Morgunblaðið - 30.10.2015, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 30.10.2015, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 303. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Heiða Rún heillaði Bretaprins 2. Kallaði Cameron „guðföður“ 3. Stormviðvörun í hitabylgju 4. Breski fáninn sneri öfugt »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í tilefni af 10. starfsári Landnáms- setursins í Borgarnesi mun leikarinn Benedikt Erlingsson flytja einleik sinn um Egil Skallagrímsson á nokkr- um sýningum og verður sú fyrsta í kvöld kl. 20. Benedikt frumsýndi ein- leikinn við opnun Landnámssetursins árið 2006 og sló sýningin í gegn. Árið eftir hlaut Benedikt tvenn Grímu- verðlaun fyrir sýninguna, fyrir besta handrit og besta leik í aðalhlutverki. Morgunblaðið/Styrmir Kári Benedikt snýr aftur  Margmiðlunar- fyrirtækið Gaga- rín hlaut í vikunni tvenn verðlaun í þýsku hönnunar- samkeppninni German Design Awards 2016, fyrir gagnvirk atriði í Villihreindýrasýn- ingu í Noregi og Mannréttinda- safninu í Kanada. Verðlaunaafhend- ingin fer fram í Þýskalandi í febrúar 2016. Kristín Eva Ólafsdóttir er einn eigenda Gagarín. Tvenn verðlaun fyrir hreindýrasýningu  Dægurlagasöngvarinn Benóný Æg- isson efnir til útgáfuhófs og tónleika í Gunnarshúsi, húsi Rithöfunda- sambandsins, í dag kl. 17 í tilefni af útgáfu plötunnar ÓÐUR sem er önnur plata Benónýs. Í útgáfuhófinu mun söngvarinn hamra á Trab- antpíanó Rithöfundasam- bandsins og syngja gömul lög og ný. Benóný hamrar á Trabantpíanó Á laugardag Breytileg átt, 5-10 m/s og rigning eða slydda um tíma en léttir síðan til V-lands. Hiti 0 til 6 stig. Á sunnudag Gengur í suðvestan og sunnan 13-18 m/s með rign- ingu eða slyddu en hægara og úrkomulítið NA-lands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-13 og rigning eða slydda með köflum, einkum SA-til. Hvessir um tíma SV-til í kvöld. Kólnandi. VEÐUR Íslandsmeistarar Hauka fögnuðu sigri gegn bikar- meisturum ÍBV þegar liðin áttust við í Olís-deildinni í handknattleik í Eyjum í gærkvöld. Afturelding átti frábæran endasprett og lagði ÍR, FH-ingum tókst loks að vinna, en þeir höfðu betur á móti Gróttu í Kaplakrika, og Fram gerði góða ferð í Víkina og burstaði Víking. » 2-3 Haukar unnu meistaraslaginn „Þetta er alveg glatað. Rifbeinið er að öllum líkindum brákað,“ sagði Guð- björg Gunnarsdóttir, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, sem meiddist í leik Íslands og Slóveníu á mánudag. Hún er nú komin aftur til Noregs en getur ekkert æft með liði sínu Lille- ström, enda segja sjúkraþjálfarar liðsins rifbein brákað. Guð- björg lifir í voninni um að geta mætt Evrópumeisturum Frankfurt í „draumaleikjum“ sínum, eins og hún orðaði það, í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evr- ópu. Vonin er hins vegar afar veik. »1 Guðbjörg missir líklega af „draumaleikjunum“ Þór Þorlákshöfn hafði betur í Suður- landsslagnum gegn FSu þegar liðin áttust við í Dominos-deild karla í körfuknattleik í gærkvöld. Snæfell gerði góða ferð í Grindavík og lagði heimamenn, ÍR-ingar fögnuðu góðum sigri á móti Stjörnunni á heimavelli og Haukar áttu ekki í vandræðum með að leggja Tindastól að velli á Sauðárkróki. »2-3 Snæfell gerði góða ferð í Grindavík ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ný útgáfa Flateyjarbókar á norsku verður