Jólakver - 01.12.1924, Qupperneq 20
18
fagna huldufólkinu sem best og forðast reiði þess.
Hásbóndinn eða húsmóðirin gekk þrisvar sinnum
sólarsinnis kringum bæinn og bauð huldufólkinu
heim með þessum orðum: „Komi þeir, sem koma
vilja, veri þeir, sem vera vilja, og fari þeir, sem
fara vilja, mér og mínum að meinalausu11. Þegar
huldufólkið kemur og sér, að alt er þvegið og hreint,
og allur bærinn svo vel lýstur, að hvergi ber skugga
á, þá hýrnar yfir því, og þásegirþað: „Hérerbjart
og hér er hreint, og hér er gott að leika sjeru. En
ef það sér einhver óhreinindi, eða að einhversstaðar
er skuggsýnt, segir það: „Hér er ekki bjart, og hér
er ekki hreint, og hér er ekki gott að leika sér.u
Má þá jafnan búast við einhverju illu af því. Margs-
konar illar og óhreinar vættir eru á ferðinni á jóla-
nóttina aðrar en jólakötturinn, jólasveinarnir og huldu-
fólkið; eru þær allar mjög viðsjárverðar. Þó gjöra þær
ekki mein, ef alt er hreint og bjart, og þær verða
eigi varar við neinn gáska eða léttúð, og sérstak-
lega ef þeir, sem heima eru, sitja við að lesa í ein-
hverri góðri guðsorðabók. Engin ill vættur þolir að
heyra nafn Jesú nefnt, og ekkert nafn Guðs. Eg skal
segja eina stutta sögu, sem sýnir það.
Einu sinni voi’u nokkur börn heima á jólanóttina,
en allt fullorðna fólkið hafði farið til tíða. Þeim höfðu
verið gefnir fagurrauðir sokkar. Þau léku á gólfinu
með jólakertin sín í höndunum, og lá nú heldur en
ekki vel á þeim. Einkum fanst þeim inikið til um
rauðu sokkana sína, og þótti hverju fyrir sig sínir
sokkar vera fallegastir. „Sko minn fót, sko minn fót!
sko minn rauða fót!u sögðu þau. Þá er sagt á glugg-
anum með ógurlega þungri drynjandi rödd: