Morgunblaðið - 30.10.2015, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Tilboðá
stigagleri og
sturtuklefum
25%
Þú færð 25% afslátt af
stigagleri og sturtuklefum
hjá Glerborg út nóvember
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
Við erum í Mörkinni,
kíktu í Glerborg
Morgunblaðið/RAX
Orkuveituhúsið Alvarlegar
rakaskemmdir eru á austurhlið.
„Starfsmaður kvartaði undan
óþægindum og þá könnuðum við
þetta,“ segir Bjarni Bjarnason, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Alvarlegar rakaskemmdir hafa
komið í ljós á húsnæði Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) að Bæjarhálsi 1.
Sveppagró fannst í sýnum sem tek-
in voru í ágúst á þessu ári. Raka-
skemmdirnar eru á austurhlið, á
stærsta húsinu en sú hlið er áveð-
urs.
Byggingarsérfræðingar frá
verkfræðistofunni Eflu hafa skoð-
að skemmdirnar á tveimur stöðum
á húsinu.
Tökum þetta alvarlega
„Við tökum þetta mjög alvarlega
og verðum að uppræta. Við
vinnum að því að greina og meta
umfangið. Við vitum ekki enn
hvort þetta er hönnunar- eða,
framkvæmdagalli eða hvort
tveggja. Það kemur í ljós eftir
greininguna,“ segir Bjarni.
Hann bendir á þar sem umfangið
liggur ekki fyrir hefur hvorki að-
gerðar- né framkvæmdaráætlun
verið gerð. Í dag verður haldinn
starfsmannafundur þar sem greint
verður frá ástandinu. Bjarni segir
þokkalega rúmt um starfsfólk og
verður það flutt til í húsnæði þegar
þurfa þykir vegna framkvæmda.
Frá því OR flutti inn í húsið árið
2003 hefur hún aldrei nýtt allt hús-
ið. Í dag leigja nokkur fyrirtæki
pláss undir starfsemi sína í húsinu.
Nýjar höfuðstöðvar Orkuveit-
unnar að Bæjarhálsi 1 voru vígðar
í 23. apríl árið 2003. Kostnaðurinn
við bygginguna fór langt fram úr
áætlunum. Í skýrslu úttekt-
arnefndar um Orkuveitu Reykja-
víkur sem kom út í október 2012,
kemur fram að kostnaður OR
vegna höfuðstöðvanna hafi numið
5,3 milljörðum á árunum 2001-
2006, á verðlagi hvers árs. Upp-
reiknað til verðlags 2010 nam
kostnaðurinn hátt í 8,5 milljörðum
(8.466 milljónum).
Hornsteinar og Teiknistofa Ingi-
mundar Sveinssonar hönnuðu höf-
uðstöðvarnar. thorunn@mbl.is
Starfsmaður kvartaði undan óþægindum
Alvarlegar rakaskemmdir í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur
Kjördæmaþing
Framsóknar-
félaganna í
Reykjavík fór
fram fyrir
skömmu og sendi
frá sér ályktun
um að finna yrði
nýjum Land-
spítala betri stað
en Hringbraut.
Ályktunin er svohljóðandi: „Kjör-
dæmaþing Framsóknafélaganna
tekur undir áskorun Samtakanna
um betri spítala á betri stað um að
stjórnvöld láti vinna nýtt staðarval
fyrir Landspítalann með opnum og
faglegum hætti. Flest bendir til
þess að nýr Landsspítali á besta
stað geti hafið starfsemi fyrr, verið
ódýrari og mætt þörfum sjúklinga
og starfsfólks mun betur en ef
byggt yrði við núverandi húsnæði
Landspítalans í Þingholtunum.“
Kjördæmaþing
Framsóknarfélaga
vill ekki Hringbraut
Björgunarsveit-
irnar Stjarnan í
Skaftártungu og
Lífgjöf í Álfta-
veri voru kall-
aðar út á fyrsta
forgangi á sjö-
unda tímanum í
gærkvöldi þegar neyðarboð bár-
ust í gegnum svokallað Spot-tæki.
Var tækið þá nálægt vaðinu á
Hólmsá.
Fljótlega kom í ljós að bíll var
fastur í ánni og fjórir erlendir
ferðamenn ofan á honum. Fleiri
ferðalangar voru á bílum við ána
og óku þeir þangað sem var
símasamband og gátu gefið upp-
lýsingar um ástandið.
Björgunarsveitin Stjarnan kom
á staðinn um klukkan 19.40 og
tókst að ná ferðafólkinu á þurrt
rétt í þann mund sem þyrla
Landhelgisgæslunnar, sem einnig
var kölluð út, kom á staðinn.
Þyrlunni var þá snúið til baka.
Fjórir erlendir ferða-
menn ofan á bíl
Á aðalfundi
Tannlæknafélags
Íslands (TFÍ),
sem haldinn var í
gærkvöldi, var
Börkur Thorodd-
sen kjörinn
heiðursfélagi.
Börkur útskrif-
aðist sem tann-
læknir árið 1969.
Hann nam tann-
vegslækningar við Kaupmanna-
hafnarháskóla 1972-73 og hefur
starfað við tannlækningar í Reykja-
vík síðan. Börkur hefur gegnt for-
mennsku og ótal öðrum trúnaðar-
störfum fyrir Tannlæknafélagið.
Ársþing TFÍ verður haldið í
Hörpu um helgina. Íslenskir fyrir-
lesarar munu flytja áhugaverð er-
indi um nýjungar í tannlæknaheim-
inum.
Börkur heiðursfélagi
Tannlæknafélagsins
Börkur
Thoroddsen