Morgunblaðið - 10.03.2016, Side 23

Morgunblaðið - 10.03.2016, Side 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MARS 2016 Starfsfólk Minja- stofnunar Íslands ger- ir athugasemdir við eftirtalin atriði sem fram komu í viðtali við Sigurð Örn Guðleifs- son, skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, í Morgunblaðinu 2. mars sl. Í viðtalinu kom fram að markmið ráðuneyt- isins með sameiningu Þjóðminjasafns (ÞJMS) og Minja- stofnunar (MÍ) væri að styrkja málaflokkinn og að tekið væri tillit til efnislegra athugasemda sem þjóna sama tilgangi. Ekki verði þó fallið frá áformum um sameiningu. Síðari fullyrðingin felur í sér að áformin verði ekki endurskoðuð þrátt fyrir að fram komi athuga- semdir sem sýna fram á veigamikla ókosti sameiningar. Þetta er í sam- ræmi við allan undirbúning málsins. Lítið tillit hefur verið tekið til at- hugasemda þrátt fyrir að öðru sé haldið fram og vísað sé til víðtæks samráðs. Fram kom að hnykkja eigi á hlut- verki ÞJMS í vísindarannsóknum, vegna framkominnar gagnrýni, en þær eru mikilvægur þáttur í starf- semi safnsins. Á sviði fornleifa verði þó ekki um að ræða framkvæmda- rannsóknir þar sem þær séu á sam- keppnismarkaði. Jákvætt er að mik- ilvægi vísindarannsókna í starfsemi safnsins sé viðurkennt. Hinsvegar stunda aðilar á samkeppnismarkaði einnig vísindarannsóknir á sviði fornleifa og fá til þess styrki. Bæði vísinda- og framkvæmdarannsóknir eru leyfis- og eftirlitsskyldar og fer MÍ með veitingu leyfa og eftirlit. Verði af sameiningu stofnana mun sameinuð stofnun fara með veitingu leyfa til sjálfrar sín og hafa eftirlit með sjálfri sér. Hvað gerist ef stofn- unin sjálf og aðili á samkeppnis- markaði vilja rannsaka sömu forn- leifarnar? Ekki er talin ástæða til að hafa áhyggjur af hagsmunaárekstrum í sameinaðri stofnun þar sem reglur um vanhæfi í stjórnsýslurétti séu skýrar. Starfsfólk MÍ og aðrir hafa bent á augljósa hagsmunaárekstra á ýmsum sviðum. Sé ekkert í vanhæf- isreglum sem kveður á um að óeðli- legt sé að stofnun fari með leyfis- veitingar til sjálfrar sín, hafi eftirlit með sjálfri sér, taki stjórnsýsluákv- arðanir í málefnum aðila sem hún þiggur styrki frá eða hefur gert fjár- hagslega samninga við þá þarf að endurskoða þær reglur. Nýkynnt frumvarp er sagt vera hluti af endurskoðun laga sem hafin var á sl. ári og haft hafi verið víðtækt samráð um. Ákveðið hafi verið að bíða með framlögn þess og fella inn í stærra frumvarp sem næði yfir samein- ingu stofnana. Um- rædd endurskoðun, sem MÍ fékk til um- sagnar í september 2015, varðaði aðeins örfáar lagagreinar og er aðeins lítið brot af því sem ný- kynnt frumvarp inniheldur. Vísað er til samráðs um síðari breytingar frumvarpsins því for- stöðumenn beggja stofnana og fulltrúar starfsfólks þeirra hafi setið í stýrihópi um sameininguna. Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Hvorki forstöðumaður MÍ sem var í umræddum stýrihópi né fulltrúi starfsmanna MÍ vissu af eða sáu ný- kynnt frumvarp fyrr en eftir að það hafði verið kynnt opinberlega sem tillaga stýrihópsins. Fram kom að Capacent hefði haft samráð við fjölda hagsmunaaðila vegna vinnu við svokallaða fýsileika- greiningu. Það hefur vakið athygli hagsmunaaðila að hvergi er minnst á þá gagnrýni sem þeir settu fram á fundum með Capacent né að við- mælendur hafi lagst gegn samein- ingaráformunum, líkt og fram- komnar athugasemdir, ályktanir og fundargerðir hafa sýnt. Ekki var talin ástæða til að skoða sameiningu MÍ við aðrar stjórn- sýslustofnanir t.d. á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Sameining við ÞJMS þótti nærtækust vegna marg- falt stærri snertiflata verkefna. Þessa ályktun