Morgunblaðið - 30.10.2015, Qupperneq 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Ármúla 24 • S: 585 2800
Úrval af LED lýsingu
Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Verkið fjallar um þrjár vinkonur,
sonur einnar þeirra er lagður í ein-
elti í skólanum og hann segir að sá
sem leggi hann í einelti sé strákur-
inn sem býr í einu félagslegu íbúð-
inni í Garðabæ, á Nónhæðinni.
Mamma hans skellir alltaf á, vill
ekki tala um
þetta og segir að
þetta sé ekki
sonur hennar.
Vinkonurnar
þrjár ákveða að
heimsækja hana
til að útkljá mál-
ið og það fer
ekki alveg á
þann veg sem
þær ætluðu sér.
Fyrstu 30 mín-
útur verksins fjalla um það og
restin af verkinu er uppgjör, úr-
vinnsla á því sem gerðist,“ segir
Heiðar Sumarliðason um (90)210
Garðabær, nýtt leikrit sitt sem
hann leikstýrir einnig og frumsýnt
verður í Kassanum í Þjóðleikhús-
inu í kvöld.
(90)210 Garðabær er annað verk
Heiðars sem sett er á svið í stóru
leikhúsunum, það fyrra Rautt
brennur fyrir sem var sýnt í Borg-
arleikhúsinu árið 2009. Heiðar hef-
ur leikstýrt fjölda verka í leikhúsi,
síðast Segðu mér satt eftir Hávar
Sigurjónsson í Kúlunni fyrir tveim-
ur árum. Leikfélagið Geirfugl sýnir
verkið í samstarfi við Þjóðleikhúsið
og er sýningin styrkt af Mennta-
og menningarmálaráðuneytinu.
Verk um konur
„Þetta er svört kómedía sem
umbreytist í einhvers konar
úthverfahrylling,“ segir Heiðar um
verkið. Það fjalli um óttann við lág-
stéttina, „ótta við fólk sem er á
féló, það hlýtur að vera klikkað“,
eins og Heiðar lýsir því.
– Var einhver sérstakur atburð-
ur kveikja að þessari sögu?
„Nei, ekki beint. Mig langaði til
að skrifa verk um konur, verk þar
sem konur væru gerendur en ekki
einhverjar puntdúkkur eins og þær
eru alltof oft í verkum eftir karl-
menn. Þær eru aðalpersónurnar,
karlmennirnir fá sitt pláss en eru
meira til stuðnings. Mig langaði
líka að skrifa verk um einelti en
mig langaði ekki að skrifa um
börn. Ég fór að velta fyrir mér
hverjir væru foreldrar þessara
krakka sem eru gerendur í einelt-
ismálum, foreldrar verstu gerend-
anna. Hvernig talar það fólk?
Hvernig tala þau á sínu heimili?
Hvað er það sem fær börnin þeirra
til að fara út í heiminn og níðast á
öðrum?“ segir Heiðar.
Var lagður í einelti
– En hvers vegna vildir þú fjalla
um einelti?
„Ef þú ætlar að skrifa verk og
halda það út í þrjú ár – eins og ég
gerði með þetta verk – þá verður
alltaf að byrja á kvöl höfundar,
spyrja sig að því hver hún sé. Hún
verður að vera nógu mikil til að
brenna á þér svo þú klárir verkið.
Ég lenti í því í áttunda og ní-
unda bekk að vera hreinlega of-
sóttur af manni sem var með mér í
skóla. Hann lét af því þegar komið
var í tíunda bekk en þetta er eitt-
hvað sem situr í manni og ég var
alveg til í að eyða þremur árum í
að skrifa verk um þetta. Mér finnst
að enginn ætti að þurfa að lenda í
því að vera flóttamaður í eigin
skóla,“ segir Heiðar.
Ekki tilvísun í sjónvarpsþætti
Titill verksins minnir óneitanlega
á heiti bandarísku sjónvarpsþátt-
anna Beverly Hills 90210 sem
sýndir voru á árunum 1990 til 2000
og spurður að því hvort hann sé að
vísa í þættina segir Heiðar að ekki
sé það alveg svo. „Þetta er tilvísun
í póstfangið í hverfinu, það er sama
póstfang í Beverly Hills og Garða-
bæ, fyrir utan þetta 90. Mér fannst
þetta sniðug tenging því ef finna á
eitthvert Beverly Hills á Íslandi þá
hlýtur það að vera Garðabær,“ seg-
ir Heiðar kíminn.
