halda
áfram með lífið,“ segir Stína.
Bakkað á höfuðið
Fleiri áföll dundu yfir litlu fjöl-
skylduna. Kiddi var að vinna á olíu-
bíl þegar hann lenti í slysi. „Það ger-
ist svo árið 2011 að það var bakkað
aftan á hausinn á honum þegar hann
var að labba upp úr olíugryfju þann-
ig að ég sagði við hann að ég ætlaði
að láta hann ganga með hjálm!“ seg-
ir hún og brosir. „Hefði hann verið
kominn einni tröppu ofar hefði hann
dáið á staðnum,“ segir hún alvarleg,
en hann fékk mikið högg aftan á
hnakkann og var frá vinnu í ár á eft-
ir vegna skaða á hryggjarliðum.
Fáránlegt æðruleysi
Veikindin hafa tekið á fjölskyld-
una eins og gefur að skilja en Stína
segir að Kiddi noti æðruleysi og já-
kvæðni sem vopn. „Kiddi hefur allt-
af verið alveg ótrúlega jákvæður.
Það er ekki til stress í honum. Hann
býr yfir fáránlegu æðruleysi, tekur
þessu sem sínu verkefni og ætlar
bara að vera hressi gæinn. Ef þú
hittir hann úti á götu þá myndirðu
aldrei halda nokkurn tímann að
hann væri veikur. Hann spurði
lækninn þarna fyrst, hvað heldurðu
að ég eigi sirka langt eftir? Lækn-
irinn vildi kannski ekkert vera að
svara þessu en sagði að miðað við
stærð á æxlinu og tæknina sem væri
í boði ætti hann kannski eftir 5-10
ár. Þá sagði Kiddi, já ok, frábært!
Og svo löbbuðum við út frá lækn-
inum og hann sagði: Eigum við að fá
okkur snúð?“ lýsir hún. „Ég tók svo
frekar áhyggjurnar. Ég gat ein-
hvern veginn ekki gert neitt. Maður
er svo varnarlaus,“ segir hún.
Gæinn með dósina
Kiddi ákvað í kjölfarið að hann
þyrfti að fara að hreyfa sig meira og
byrjaði á því að ganga um bæinn
með dós og safna peningum fyrir
mottumars en hann gekk á milli fyr-
irtækja. Það hefur hann gert síðustu
fjögur ár og hans vegna hafa safnast
margar milljónir til styrktar
krabbameinsrannsóknum. „Hann
var orðinn þekktur sem gæinn með
dósina,“ segir hún og hlær. Kiddi fór
daglega og lagði inn það sem safnast
hafði inn á reikninginn og var hann
oft í efstu sætum yfir þá sem söfn-
uðu en hann hefur lent í öðru sæti,
þriðja og fjórða. „Og næst ætlar
hann að taka þetta!“ segir hún og
bætir við að hann sé þá alltaf með
hræðilegt yfirvaraskegg. „Hann fær
marga kossa í apríl,“ segir Stína og
hlær. „Þetta er hans leið til að þakka
fyrir sig,“ segir hún á alvarlegri nót-
um.
Oft er sagt að ef fólk er laust við
krabba í fimm ár séu minni líkur á
að hann komi aftur en það eigi þó
ekki við í tilfelli illkynja heila-
krabba, útskýrir Stína. „Ef maður
hefði bara gúgglað þetta hefði ég
séð að auðvitað myndi þetta koma
aftur. En ég er samt fegin núna því
þá var maður ekki að velta sér upp
úr því alla daga. Hún segir að Kiddi
hafi tekið þessu með ró. Þegar ljóst
var að krabbinn væri kominn aftur
fékk hann sjokk fyrst. „Svo bara
sagði hann, já þetta er verkefni.
Það lifa allir frá a til ö, bara mis-
munandi langt á milli og það er bara
spurning hvernig lífi þú lifir,“ segir
hún og segir þau lifa lífinu vitandi
það að þau eigi ekki endalausan
tíma saman eftir. „Það er eiginlega
ótrúlegt að hann skuli ennþá vera á
lífi. Hann gæti átt ár, hann gæti átt
þrjú ár eða fimm. Læknarnir vita
það ekki alveg,“ segir hún en æxlið
var fjarlægt. „Þetta mun koma aft-
ur og kannski eftir styttri tíma. Og
þegar það gerist er ekki mikið eft-
ir,“ segir hún og útskýrir að Kiddi
sé nú í lyfjameðferð sem stendur yf-
ir í marga mánuði.
Flott framtak
Stína segist ákaflega þakklát öllu
því góða fólki sem er í kringum
hana. „Ég er líka að læra að kyngja
stoltinu mínu, eins og með Hress-
leikana, þetta er ekkert smá flott
framtak. Mér fannst þetta bara allt-
of mikið og ég var bara klökk,“ en
hún viðurkennir að fjárhagur þeirra
sé ekki góður. „Okkur langar ótrú-
lega að skapa góðar minningar og
ekki þurfa að hafa áhyggjur af pen-
ingum, ofan á allt hitt,“ segir Stína.
Vilja nota tímann til að
skapa góðar minningar
Fjölskylda í Hafnarfirði styrkt af Hressleikum Faðirinn er með heilakrabba
Morgunblaðið/Ásdís
Fjölskyldan Hún vill njóta tímans sem þau hafa saman. Ísak Þór, Kiddi, Agla Björk og Stína með Bóas Örn í fanginu.
M Ítarlegra viðtal á mbl.is
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
6.300
5.900
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007skartgripirogur.is
Skírnargjafir
Múmínálfarnir
6.300
6.300
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Jakkar
Verð 8.900 kr.
str. M-XXXL Litir: svart og blátt
Óðinsgötu 2, s. 552 2138, 101 Reykjavík
klipping eða
hársnyrtivörur
Góð
góðar
Við get
um
aðstoð
að
þig!
Hvað skiptir þig máli?
Hársnyrtistofan
Valhöll
Hressleikar
eru haldnir
ár hvert í lík-
amsrækt-
arstöðinni
Hress í Hafn-
arfirði en
þeir eru góð-
gerðarleikar
og rennur allur ágóði til fjölskyldu í
Hafnarfirði sem þarf á aðstoð að
halda.
Á leikunum eru 8, 28 manna lið
sem öll klæðast sérstökum lit og
æfa í 15 mínútna lotum í tvo tíma og
er gleðin og hressleikinn í fyrir-
rúmi. Hver keppandi greiðir 2.500
þátttökugjald og eru ennþá nokkur
laus pláss. Fyrir þá sem ekki kom-
ast á leikana en vilja styrkja fjöl-
skylduna er opinn styrktarreikn-
ingur:
135-05-71304 Kt. 540497-2149
Hressleikar
til styrktar
Bláa liðið í góðum gír.