drógu aðilar án þess að framkvæma greiningu á verk- efnum stofnananna. Þrátt fyrir fýsi- leikakönnun Capacent gætir enn misskilnings á verkefnum þeirra og snertiflötum. Í greinargerð ný- kynnts frumvarps er t.d. fjallað um helstu verkefni MÍ af mikilli van- þekkingu. Hvergi er minnst á um- fangsmestu verkefni stofnunarinnar s.s. umsagnir um umhverfismöt, skipulagsmál og fyrirhugaðar fram- kvæmdir. Verkefnagreiningin er augljóslega röng og því ekki að furða að aðilar sjái ekki snertifleti við aðrar stofnanir í réttu ljósi. Inn- an við 10% af ríflega 1.100 málum í málakerfi MÍ árið 2015 tengjast á einhvern hátt verkefnum ÞJMS. Sé eingöngu litið til mála sem kröfðust raunverulega samstarfs eða sam- skipta við safnið þá eru þau talsvert færri. Ein rök fyrir sameiningunni eru stefna stjórnvalda um fækkun op- inberra stofnana og viðmið fjár- málaráðuneytisins að ekki verði reknar stofnanir með færri en 30-50 starfsmönnum. Markmið þeirrar stefnu er hagræðing, þ.e. að skapa fjárhagslegan og faglegan ávinning með samlegðaráhrifum. Fyrirhuguð sameining og nýkynnt frumvarp nær hvorugu markmiðinu og því eðlilegt að spurt sé í hverju ávinn- ingurinn felist. Frumvarpið er ekki sagt fela í sér aukin útgjöld og er dregin í efa ábending um að fjölga þurfi stöðu- gildum í forsætisráðuneytinu vegna tilfærslu verkefna frá stofnuninni til ráðuneytisins. Verkefnin sem til stendur að flytja eru m.a. ráðgjöf til sveitarfé- laga vegna mótunar tillagna um verndarsvæði í byggð og tillögugerð vegna friðlýsinga húsa og mann- virkja. Það er mat starfsfólks MÍ að til að sinna þessum verkefnum þurfi yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu s.s. á sviði byggingarsögu, arkitektúrs, sagnfræði og fornleifafræði. Það mat byggist á reynslu starfsfólks MÍ af því að sjá um þessi og hlið- stæð verkefni um árabil. Skrif- stofustjóri ráðuneytisins virðist hinsvegar telja að þekking á lögum geri aðila að sérfræðingum í mál- efnum húsverndar og byggingar- sögu. Umrætt frumvarp felur að auki í sér umtalsverða fjölgun afgreiðslu- mála sem mun óumflýjanlega krefj- ast fleiri starfsmanna með tilheyr- andi útgjöldum. Ákvæði sem nú eiga eingöngu við um friðlýst hús, sem eru um 500, munu einnig gilda um aldursfriðuð hús sem eru a.m.k. 3.500. Í frumvarpinu er eigendum ald- ursfriðaðra húsa gert að tilkynna ef hús verður fyrir spjöllum og stofn- uninni gert að meta tjónið. Eftirlit með aldursfriðuðum húsum verður aukið og stofnuninni falið að leggja fyrir eigendur þeirra að gera um- bætur ef viðhald er vanrækt. Bæði ákvæðin gilda nú eingöngu um frið- lýst hús. Eigendum aldursfriðaðra húsa verður gert að leita eftir heimild ef setja á skilti eða aðrar áletranir á hús. Eigendur munu því t.d. þurfa að sækja um heimild fyrir því að merkja húsið sitt með húsnúmeri. Eigendum friðlýstra húsa verður gert að afla formlegs leyfis fyrir öll- um endurbótum og viðhaldi, s.s. málningarvinnu og öðru minniháttar viðhaldi. Af ofangreindu ætti að vera aug- ljóst að frumvarpið felur í sér veru- leg útgjöld fyrir ríkissjóð og aukið flækjustig og kostnað fyrir eigendur aldursfriðaðra og friðlýstra húsa. Áréttað skal að starfsfólk MÍ er ekki mótfallið sameiningu um- ræddra stofnana við aðrar stofnanir. Sameiningar þurfa hins vegar að vera til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem stefnt er að, þ.e. auknu hagræði – bæði fjárhagslegu og faglegu. Eftir Esther Önnu Jóhannsdóttur » Það er mat starfsfólks MÍ að til að sinna þessum verkefnum þurfi yfirgripsmikla sérfræði- þekkingu s.s. á sviði byggingarsögu, arki- tektúrs, sagnfræði og fornleifafræði. Esther Anna Jóhannsdóttir Höfundur er fjármálastjóri og skrifar