Jólakver - 01.12.1924, Blaðsíða 7
•••-..
" ...............*.•.... ••***•• ........—•••••••*%•.*••*'*:•
U; JÓLAKERTI ;í
• *•• : _ »,* %
: 'jj'P----,0_........................0,.........; :
• :...■..■•••••••••• .' * —•• ••••••%••.'..•...; •
ÓI var tökubarn á Hóli og ekki nema
tæpra 11 ára, þegar þetta gerðist. Auk hans
voru tvö börn á heimilinu á líku reki og
hann. Það var Einar litli, sonur hjónanna, og Þóra,
dóttir þeirra. Jói hafði átt heima á Hóli, síðan hann
var átta vikna. Hann hafði átt þar góða aðbúð, og
aldrei kom það fyrir, að gert væri upp á milli hans
og hinna barnanna. Þau reyndust honum líka í alla
staði eins og þau væri systkini hans.
Mikið höfðu börnin hlakkað til jólanna og ekki
síst Jói. Síðan jólafasta byrjaði, höfðu þau talið dag-
ana, sem eftir voru. Þeir voru furðumargir til að
byrja með. Smátt og smátt fækkaði þeim, en
því nær sem dró jólunum, urðu dagarnir lengri og
lengri, eftir því sem börnunum fanst. Þorláksmessa
var þó furðanlega fijót að líða. Þá var svo margt að
gera. Þá var skorin kind, soðið hangikjöt, gerðir skór,
bakaðar lummur og lokið við jólafötin. Allir fengu
einhverja flík fyrir jólin, til þess að fara ekki í jóla-
köttinn. Jói átti að fá nýja brjósthlíf með hvítum
kraga og perlum á brjóstinu og allskonar útflúri.
Einar litli átti að fá nýja milliskyrtu, en Þóra nýja
svuntu með vasa og hvítum silkiborða í kring. Það