Morgunblaðið - 30.10.2015, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eftir langabið og heil-mikla um-
ræðu í fjölmiðlum
ákvað Joe Biden,
varaforseti Banda-
ríkjanna, loks í liðinni viku að
hann mundi ekki bjóða sig
fram til þess að hljóta útnefn-
ingu Demókrataflokksins.
Sagði Biden helstu ástæðuna
fyrir því vera þá að hann teldi
sig ekki hafa nægan tíma til að
hrinda af stokkunum kosn-
ingabaráttu sem dygði til sig-
urs. Þá mátti einnig greina að
hið sviplega andlát sonar hans,
Beau, sem lést úr heilaæxli
fyrr á árinu, hefði tekið sinn
toll af honum.
Ákvörðun Bidens hefur
ýmsar afleiðingar. Hin aug-
ljósasta er sú, að hún greiðir
mjög leiðina að útnefningu
Hillary Clintons sem forseta-
efni demókrata. Biden höfðar
mest til svipaðra kjósendahópa
og Clinton. Fylgi hans hefði
því að mestu hoggið skörð í
raðir stuðningsmanna hennar.
Helsti keppinautur Hillary um
hnossið, hinn róttæki Bernie
Sanders, hefði hugsanlega get-
að nýtt sér baráttu þeirra
tveggja til þess að koma sjálf-
um sér í kjörstöðu.
Um leið þýðir ákvörðunin,
að Sanders er nú eini raunhæfi
kosturinn fyrir utan Clinton.
Misstígi hún sig í baráttunni
hefur fylgið bara á einn stað að
hverfa. Það segir sitt um hina
frambjóðendurna þrjá sem
stigið hafa fram, að ákvörðun
Jim Webb um að draga sig í
hlé, féll algjörlega í skuggann
af ákvörðun Bid-
ens, sama dag, um
að bjóða sig ekki
fram. Hafði Webb
þó tekið þátt í
kappræðum demó-
krata og reynt að stilla sér upp
sem þriðja kostinum.
Biden hefði eflaust þótt öfl-
ugur kandídat, hefði hann gef-
ið kost á sér. Hann hefur þótt
standa sig ágætlega sem vara-
forseti þegar á heildina er litið
og hann hefði lagt áherslu á
reynslu sína af Bandaríkja-
þingi sem mannasættir, sem
gæti unnið með báðum flokk-
um. Í ljósi þess að fátt bendir
til þess að repúblíkanar muni
glata valdi sínu á þinginu árið
2016 myndi slík reynsla geta
skipt sköpum fyrir verðandi
forseta.
Hann hefur þó einnig til-
hneigingu til þess að segja það
fyrsta sem kemur í hugann,
sem hefur oftar en ekki komið
honum í bobba. Sjálfur lofaði
hann því í ræðu sinni í síðustu
viku, að hann myndi ekki verða
þögull um málefni flokksins og
það hvernig hægt væri að
halda áfram á sömu braut og
Obama hefur markað. Það
gæti reynst tvíeggjað sverð
fyrir flokkinn.
Brotthvarf Bidens úr kapp-
hlaupinu um útnefninguna
mun létta bæði Clinton og
Sanders að taka sér stöðu
gegn umdeildari ákvörðunum
Hvíta hússins. Miðað við
hvernig Obama hefur gengið í
ýmsum málum gæti slíkt kom-
ið demókrötum mjög til góða í
nóvember 2016.
Ákvörðun Biden
greiðir leiðina fyrir
Hillary Clinton}
Línur að skýrast
Nú er liðiðnærri því
hálft ár frá því að
hin forna rústa-
borg Palmýra féll í
hendur hryðjuverkasamtak-
anna Ríkis íslams. Tíminn hef-
ur verið nýttur til þess að
sprengja í loft upp hinar
merku og einstöku minjar um
Rómaveldi í Asíu. Jafnframt
hafa samtökin haldið upp-
teknum hætti í ofsóknum sín-
um gegn öllum þeim sem ekki
vilja fallast á þröngsýna túlk-
un þeirra á íslam. Virðist sem
forsprakkar samtakanna séu
ávallt tilbúnir með nýjar leiðir
til þess að ganga lengra í
hrottaskapnum.
