Morgunblaðið - 22.03.2016, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Norður-kóreskar hersveitir skutu í
gær á loft fimm skammdrægum
flugskeytum og höfnuðu þau í sjón-
um úti fyrir austurströnd landsins.
Voru þá einungis liðnir fáeinir sólar-
hringar frá því að ráðamenn í Pyon-
gyang gáfu skipun um að skjóta á
loft tveimur flugskeytum, með með-
aldrægni, en flaugarnar fóru um 800
kílómetra vegalengd áður en þær
féllu í hafið austur af landinu.
Fréttaveita AFP greinir frá því,
og vitnar til herforingjaráðs Suður-
Kóreu, að flaugunum fimm hafi verið
skotið á loft frá borginni Hamhung í
austurhluta Norður-Kóreu. Er nú
unnið að því að greina tegund þeirra.
Stjórnvöld í Washington DC vest-
anhafs hvetja ráðamenn í Pyon-
gyang til að halda ró sinni og vera
ekki að auka á spennuna. En tíð til-
raunaskot Norður-Kóreu að undan-
förnu eru einkum komin til vegna
hertra refsiaðgerða Bandaríkjanna í
þeirra garð eftir ólögmætar kjarn-
orkutilraunir á Punggye-ri-kjarn-
orkutilraunasvæðinu afskekkta.
Gáleysislegar ögranir
Eldflaugaskotið fyrir helgi, þar
sem tveimur flugskeytum með með-
aldrægni var skotið á loft, er hið
fyrsta sinnar tegundar í um tvö ár,
en flaugarnar geta borið kjarnaodd.
Park Geun-Hye, forseti Suður-
Kóreu, varar við því sem hann kallar
„mjög örlagaríkan tíma“ fyrir Kór-
euskaga. „Þrátt fyrir að alþjóðasam-
félagið hafi samþykkt harðar vítur,
heldur Norður-Kórea áfram sínum
gáleysislegu ögrunum sem birtast í
nýlegum skipunum Kim Jong-Un,“
hefur AFP eftir forsetanum.
Eru stjórnvöld í Seúl nú búin und-
ir frekari kjarnorkutilraunir á Pung-
gye-ri-svæðinu í Norður-Kóreu. „Við
erum þeirrar skoðunar að fimmta
kjarnorkutilraunin geti gerst hve-
nær sem er,“ segir embættismaður.
Seúl varar við „ör-
lagaríkum tíma“
Fimm flugskeytum skotið á loft í gær
AFP
Ógn Leiðtoginn Kim Jong-Un fylg-
ist hugfanginn með tilraunaskoti.
Búið er að opna á
ný fyrir flug-
umferð um al-
þjóðaflugvöllinn
í rússnesku borg-
inni Rostov-on-
Dom, en starf-
semi þar lagðist
af í kjölfar brot-
lendingar Boeing
737 farþegaþotu
FlyDubai síðast-
liðinn laugardag.
„Starfsemi flugvallarins er nú
komin á fullt,“ hefur fréttaveita
AFP eftir talsmanni vallarins, en
fjarlægja þurfti brak vélarinnar af
flugvallarsvæðinu eftir að farþega-
þotan skall harkalega niður við
brautarendann og varð við það
alelda. Mátti um tíma finna brak á
um 1,5 km2 stóru svæði. Um borð í
farþegavélinni voru alls 62 og lét-
ust þeir allir í slysinu.
Vélin var á leið til Rússlands frá
Dúbaí og voru veðuraðstæður á
slysstað afar krefjandi. Hafði flug-
stjórinn hætt við lendingu skömmu
áður en vélin brotlenti. Orsök slyss-
ins er enn óljós. khj@mbl.is
RÚSSLAND
Búið að fjarlægja
brakið af slysstað
Brak vélarinnar
var á stóru svæði.
Lögreglan í Indónesíu hefur hand-
tekið þrjá menn sem grunaðir eru
um að hafa ráðist á sjötuga konu í
þorpinu Buya, sem er á Sula-eyja-
klasanum í Indónesíu, og brytjað
hana í sundur með sveðjum. Báru
árásarmennirnir því við að konan
væri norn og því réðust þeir á hana
með fyrrgreindum afleiðingum.
Fréttaveita AFP segir einn hinna
handteknu halda því fram að konan
hafi lagt álög á eiginkonu hans. „Á
meðan hún var veik, þá leið henni
oft eins og hún væri í álögum og
sagði gömlu konuna standa fyrir
því,“ hefur AFP eftir lögreglu-
manni. „Eiginmaðurinn trúði þessu
og leitaði að henni ásamt vinum.“
Stór hópur fólks fylgdi eigin-
manninum og vinum hans að húsi
konunnar en aðeins þrír fóru þang-
að inn og myrtu hana. khj@mbl.is
INDÓNESÍA
Kona myrt vegna
gruns um galdra
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Lögreglan í Belgíu leitar nú 24 ára
karlmanns, Najim Laachraoui að
nafni, eftir niðurstöðu DNA-rann-
sókna á lífsýnum sem meðal annars
fundust í íbúðum sem notaðar höfðu
verið af íslamistum þar í landi.