Umfjöllunarefni verksins minnir
nokkuð á leikritið Vígaguðinn eftir
Yasminu Reza. Í því lenda tveir
ellefu ára strákar í slagsmálum og
slær annar hinn með priki með
þeim afleiðingum að hann missir
tvær framtennur. Foreldrar þeirra
hittast til að ræða málin og eru
samræður vingjarnlegar í fyrstu en
svo hitnar í kolunum og ásakanir
taka að fljúga á víxl. Blaðamaður
nefnir þetta við Heiðar og segist
hann þekkja verkið og hafa verið
meðvitaður um það við skrif (90)
210 Garðabær. Hann fari þó í allt
aðra átt en Reza og nefnir sem
dæmi að móðir gerandans í hans
verki sjáist aldrei.
Umræður að loknum
tveimur sýningum
(90)210 Garðabær verður frum-
sýnt í kvöld kl. 19.30 og aðrar sýn-
ingar eru 31. okt., 6., 7., 12., 13. og
22. nóvember. Boðið verður upp á
umræður með þátttöku leikara og
listrænna aðstandenda eftir sýn-
ingarnar 6. og 13. nóvember.
Beverly Hills á Íslandi
Nýtt verk eftir Heiðar Sumarliðason, (90)210 Garðabær, verður frumsýnt í
Kassanum í kvöld Svört kómedía sem umbreytist í úthverfahrylling
Ljósmynd/Gassi Ólafsson
Leikhópurinn Stefán Hallur Stefánsson, Vigdís Másdóttir, María Heba Þorkelsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og
Svandís Dóra Einarsdóttir. Konur eru gerendur í verkinu en ekki puntdúkkur, segir höfundur.
Heiðar
Sumarliðason
Leikrit byggt á
persónum Harry
Potter- sagna-
bálki J.K. Rowl-
ing verður
frumsýnt í
tveimur hlutum
í Lundúnum í
júní á næsta ári.
Verkið nefnist
Harry Potter
and the Cursed Child og þegar
175.000 miðar á sýningar fyrstu
fjögurra mánaðanna fóru í sölu,
seldust þeir upp á átta klukku-
stundum.
Leikritið er einskonar framhald
bókanna sjö um galdrastrákinn
Potter; það fjallar um son hans,
Albus Severus, og glímu hans við
fjölskylduarfleifð sem hann kærir
sig ekki um. Rowling aðstoðaði
leikskáldin Jack Thorne og John
Tiffany við skrifin.
Aðdáendur sagnabálksins stóðu
margir klukkustundum saman í
röðum við miðasölustaði og eru
miðar nú sagðir skipta um hendur
fyrir allt að 200 þúsund krónur.
175.000 miðar á
Potter-leikrit seld-
ust samdægurs
J.K. Rowling
Bandaríski
myndlistarmað-
urinn John Zur-
ier heldur opinn
fyrirlestur um
verk sín og
vinnuaðferðir, í
fyrirlestrasal
myndlistar-
deildar LHÍ á
Laugarnesvegi
91 í hádeginu í dag, föstudag,
klukkan 13.
John Zurier (1956) hefur dvalið
langdvölum hér á landi undanfarin
ár og unnið hér að list sinni.
Hann býr og starfar í Berkeley,
Kaliforníu og verk hans hafa verið
sýnd víða í Bandaríkjunum og Evr-
ópu og eiga fjölmörg stærri söfn
verk eftir hann, meðal annars Mod-
erna Museet í Svíþjóð og San
Francisco Museum of Modern Art.
Zurier var prófessor í málun hjá
San Francisco Art Institute.
Fjallar um verk sín
og vinnubrögð
John Zurier
Í tilefni af því að bók Aðalsteins Ing-
ólfssonar listfræðings um ævi og
listsköpun Errós er komin út á
ensku, tók listamaðurinn á móti
gestum og áhugasömum kaupendum
á Hótel Borg í gær og áritaði bækur.
Fylgdu tölusett grafíkverk bók-
unum.
Bók Aðalsteins kom út á íslensku
árið 1994 en nefnist á ensku Erró –
A Lifescape. Philip Roughton þýddi.
Í bókinni fjallar Erró um líf sitt,
list og upplifanir, auk þess sem rætt
er við marga vini hans, samstarfs-
menn og samherja í listinni.
Erró er nú á níræðisaldri en starf-
ar enn af krafti að list sinni. Hann
nam og vann víða um heim á mót-
unarárum sínum, meðal annars í
Flórens, New York og Moskvu en
hefur lengstum verið búsettur í Par-
ís. Í tilkynningu um útgáfu bók-
arinnar, Forlaginu, segir að Erró sé
nú sem fyrr afkastamikill og afar
hugmyndaríkur, á stundum um-
deildur heimsborgari en ætíð Íslend-
ingur í hjarta sínu.
Höfundurinn, Aðalsteinn Ingólfs-
son, hefur skrifað fjölda bóka um
myndlist af ýmsu tagi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árituðu Erró og Aðalsteinn Ingólfsson árituðu eintök af bókinni fyrir gesti.
Ný ensk þýðing á bók
Aðalsteins um Erró