Orð og tunga - 01.06.2001, Blaðsíða 80

Orð og tunga - 01.06.2001, Blaðsíða 80
70 Orð og tunga viðfangsmálið og er m.a. undirrót þess hve sagnlýsingu er þar víðast ábótavant (sbr. Jón Hilmar Jónsson 1995). Hér er þó rétt að geta þess að Islensk-rússnesk orðabók Bérkovs sker sig úr að þessu leyti með skýrri og nákvæmri efnisskipan, sem m.a. kemur fram í því að hrein orðtök eru skilin frá orðasamböndum sem falla undir smáorð í stafrófsröð og í staðinn skipað í sérstakan orðtakabálk. 2.2 Orðtengslamiðuð orðabókarlýsing Af framansögðu er ljóst að í almennri orðabókarlýsingu eru ýmis vandkvæði á því að gera orðasamböndum viðhlítandi skil og engin efnisskipan í boði sem veitir yfirsýn um notkun þeirra og fjölbreytni. Vandinn felst m.a. í því að ólíkar tegundir orðasambanda eiga mismikla samleið með flettiorðunum og tengjast þeim á mismunandi forsendum. Þetta verður enn skýrara þegar litið er til þeirra orðabóka þar sem sérstaklega er fengist við orðasambönd og lýsingu þeirra. Orðabækur um orðasambönd eru að vísu af marg- víslegu tagi og harla ólíkar innbyrðis en í aðalatriðum er um tvenns konar sjónarhom að ræða. Annars vegar geta orðasamböndin sjálf verið hið eiginlega viðfangsefni. Þetta gildir sérstaklega um orðabækur þar sem fjallað er um orðtök (og önnur föst orðasambönd). Lýsingin er þá einkum í því fólgin að skýra og skilgreina merkingu einstakra orðtaka og rekja merkingarsögu þeirra. Þótt orðasamböndin séu í brennidepli ber meginskipanin jafnan svip almennrar orðabókarlýsingar að því leyti að samböndunum er skipað undir stök stafrófsröðuð flettiorð (þar sem gildismat ræður því hvaða orð í sambandinu er valið sem flettiorð þess). Skýrasti fulltrúi þessarar tegundar meðal íslenskra orðabóka er Mergur málsins eftir Jón G. Friðjónsson. Hins vegar eru orðabækur þar sem lýsingin á við flettiorðin og þar sem rakið er hvernig einstök orð koma fram í setningarlegu umhverfi og orðasamböndum. í mörgum orðabókum af því tagi er lögð áhersla á fjölbreytileika orðasambanda með einstökum flettiorðum, þar sem hvert og eitt orðasamband er tilgreint sem sjálfstæð eining. í öðrum orðabókum er meginmarkmiðið að lýsa vægi orða, þ.e. því setningarlega umhverfi sem einkennir notkun orðsins.1 Auk hinna setningarlegu einkenna getur lýsingin einnig rúmað upplýsingar um þær merkingarlegu skorður sem tengslum orðsins við nálæg orð og setningarliði eru settar. Hér eru það ekki orðasamböndin, hvert um sig, sem athyglin beinist að, heldur fremur þeir þættir sem einkenna stöðu og hegðun orðsins í setningarlegu samhengi. Sú lýsing er gjarna sett fram á óhlutstæðan og táknbundinn hátt, án þess að vísað sé til beinna orðasambanda eða þau rakin í heillegri mynd. I orðabókinni Orðastað er reynt að sameina þessa tvenns konar áherslu, þ.e. tilgreina orðasamböndin sem sjálfstæðar einingar en gera jafnframt grein fyrir setningarlegum og merkingarlegum venslum þeirra við nálæga liði. Þar eru stök orðasambönd fyrir- ferðarmikil, með eða án breytiliða sem vitna um og skýra setningarumhverfið: <honum, henni> fellur/hefur fallið (<mikill>) heiður í skaut verða þess heiðurs aðnjótandi að-NH 1 Heitið vægi er hér haft um það sem á norrænum málum er nefnt valens, á ensku valency og á þýsku Valcnz, sbr. Nordisk leksikografisk ordbok (s. 263).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.