Hryðjuverkamennirnir hafa
nú ákveðið að slá tvær flugur í
einu höggi, með því að binda
fórnarlömb sín við rómversku
rústirnar, áður en þær eru
sprengdar í loft upp. Kristall-
ast í þeirri villimennsku þörfin
á því að bregðast hratt og
örugglega við
þeirri hættu sem
stafar af samtök-
unum. Hefði hún
þó átt að vera orð-
in ljós fyrir.
Loftárásir Bandaríkja-
manna hafa verið fjarri því að
duga og loftárásir Rússa bein-
ast í jöfnum mæli að sýr-
lenskum stjórnarandstæð-
ingum og meðlimum Ríkis
íslams, allt eftir því hvorir
þykja meiri ógn við Assad Sýr-
landsforseta.
Ekki ætti að skipta máli
hverjir sjá um atlöguna gegn
villimennskunni og æskilegast
væri að þjóðir heims tækju
höndum saman í því efni. Já-
kvætt er að Bandaríkjamenn
eru nú loks farnir að íhuga það
að senda herlið á vettvang,
jafnvel þó að einungis sé talað
um fámennar sérsveitir fyrst
um sinn. Ljóst er þó að mun
meira þarf til að sigrast endan-
lega á Ríki íslams.
Ríki íslams
verður að stöðva}Vaxandi villimennska
O
ft og iðulega er ég spurður að því
hvernig mér takist að halda mér
svona unglegum og hvurt leyndar-
málið sé á bak við útlitið. Þeir sem
á annað borð eru uppteknir af
slíku, eins og ég, vonast þá sjálfsagt eftir því að
ég búi yfir einhverjum leyndarmálum sem ekki
hafa komið fram í glanstímaritum, hvort sem
þau eru í pappírs- eða internetformi. Margir
ímynda sér til dæmis að hægt sé að halda sér
jafn vel með því að smyrja sig með alls kyns
kremum, og jafnvel efnum sem hugsuð eru inn-
vortis og til manneldis.
Leyndarmál mitt hefur aldrei verið vel geymt.
Ég hef ekkert legið á þeim upplýsingum þótt
lega hafi gert mér mjög gott. Fyrir utan góð gen
auðvitað, sem ekki verða keypt úti í búð, þakka
ég nefnilega fyrst og fremst síðdegisblundinum
mínum huggulegt útlitið. Snemma fór ég að prófa mig
áfram með síðdegisblundinn og smellpassaði hann til dæmis
á milli tíma í skyldunáminu og fótboltaæfinga. Vafalaust
hafa þessar svefntilraunir mínar átt sinn þátt í kjöri mínu
sem Herra skólans í Grunnskóla Bolungarvíkur á sínum
tíma og gefið mér forskot á aðra myndarlega unglings-
drengi.
Þrátt fyrir ýmis himinhrópandi teikn um hversu heilsu-
samlegur síðdegisblundurinn getur verið hafa sam-
ferðamenn mínir engu að síður sýnt þessum kenningum
mínum fullkomið fálæti. Ég hef hins vegar ekki kippt mér
mikið upp við slíkt enda kennir mannskynssagan okkur að
fólk trúir ekki á snillinga fyrr en við erum með
allra dauðasta móti. Til dæmis sýnir yfirmaður
minn, Víðir Sig, þessum tilraunum mínum ekki
nokkurn einasta skilning og setur mig á vaktir
sem hefjast klukkan 16 aðra hverja viku. Mun
flóknara er að sinna sídegisblundinum svo vel
sé á vinnustaðnum. Ekki útilokað en mun
flóknara.