fyrir hönd starfsfólks Minjastofnunar. Sameiningin ekki hagkvæm Brátt skal kjósa nýjan forseta. Ekki er skortur á frambjóð- endum. Forsetinn er, eftir að Ólafur bylti embættinu, einn valdamesti maður landsins. Manni hrýs hugur við að í emb- ættið gæti valist ein- hver jólasveinn eða trúður, sem ekki kynni að fara eins vel með valdið og Ólafur. Skeð gæti það, lýðveld- inu og þjóðinni til stórskaða. Betra er að byrgja brunninn, áður en barnið er dottið ofan í. En hvað kæmi í staðinn? Eftirfarandi eru staðreyndir: 1. Reynslan sýnir að ekki gengi að forseti þingsins eða forsætisráð- herra tæki við embættinu. Hefðu t.d. Jóhanna og Steingrímur farið með valdið þá væri þjóðin nú í skuldafangelsi um ófyrirsjáanlega framtíð. 2. Forsetinn hefur með þjóð- aratkvæðagreiðslum komið í veg fyrir stór- slys af völdum stjórn- valda. Nærtækast er að þjóðaratkvæðagreiðsl- ur komi í stað forseta. Þær eru þannig í Sviss að umdeild málefni eru krufin til mergjar og kynnt almenningi, sem kýs vel upplýstur um málið. Hefðum við haft slíkt kerfi væri löngu búið að byggja spítala á öðrum stað en við Hring- braut og eingetið afkvæmi borgar- stjóra, Rögnunefndin, hefði aldrei fæðst. Í Sviss er líka kosið um mál- efni sveitarfélaga, eins og t.d. for- gangsröðun framkvæmda, breyt- ingar á deiliskipulagi og nýbyggingar í grónum hverfum. Ekki virðist vanþörf á slíku fyr- irkomulagi hjá okkur. Vilja þjóðarinnar má fá fram með því að hafa á atkvæðaseðlinum þjóðaratkvæði sem valkost að krossa við líkt og við frambjóð- endur. Fái þjóðaratkvæði flest at- kvæði verður að semja og sam- þykkja lög um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ekki þarf að finna upp hjólið. Það er í Sviss og fljótlegt að aðlaga það okkar að- stæðum. Við gætum eflaust fengið ráðgjöf frá Sviss um lagfæringar á því, sem þeim kann að finnast ábótavant hjá sér. Þannig gætum við eignast bestu lög um þjóðar- atkvæðagreiðslur, öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Fyrir túristana mætti breyta Bessastöðum í safn um sjálfstæð- isbaráttuna og forsetana. Einnig hafa þar móttökur fyrir erlendra þjóðhöfðingja eða gesti og þess háttar uppákomur. Slíkur rekstur yrði mikið ódýrari en rekstur emb- ættisins er í dag. Mismuninum og aðgangseyri að safninu væri vel varið til Fjölskylduhjálparinnar. Eftir Sigurð Oddsson »Hefðum við haft slíkt kerfi væri löngu bú- ið að byggja spítala. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur. Þjóðaratkvæðagreiðslur Hafnargata Seyðisfjörður Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu s.580 7905 eða á www.inni.is. Gott hús á frábærum stað við Hafnargötu á Seyðisfirði sem hentað getur fyrir hverskonar þjónustustarfsemi s.s. veitinga- eða kaffihús og margt fleira. Húsið er í góðu ástandi og hefur síðustu misseri hýst starfsemi Landsbankans og Íslandspósts. Rúmgóður bílskúr er við húsið og lóð er frágengin með bundnu slitlagi með góðum bílastæðum. Hellulagt er hringinn í kringum húsið og hiti er í stétt framan við inngang. Heildarstærð eignarinnar er 223,0 m². Langahlíð Seyðisfjörður Nánari upplýsingar hjá INNI fasteignasölu s.580 7905 eða á www.inni.is. Einstakt tækifæri í ferðaþjónustu, fyrirtæki í fullum rekstri. Um er að ræða þrjú heilsárshús í norðanverðum Seyðisfirði, ca 3 km frá þéttbýlinu. Húsin eru 53,7 m² (byggð 2005, 2008 og 2013) og eru þau öll fullbúin með þremur svefnherbergj- um (svefnpláss fyrir 6 í hverju húsi), stórri timburverönd, heitum potti og síðast en ekki síst stórkostlegu útsýni yfir Seyðisfjörð. Árið 2015 gistu 1263 manneskjur í húsunum en nú þegar eru komnar 1298 bókanir fyrir árið 2016.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.