Náttúrufræðingurinn - 2013, Side 13
13
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Inngangur
Í ágúst 2007 uppgötvaðist nýtt
stöðuvatn efst á Okinu í Borgar-
firði þegar fyrsti höfundur
þessarar greinar gekk á fjallið
ásamt eiginkonu sinni. Ofan í gíg
dyngjunnar blasti við allmyndarlegt
vatn, nær 100 m breitt og 200 m langt
(1. mynd). Vatnið var augljóslega til
komið vegna snjó- og ísbráðnunar,
en ekki mótað að fullu þar eð
snjór og ís lágu umhverfis það að
töluverðu leyti. Á þeim árum sem
liðin eru frá fundinum hefur ísinn
hörfað enn frekar og vatnið tekið
á sig fyllri mynd (1. og 2. mynd).
Tilurð vatnsins má rekja til hlýnandi
loftslags og bráðnunar jökulsins á
Okinu í kjölfarið, en líkt og aðrir
jöklar landsins hefur Okjökull
látið undan síga vegna hækkandi
lofthita.1,2
Hilmar J. Malmquist, Finnur Ingimarsson, Haraldur Rafn
Ingvason, Stefán Már Stefánsson og Þóra Hrafnsdóttir
Í ágúst 2007 uppgötvaðist nýtt vatn í gígnum efst á Okinu í Borgarfirði.
Ekki er vitað til þess að fullmótað stöðuvatn hafi verið þarna um langan
aldur og er tilurð vatnsins rakin til hlýnandi loftslags með tilheyrandi
bráðnun Okjökuls. Í kjölfar fundarins hafa starfsmenn Náttúrufræðistofu
Kópavogs fylgst með vatninu og tekið þar sýni og sinnt mælingum, nú
síðast í ágúst 2010. Vatnið hefur hlotið heitið Blávatn með tilvísun í
bláleitan ís í vatnsskálinni, hreinleika vatnsins og hve ungt það er og
ómótað. Blávatn er í 1.114 m h.y.s. og liggur hæst stöðuvatna á landinu.
Það er um 0,12 km2, meðaldýpi er 2,7 m og mesta dýpi 4,5 m. Ís er enn til
staðar í gígnum og vatnið á eftir að dýpka og stækka ef fram heldur sem
horfir með hlýnandi loftslag. Eins og búast mátti við var Blávatn ískalt og
snautt af næringarefnum og lífverum. Kísilþörungar, bessadýr og þyrildýr
réðu ríkjum í hinu unga vistkerfi. Algengasti þörungurinn var agneski
(Achnanthes subatomoides) en sáldeski (Aulacoseira islandica f. curvata) vó
mest í lífþyngd. Í vatnsbolnum fundust þyrildýrin spaðaþyrla (Keratella
cochlearis) og mallakútur (Gastropus minor) sem líklega er ný tegund á
Íslandi. Engin dýr fundust á fjörugrjóti en í þunnu seti á ísbotninum
fundust bessadýrin Hypsibius convergens og tegund af ættkvíslinni
Isohypsibius. Flestar lífverurnar í Blávatni eiga það sameiginlegt að vera
mjög kuldakærar og lífseigar. Vöktun Blávatns veitir einstakt tækifæri
til að fylgjast með frá upphafi hvernig ungt og ósnortið vatnavistkerfi
þróast í tímans rás án beinna áhrifa af mannavöldum. Vegna vísindalegra
hagsmuna er mikilvægt að vernda Blávatn og friðlýsa það.
Blávatn
NÝJASTA STÖÐUVATN LANDSINS
Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 13–23, 2013
Ljósm./Photo: Oddur Sigurðsson.
Ritrýnd grein