Hjá djúpt þenkjandi fólki hafa hugmyndir
mínar þó hlotið meðbyr og má þar nefna að
svefnrannsóknir hjá NASA benda sterklega til
þess að blundurinn hafi mjög jákvæð áhrif á
dáðustu syni og dætur stofnunarinnar. Tel ég
það afskaplega jákvæð tíðindi því að sjálfsagt
geta því fylgt alls kyns flækjustig að vera svefn-
vana og úttaugaður við stýrið á geimskutlu. En
ef til vill er slíkur fróðleikur svolítið staðbundinn
í heimi vísindamanna og annarra í hvítum
sloppum. Er það því fagnaðarefni að tískubók sem ber heit-
ið The Essentialist vekur nú athygli á markaðnum. Nú get-
ur það varla dregist lengi að hugmyndir mínar fái almenni-
legan hljómgrunn og lífsstíll minn verði rannsakaður ofan í
kjölinn af lífsstílsfjölmiðlum. Bókina ritaði líklega Greg
nokkur McKeown en ég þekki ekki hverra manna sá ágæti
maður er. Ef hann er þá yfirleitt til. Mér skilst að nöfnin á
bókakápunum séu ekki endilega traust heimild um hver
skrifaði þær. Þar stendur til að mynda að snjöllustu fiðlu-
leikarar samtímans sofi að meðaltali 8,6 klukkustundir á
sólarhring. Ef ekki spila aðrar breytur inn í hæfnina ætti ég
að geta leikið Kvaðningu með Skálmöld á fiðlu. kris@mbl.is
Kristján
Jónsson
Pistill
Í mér blundar síðdegisblundur
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útlit er fyrir að makrílafli ánæsta ári verði langt um-fram ráðgjöf Alþjóða haf-rannsóknaráðsins, ICES,
eins og í ár þegar aflinn er áætlaður
um 1.200 þúsund tonn eða um 300
þúsund tonn umfram ráðgjöf upp á
906 þúsund tonn. Ráðgjöfin fyrir
næsta ár er upp á 676 þúsund tonn.
Nýr samningur Evrópusam-
bandsins, Noregs og Færeyja um
makrílveiðar á næsta ári byggist á
samkomulagi þjóðanna frá síðasta
ári. Hins vegar var nýtingaráætlun
breytt þannig að sveiflujöfnun var
bætt í áætlunina svo breytingar í
aflamarki milli ára verði ekki meiri
en 15%. Sú aðferð hefur ekki verið
metin af ICES. Þannig er ekki miðað
við ráðgjöf ICES sem lagði til að fisk-
veiðidánarstuðull yrði 0,22 og að
heildarafli færi ekki yfir 676 þúsund
tonn á næsta ári. Fyrir þetta ár út-
hlutuðu þjóðirnar sér einnig afla um-
fram ráðgjöf.
Strandríkin þrjú, sem sömdu sín
á milli í síðustu viku, miða við heildar-
kvóta upp á 895 þúsund tonn fyrir
næsta ár, eða um 32% umfram ráð-
gjöf. Þau reikna sér um 756 þúsund
tonn af þeim afla, ESB fær 442 þús.
tonn, Færeyjar 113 þúsund og Nor-
egur 202 þúsund tonn.
Aðeins 15,6% af heildarviðmið-
uninni eru tekin frá fyrir Ísland,
Grænland og Rússland. Samkvæmt
því kæmu um 110 þús. tonn samtals í
hlut landanna sem eru utan sam-
komulagsins frá 2014, en í ár má
áætla afla þeirra um 300 þús. tonn.
Íslendingar eru ekki aðilar að
samkomulagi ríkjanna þriggja frá
síðasta ári og úthlutaði Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra,
íslenskum skipum 173 þúsund tonna
aflamarki í ár og veiddust um 150
þúsund tonn, en geymsluheimild milli
ára var aukin í 30% í kjölfar við-
skiptabanns Rússa.