Er Najim talinn vera vitorðsmaður
Salah Abdeslam sem handtekinn var í
umfangsmikilli lögregluaðgerð í Mo-
lenbeek, úthverfi Brussel, síðastlið-
inn föstudag, en Salah er einn þeirra
sem þátt tóku í hryðjuverkaárásun-
um í París í nóvember sl. Breska rík-
isútvarpið (BBC) greinir frá því að
Najim noti nú fölsuð skilríki á ferðum
sínum.
Fréttaveita AFP segir, og vitnar til
heimildarmanns sem þátt tekur í
rannsókninni á voðaverkunum í Par-
ís, að lífsýni úr Najim hafi einnig
fundist á sprengiefni sem notað var
við ódæðin.
Var á vígvöllum Sýrlands
Í febrúar árið 2013 hélt Najim til
vígasvæða í Sýrlandi, undir nafninu
Soufiane Kayal, og tók þar þátt í
ódæðisverkum í
nafni Ríkis íslams.
Hann ferðaðist á
fölskum skilríkj-
um aftur til Evr-
ópu snemma í
september á síð-
asta ári.
Með honum í
för var áðurnefnd-
ur Salah Abdes-
lam og Mohamed
Belkaid frá Alsír sem drepinn var í
síðustu viku af leyniskyttu lögreglu í
umfangsmiklum aðgerðum í Brussel.
Þá leitar lögregla einnig að þrítug-
um karlmanni vegna árásanna í París
og heitir sá Mohamed Abrini. Sam-
kvæmt fréttaveitu AFP er Mohamed
með ríkisfang í Belgíu en ættaður frá
Marokkó.
Hefur lögreglan í Frakklandi undir
höndum upptöku úr eftirlitsmyndavél
sem sýnir Mohamed og Salah á bens-
ínstöð skammt norður af París tveim-
ur dögum fyrir árásirnar. Til þessa
hafa yfirvöld í Belgíu ákært alls 11
manns vegna árásanna, þar af eru
þrír sem eru ákærðir fyrir að hafa að-
stoðað Salah á flóttanum.
Vitorðsmanns nú leitað
Najim Laachraoui leitað af lögreglu vegna hryðjuverkanna í París Ferðaðist
frá Sýrlandi til Evrópu á fölskum skilríkjum Lífsýni komu lögreglu á sporið
Najim
Laachraoui
Hillary Clinton, sem sækist eftir útnefningu Demó-
krataflokksins í komandi forsetakosningum í Banda-
ríkjunum, gagnrýndi repúblikanann Donald Trump
fyrir stefnuleysi, m.a. þegar kemur að öryggis- og
varnarsamstarfi við Ísrael. „Við þurfum stöðugar
hendur. Ekki forseta sem segist vera hlutlaus á mánu-
dag, hliðhollur Ísrael á þriðjudag og hver veit hvað á
miðvikudag - vegna þess að semja má um allt“.
Clinton komin með 1.147 kjörmenn af þeim 2.383 sem þarf til útnefningar
AFP
Stöðugar hendur - ekki stefnuleysi
Á öðrum degi
heimsóknar sinn-
ar til Kúbu hitti
Barack Obama
Bandaríkjaforseti
Raúl Castro,
hinn kúbverska
starfsbróður
sinn, á fundi og
ræddu leiðtog-
arnir samskipti
ríkjanna.
Obama hefur að undanförnu unn-
ið að því að bæta samskiptin eftir
um fimm áratuga einangrunar-
stefnu Bandaríkjanna gagnvart
Kúbu. Markar heimsókn hans mikil
tímamót þar sem um er að ræða
fyrstu heimsókn forseta Bandaríkj-
anna til landsins frá árinu 1928
þegar Calvin Coolidge fór þangað
ásamt fylgdarliði.
„Breytingar munu eiga sér stað
hér og ég tel Raúl Castro gera sér
grein fyrir því,“ sagði Obama for-
seti við fréttamenn ABC er hann
kom til Kúbu. khj@mbl.is
„Breytingar
munu eiga
sér stað hér“
Obama á Kúbu
Barack
Obama
kr. 25.900
Bankastræti 12 / 101 Reykjavík
Sími 551 4007 / www.skartgripirogur.is
kr. 7.900
kr. 12.900
kr. 19.900
kr. 27.900
kr. 19.900
kr. 14.500
frá kr. 19.500
frá kr. 56.900
kr. 22.000
kr. 19.900