Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 11
Káta ekkjan Ágústa Sigrún, lengst
t.v., sem Frou-Frou árið 1997.
og aðrar kirkjulegar athafnir. Á
þessum tíma fékk ég hlutverk í Óp-
erudraugnum hjá Leikfélagi Akur-
eyrar og bjó þar nyrðra í hálft ár,
kenndi líka söng einn vetur og
stjórnaði sönghópum. Að öðru leyti
hefur söngurinn verið hálfgerð
aukabúgrein hjá mér undanfarin ár.
Ég þurfti að hafa fastar tekjur, sér-
staklega eftir að Mikael, sonur
minn, fæddist 2004.“
Eins og þríhöfða þurs
Upp úr aldamótum lagði
Ágústa Sigrún aftur út á mennta-
brautina og var jafnframt í fullri
vinnu, m.a. hjá Heimsferðum, Pri-
mera Air og WOW air. Hún tók leið-
sögumannapróf á ítölsku og ensku,
lærði ítölsku í HÍ auk þess sem hún
dvaldi um skeið á Ítalíu til að ná tök-
um á málinu. Á árunum 2011-2014
lauk hún námi í stjórnendamark-
þjálfun frá HR – Opna háskólanum,
og meistaraprófi í mannauðs-
stjórnun og vinnusálfræði í við-
skiptadeild HR.
„Ég er orðin eins og þríhöfða
þurs,“ segir hún brosandi. „Enda
heilmikið hark að púsla saman
ferðamennsku, mannauðsmálum og
söng,“ bætir hún við til skýringar.
Núorðið á Ágústa Sigrún þó hægara
um vik en áður því hún er sjálfstætt
starfandi mannauðsstjóri og mark-
þjálfi og getur ráðstafað tíma sínum
sjálf. Til dæmis farið á vertíð eins og
hún kallar ferðir sínar með erlenda
túrista um landið og Íslendinga til
Ítalíu, Króatíu og Slóveníu. Best
kann hún að meta að hafa meira
svigrúm til að syngja.“
Í fantaformi
Það var einkum tvennt sem
varð til þess að hún hóf aftur upp
raust sína af alvöru og ákvað að gefa
út geisladisk. „Örn Magnússon, kór-
stjóri og organisti í Breiðholts-
kirkju, hnippti í mig fyrir fjórum ár-
um og bauð mér í kórinn.
Hugmyndin að Stjörnubjart kvikn-
aði hins vegar í markþjálfunartíma á
Skype þegar ég var í Opna háskól-
anum. Hlutverk markþjálfa er að
kalla fram það sem er kannski sofn-
að og fá fólk til að forgangsraða upp
á nýtt. Þótt þá hafi verið farin að
blunda í mér sú hugmynd að gefa út
geisladisk þakka ég þessum ágæta
markþjálfa fyrir að ég tók hana
strax alla leið, ekki eftir eitt ár eða
fleiri. Mér finnst ég búin að tengja
aftur við kjarnann minn og orku-
uppsprettu. Ég er í fantaformi,“
segir Ágústa Sigrún.
Ágúst Pétursson Faðir Ágústu var
þekktur dægurlagahöfundur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Sextán útskriftarnemar; þrettán í
grafískri miðlun og þrír í prentun,
halda útskriftarsýningu kl. 13-15 á
morgun, laugardag. Undanfarið
hafa þeir verið önnun kafnir við
undirbúninginn eins og sést glögg-
lega á Instagram-myndasíðu sem
hópurinn heldur úti til að áhuga-
samir geti fylgst með framvind-
unni.
Útskriftarnemarnir standa
frammi fyrir því að reyna að kom-
ast á námssamning og ljúka sveins-
prófi. Forsvarsmönnum og starfs-
mönnum fjölda fyrirtækja í þessum
iðngreinum er boðið á sýninguna,
enda tilvalið fyrir þá að kynnast
mögulegum starfskröftum. Einnig
er sýningin gott tækifæri fyrir nem-
endur að kynnast fagfólki og koma
sér á framfæri. Sýningin er öllum
opin og sérstaklega áhugaverð fyrir
þá sem hafa áhuga á námi í graf-
ískri miðlun og prentun í Upplýs-
ingatækniskólanum.
Undir leiðsögn kennara skipu-
lögðu, hönnuðu og markaðssettu
nemendur í frumkvöðlaáfanga sýn-
inguna. Sýningin er í sal Vörðuskóla
við Skólavörðuholt, gengið inn frá
Barónsstíg. Heitt á könnunni!
Útskriftarsýning í Upplýsingatækniskólanum
Útskriftarnemar Uppstilling útskriftarnemanna minnir á síðustu kvöldmáltíð
Jesú sem í aldanna rás hefur oft verið sviðsett með mismunandi hætti.
