Morgunblaðið - 30.10.2015, Page 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2015
Krabbamein er skæðursjúkdómur. Árið 2012greindust 14 milljónirmanna með krabbamein.
8,2 milljónir manna létu lífið. Á
heimasíðu Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna, WHO,
segir að tíðni krabbameins muni á
næstu tveimur áratugum aukast um
70%. Orsakir krabbameins eru
margar, einhvers konar blanda af
umhverfi og erfðum, allt eftir því
hvert meinið er.
Hætturnar leynast víða. Stöðugt
berast fréttir af nýjum krabba-
meinsvöldum og
gömlum. Fyrr í
vikunni birti al-
þjóðleg miðstöð
um krabbameins
rannsóknir á veg-
um WHO-skýrslu
þess efnis að unn-
ar kjötvörur
væru krabba-
meinsvaldandi og
væru skinka, beikon og pulsur
nefndar í sömu andrá og sígarettur.
Barátta í myrkri
Baráttan við krabbamein hefur verið
erfið og hörð og að mestu leyti farið
fram í myrkri. Þessi sjúkdómur hef-
ur verið vísindamönnum ráðgáta frá
upphafi vega. Fyrir fimm árum kom
út bókin Meistari allra meina – ævi-
saga krabbameins eftir Siddhartha
Mukherjee. Bókin er mikið stór-
virki. Þetta var fyrsta bók höfundar
og hlaut hann Pulitzer-verðlaunin
fyrir. Bókin er nú komin út á ís-
lensku í þýðingu Ólafar Eldjárn.
Þýðingin hefur ekki verið áhlaupa-
verk og er frábærlega unnin, þótt á
stöku stað megi finna hnökra í þessu
mikla lesmáli. Útgefandi fær sér-
stakt hrós fyrir að halda til haga til-
vísunum og nafna- og atrið-
isorðaskrá.
Mukherjee er krabbameinslæknir
og skrifar af miklu innsæi. Hann
segir söguna ekki aðeins frá sjón-
arhóli læknisfræðinnar, heldur einn-
ig sjúklinga. Í upphafi vitnar hann í
Susan Sontag: „Sjúkdómar eru
skuggahlið lífsins, þungbærari borg-
araréttur. Allir sem fæðast eru með
tvöfaldan borgararétt, í konungsríki
hinna heilbrigðu og í konungsríki
hinna sjúku. Þótt við vildum öll helst
aðeins nota góða vegabréfið mun
koma að því fyrr eða seinna að sér-
hvert okkar þarf, að minnsta kosti
um stundarsakir, að kynna sjálft sig
sem borgara hins staðarins.“
Mukherjee segir frá leitinni að
eðli og lækningu krabbameins af
slíkri innlifun og hluttekningu að
frásögnin verður á köflum ekki bara
grípandi heldur spennandi.
Höfundurinn kemur víða við.
Lesturinn veitir glögga innsýn í vís-
indaheim þar sem heill her manna
leggur hönd á plóg. Hver og einn
stígur kannski örlítið skref á heilli
starfsævi, en framlag hans verður til
þess að til verður einhvers konar
heildarmynd, jafnvel nokkrum kyn-
slóðum síðar.
Í bókinni koma fyrir persónur,
sem helga sig alfarið vísindunum og
láta allt annað víkja. Þar er einnig að
finna hrokagikki og oflátunga,
keppinauta og samherja.
Á villigötum
Stundum liggur leið lækna inn á
slíkar villigötur að erfitt er að átta
sig á því hvernig það gat gerst.
Átakanlegt er að lesa um öfgar í
skurðaðgerðum og lyfjameðferð,
sem um tíma voru viðteknar. Heilar
kynslóðir skurðlækna vildu ganga
svo langt til að komast fyrir krabba-
mein að sjúklingar voru limlestir eft-
ir án þess að neinar vísindalegar nið-
urstöður lægju að baki hinu róttæka
inngripi.
Mukherjee segir að á þeim nær
hundrað árum, sem róttækt brjóst-
nám tíðkaðist hafi um hálf milljón
kvenna farið í róttækt brjóstnám.
1981 birtust niðurstöður tilraunar
þar sem þrír hópar voru bornir sam-
an um gagnsemi þessara aðgerða.
„Hlutfall endurkoma brjóstakrabba,
bakslaga, dauða og meinvarpa ann-
ars staðar var tölfræðilega eins hjá
öllum hópunum þremur. Í hópnum
sem hafði undirgengist róttækt
brjóstnám voru veikindi mikil en
hann græddi ekkert hvað varðaði
lífslíkur, endurkomu eða dán-
artíðni,“ skrifar Mukherjee og bætir
við nokkrum línum síðar: „Þegar
róttækar skurðaðgerðir lögðust af
hrundi því um leið heill heimur inn-
an skurðlækninga.“
Síðar kom kynslóð róttækra sér-
fræðinga um lyfjagjöf, sem vildi
eyða hverri einustu frumu líkamans
ef hún skipti sér. Frásögnin af þeim
minnti á sögur af herjum, sem eyddu
þorpum til að bjarga þeim.
Fyrsta lýsingin á krabbameini er
úr handriti frá því kringum 2625 fyr-
ir Krist. Þar lýsir læknirinn Imho-
tep einkennum, sem gætu ekki verið
skýrari lýsing á brjóstakrabbameini,
eins og Mukherjee orðar það. Undir
liðnum meðferð stendur aðeins:
„Engin slík til.“ Næst er krabba-
meins getið svo vitað sé tvö þúsund
árum síðar. Einnig hafa fundist
krabbameinsæxli í múmíum, það
elsta frá því um það bil 400 eftir
Krist.