kynnt með nokkrum erind- um í húsi Íslenskrar erfðagrein- ingar í dag. Fyrsta bindið af sjö kom út í fyrra og nú hefur annað bindið verið gefið út, en gert er ráð fyrir að útgáfan í heild verði komin á mark- að eftir fjögur til fimm ár. Lærdóms- setrið á Leiru- bakka í Land- sveit hefur aðstoðað við norsku útgáf- una, en setrið beitir sér meðal annars fyrir rannsóknum á því hvernig Ísland byggðist og mót- un mannlífs og þjóðfélags. Það hef- ur gengist fyrir ráðstefnum og fundum og aðstoðað við útgáfu á norrænu efni. Í fræðastjórn eru norrænufræðingar, fornleifafræð- ingar og íslenskufræðingar. Einn þeirra er Torgrim Titlestad, pró- fessor við Stavanger-háskóla, sem sér um útgáfu Flateyjarbókar. Norska forlagið Saga Bok gefur út Flateyjarbók og Lærdómssetrið kemur hugsanlega að nýrri útgáfu hennar á íslensku, þar sem notaðar verða sömu myndir og eru í nýju, norsku útgáfunni. Sérstök útgáfa Anders Hansen, framkvæmda- stjóri Lærdómssetursins, segir að útgáfan sé að öllu leyti mjög sér- stök. Þýðing Torgrims Titlestads sé ný, eins skýringar, sem og formálar þjóðhöfðingja Íslands, Noregs og Danmerkur, auk myndskreytinga Anders Kvåle Rue myndlistar- manns. Bókin sé í stóru broti og bundin í geitarskinn. „Þetta er dýr bók, kostar um 690 norskar krónur hvert bindi, sem er um 400 síður,“ segir Anders. „Fyrsta bindið fékk gríðarlega góð- ar viðtökur og hefur selst í yfir 5.000 eintökum.“ Ein merkasta bókin Flateyjarbók er safn sagna af Noregskonungum, stærst íslenskra skinnbóka og með merkustu hand- ritum íslenskra bókmennta. Hún var skrifuð að beiðni Jóns Hákonarson- ar, bónda í Víðidalstungu í Víðidal á árunum 1387-1394. Anders segir að kenning Torgrims Titlestad sé að Jón hafi haft mikið um efni bókar- innar að segja, en á morgun ætla Norðmennirnir að afhenda bændum og kirkjunni í Víðidalstungu nýju út- gáfuna. Einnig ætla þeir að fara að Þingeyrum og gefa kirkjunni þar bækurnar. „Sumir hafa sagt í gríni og alvöru að bókin hafi átt að heita Víðidalstungubók,“ segir Anders. Sumt af efni Flateyjarbókar er til annars staðar, en Anders bendir á að heilmikið efni sé ekki til í öðrum handritum. Bókin hafi síðast komið út á Íslandi 1946 og sé fáum að- gengileg. Því sé kominn tími á nýja, íslenska útgáfu. Hún verði hugsan- lega að veruleika í kjölfar norsku út- gáfunnar og þá séu hugmyndir um að gefa hana líka út á ensku. „Heimskringla er heilög bók í Nor- egi en Torgrim Titlestad segir að Flateyjarbók sé ekki síður merkileg bók,“ segir Anders. Saga Bok, norska sendiráðið í Reykjavík og Lærdómssetrið standa að kynningunni í salnum Fróða og hefst hún klukkan 16.30. Þá flytja ávörp og ræður Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofn- unar, Torgrim Titlestad, Anders Kvåle Rue og Cecilie Landsverk, sendiherra Noregs á Íslandi. Hall- vard T. Björgum, einn kunnasti fiðluleikari Noregs, leikur á hina fornu Harðangursfiðlu og verða listaverk sem prýða nýju útgáfuna til sýnis. Flateyjarbók á norsku  Ný ríkulega myndskreytt út- gáfa kynnt Landnám Svona sér Anders Kvåle Rue fyrir sér að Ingólfur Arnarson hafi komið að öndvegissúlunum í Reykjavík. Torgrim Titlestad Ritun Jón Hákonarson ræðir efni Flateyjarbókar við Jón Þórðarson og Magnús Þórhallsson skrifara. Flateyjarbók Norska bókarkápan. Anders Hansen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.