Kynning á verkefnum nema í
grafískri miðlun og prentun
instagram.com/gmidlun2015
Hádegisleiðsögn með listamönnum
sýningarinnar Kvennatími – Hér og
nú þrjátíu árum síðar verður kl. 12 í
dag á Kjarvalsstöðum. Brynhildur
Þorgeirsdóttir, Erla Þórarinsdóttir og
Hulda Hákon ræða við gesti um sýn-
inguna, en hugmyndin er að kalla aft-
ur saman konur sem sýndu saman
undir heitinu Hér og nú á Kjarvals-
stöðum haustið 1985. Tilefni nýju
sýningarinnar er 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna hér á landi.
Líkt og á sýningunni 1985 er lögð
áhersla á að sýna ný verk og var kon-
unum á Hér og nú boðin þátttaka en
þær eru allar enn virkar í listsköpun
og sýningarhaldi, utan tveggja sem
eru látnar. Verkin á sýningunni
spanna ýmsar aðferðir, miðla og hug-
myndir.
Leiðsögn með listamönnun sýningarinnar Kvennatími
Listakonur Erla og Brynhildur.
Listamanna-
spjall á Kjar-
valsstöðum
Fararstjórinn Ágústa Śigrún á
Frelsistorginu á San Marino.
Ljósmynd/Bjarney Lúðvíksdóttir
Dúett Ágústa Sigrún og Sváfnir
hafa sungið saman í mörg ár.
Óperudraugurinn Baksviðs hjá LA
1993 Ágústa t.h. sem Madame Giry.
Mæðgin Ágústa Sigrún með Mikael
son sinn eins árs í sólinni í Króatíu.
Ég keypti tæplega sex kíló-
gramma grasker í vikunni, burð-
aðist með það heim og varði síðan
dágóðum tíma í að vafra um netið
og skoða hugmyndir að útskurði.
Ég ætla nefnilega að skera lítið
andlit í það og veit eiginlega ekk-
ert af hverju ég er að því.
Og þó. Það er sennilega vegna
þess að markaðsöflin hafa unnið
sigur og náð nýrri hátíð í gegn.
Hrekkjavöku. Þetta var reyndar
ósanngjarn bardagi þar sem októ-
ber er án nokkurs vafa leiðinleg-
asti mánuður ársins. Sumarið er
löngu búið og samt er langt í jólin.
Þótt ótrúlegt sé virðist einhver
ágreiningur ríkja um þetta. Sumir
vilja ekki viðurkenna hátíðina og
segja hana vera útlenska.
En hvað um það. Ég keypti
graskerið og mun örugglega líka
kaupa gerviblóð eða eitthvað
annað sem verður uppstillt í búð-
inni.
En þrátt fyrir
að vera mjög há-
tíðar-frjálslynd
kona fann ég smá
kjánahroll hríslast um
líkamann þegar ég straujaði
kortið fyrir ferlíkinu.
Ég staldraði hins vegar ekki
lengi við og sá ljósið.
Öllum hátíðum, og ég segi
öllum, fylgja fáránlegar hefð-
ir. Gefum þessu bara smá
tíma.
Hvernig ætli mönnum hafi
fyrst liðið með að þurfa að
skutla risavöxnu grenitré inn á
heimilið í kringum jólin? Það er
ekkert grín að hreinsa upp þessar
nálar. Hver ákvað að allir þyrftu
að borða 2 kg súkkulaðiegg á
páskadag? Af hverju eiga allir að
vera með hatta á áramótunum? Og
hvaðan kom þessi regla með blöðr-
ur á 17. júní? Þetta er allt eitthvað
sem þögul sátt virðist ríkja
um.
En síðan eru það allra
nýjustu hefðirnar, eins og
„Baby Showers“ sem
tröllríða öllu. Þar er
hefðin að búa til
bleyjuturn og hafa
kremið á kökunum í
stíl við kyn barnsins.
Ég ætla að leyfa mér
að draga línuna og
halda kaldlyndu ís-
lensku viðhorfi gagn-
vart hátíðum sem er
ekki einu sinni hægt að
nefna á íslensku.
„Barnasturta“ er bara
of mikið.
»„Af hverju eiga allir aðvera með hatta á ára-
mótunum? Og hvaðan kom
þessi regla með blöðrur á
17. júní?“
HeimurSunnu
sunnasaem@mbl.is
Síðumúla 13 | 108 Reykjavík | Sími 571-3566
Verðum líka með spennandi
leikfanga-lukkupott
fyrir mikilvægasta fólkið...
Opið:
Þri. - föst. 10-18
laugardaga 11-16
facebook.com/biumbiumstore
Instagram: @biumbiumstore
Af því tilefni fá allir sem
versla hjá okkur í dag og
á morgun, laugardag að
draga úr lukkupotti
um 10-50% afslátt
af kaupunum.
eins árs