Krabbamein virðist ef til vill ekki
hafa verið algengt fyrr á öldum, en
þar kemur þrennt til. Krabbamein
er aldurstengt og fólk lifði skemur.
Þá grasseruðu einnig ýmsir skæðir
sjúkdómar, sem hefur tekist að
vinna á eða halda í skefjum. Að síð-
ustu hefur krabbamein að öllum lík-
indum verið vangreint.
Lengi vel var áherslan svo mikil á
að lækna krabbamein þótt það væri
ólæknandi að umönnun sjúklingsins
varð útundan. Í stað þess að lina ein-
kennin var ráðist gegn þeim. Oft var
þeim, sem ekki var hugað líf, ýtt til
hliðar. Ef þeir sæjust ekki þyrfti
ekki að hugsa um þá. Dauði þeirra
var ósigur læknisfræðinnar.
Ný viðhorf og framfarir
Krabbamein er einn algengasti sjúk-
dómur samtímans. Lengi vel ríkti
einhvers konar bannhelgi yfir
krabbameini og það var ekki rætt. Í
hugum manna var sjúkdómsgrein-
ingin jafngild dauðadómi. Hvernig á
að horfa framan í dauðadæmdan
mann? Það er sem betur fer breytt
þótt enn megi margt betur fara.
Enn hefur ekki fundist lækning
við krabbameini þótt miklar fram-
farir hafi orðið. Mestar eru þær í að
greina sjúkdóminn á byrjunarstigi.
Því fyrr, sem meinið greinist, þeim
mun líklegra er að sjúklingurinn
sleppi lífs.
Meistari allra meina er snilld-
arlega skrifuð bók. Mukherjee segir
flókna sögu með skýrum hætti.
Hann nálgast efnið frá öllum hliðum,
heimspeki, sálfræði, sagnfræði,
læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði og
náttúruvísindum. Textinn er skýr og
aðgengilegur þannig að flókin vís-
indi verða skýr þannig að jafnvel
ólesinn leikmaður á ekki í vandræð-
um með að átta sig.
Í konungsríki hinna sjúku
Fræðirit
Meistari allra meina bbbbn
Eftir Siddhartha Mukherjee.
Þýðing Ólöf Eldjárn.
Forlagið, 2015. Innbundin, 610 bls.
KARL BLÖNDAL
BÆKUR
AFP
Saga krabbameins Siddartha Mukherjee fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir
bók sína Meistari allra meina sem nú er komin út í íslenskri þýðingu.
Evrópusam-
bandið hefur
hætt við að fram-
fylgja áður til-
kynntu banni við
framleiðslu og
notkun skærra
lita sem byggjast
á kadmíum-
efnum, eftir að
myndlistarmenn
höfðu mótmælt
banninu kröftuglega. Svíar höfðu
farið fram á bannið, sögðu hættu-
legt kadmíum fara út í umhverfið
þegar penslar væru hreinsaðir, en
nú er sagt að kadmíum-mengun
stafi aðallega af rafhlöðum. Kadmí-
um-litir hafa verið vinsælir síðan
um 1840.
Fá að mála með
kadmíum-litum
Cézanne notaði
kadmíum-liti.
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn
Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn
Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn
Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn
Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Sun 1/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn
Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 18.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 31/10 kl. 20:00 3.sýn Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Mið 25/11 kl. 19:30 8.sýn
Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Mið 2/12 kl. 19:30 9.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 1/11 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn
Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 31/10 kl. 15:00 Lau 7/11 kl. 13:30 Lau 7/11 kl. 15:00
Síðustu sýningar.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 30/10 kl. 19:30 Frums. Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 31/10 kl. 19:30 2.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 1/11 kl. 14:00 Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Sun 1/11 kl. 16:00 Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Lau 28/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 17:00
DAVID FARR
HARÐINDIN
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Fim 3/12 kl. 19:00
Fim 12/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fös 4/12 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 11/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Lau 12/12 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 1/11 kl. 20:00 Sun 8/11 kl. 20:30
Allra síðustu sýningar!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 30/10 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 11/12 kl. 20:00
Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Fös 18/12 kl. 20:00
Fim 12/11 kl. 20:00 aukas. Lau 5/12 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 29/11 kl. 13:00
Sun 8/11 kl. 13:00 9.k Sun 22/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/10 kl. 20:00 1.k. Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k.
Lau 31/10 kl. 20:00 2 k. Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Sun 1/11 kl. 20:00 3.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Lau 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fös 4/12 kl. 20:00
Þri 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 12/12 kl. 20:00
Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Mið 25/11 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Lau 28/11 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Sun 1/11 kl. 20:00 9.k Sun 8/11 kl. 20:00 12.k Fim 19/11 kl. 20:00
Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Fim 26/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Mið 18/11 kl. 20:00 Fös 27/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Sun 29/11 kl. 20:00
Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Fim 19/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 26/11 kl. 20:00
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Mið 11/11 kl. 20:00 aukas.
Allra síðusta sýning!
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00
Sun 15/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
Dúkkuheimili, allra síðustu sýningar!
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
.. — —
Nazanin (Salur)
Mið 18/11 kl. 20:30
Lokaæfing (Salur)
Lau 31/10 kl. 20:30 Sun 8/11 kl. 19:00 Fös 13/11 kl. 20:30
Lífið (Salur)
Sun 1/11 kl. 13:00 Sun 15/11 kl. 13:00 Lau 21/11 kl. 13:00
Petra (Salur)
Fös 30/10 kl. 19:00
Ævintýrið um Augastein (Salur)
Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
This conversation is missing a point (Salur)
Mið 11/11 kl. 20:30 Þri 17/11 kl. 20:30