Óvissa áhyggjuefni
Samkvæmt nýjasta stofnmati er
hrygningarstofn makríls metinn
lægri heldur en hann var metinn fyr-
ir ári. Aflaregla hefur ekki verið í
gildi fyrir makrílstofninn og því veitir
ICES ráð miðað við þá veiðidánar-
tölu sem gefur hámarksafrakstur til
lengri tíma litið, sagði í frétt frá Haf-
rannsóknastofnun fyrr í haust.
Óvissa um stjórnun veiða á upp-
sjávartegundum í Norður-Atlants-
hafi er áhyggjuefni. Þorsteinn Sig-
urðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs
Hafrannsóknastofnunar, segir að það
segi sig sjálft að meðan ekki sé samið
um stjórnun veiða þessara tegunda
og veiðin umfram ráðgjöf „þá er ekki
verið að nýta stofnana með hag-
kvæmasta hætti þegar til lengri tíma
er litið“.
Af þessum verðmætu stofnum
er afli umfram ráðgjöf í ár mestur í
kolmunna, en þar er mikil óvissa í
stofnmati og unnið að endurmati á
því. Aðspurður hvort kolmunnaveið-
um í framtíðinni sé stefnt í uppnám
segir Þorsteinn: „Ef svona umfram-
veiði er stunduð til lengri tíma þá er
alltaf hætta á að hrygningarstofn fari
það langt niður að framleiðslugeta
stofnsins minnki.“
Í síld var minna veitt umfram
ráðgjöf í ár, en þar hefur slök nýliðun
verið áhyggjuefni í nokkur ár. „Ýms-
ar vangaveltur hafa verið settar fram
um ástæður þess eins og samkeppni
við makríl um fæðu og afrán í Bar-
entshafi þar sem þorskstofninn hefur
verið mjög sterkur. Þetta skýrir þó
ekki nema hluta vandans, en vissu-
lega hefur náttúran líka sína duttl-
unga og við getum ekki stýrt því.
Sveiflur eru ekki óþekktar í árganga-
stærð norsk-íslensku síldarinnar og
má til dæmis nefna að um miðja síð-
ustu öld komu t.d. risaárgangar árin
1950 og 1959. Milli þeirra voru ein-
hverjir miðlungs árgangar, en flestir
mjög slakir, án þess að skýringar
væru á því,“ segir Þorsteinn.
Makrílstofninn er metinn nokk-
uð sterkur þó svo að veiðar hafi síð-
ustu ár verið verulega umfram ráð-
gjöf. Í makríl hefur, líkt og í kol-
munna, verið unnið að endurmati á
stofnmati og farið er að taka meira
tillit til togleiðangurs á norðurslóðum
auk þess sem merkingagögn eru nýtt
við matið. Eftir sem áður er áfram
stuðst við niðurstöður eggjaleiðangra
sem farið er í á þriggja ára fresti og
verður farið í á næsta ári.
Skammta sér makríl-
afla umfram ráðgjöf
Ljósmynd/Viðar Sigurðsson
Á miðunum Ætisgöngur makríls hafa verið miklar og vaxandi inn í íslenska
lögsögu síðustu sumur. Ekki er samkomulag um stjórnun veiða.
Ekki eru fyrirhugaðir frekari fundir um stjórnun makrílveiða, en strand-
ríkin funda í Reykjavík í næstu viku um stjórnun veiða á norsk-íslenskri
síld og kolmunna.
Á fundi um síldina fyrr í haust var samþykkt að beita gildandi aflareglu
og fylgja þannig ráðgjöf ICES um 317 þúsund tonna heildarafla 2016, en
ekki tókst að semja um skiptingu heildarafla. ICES lagði til heldur meiri
heildarafla í norsk-íslenskri síld 2016 en í ár.
Kolmunnaafli er áætlaður 1.300.000 tonn í ár, sem er langt umfram
ráðgjöf ársins. Hún var 840 þúsund tonn, en er 776 þúsund tonn fyrir
næsta ár og ber mikið í milli um skiptingu kolmunnans. Aflareglan, sem
var samþykkt árið 2008, er fallin úr gildi.
Ræða síld og kolmunna
ENGIR SAMNINGAR Í GILDI