Náttúrufræðingurinn - 2013, Blaðsíða 28
Náttúrufræðingurinn
28
mestum hluta jökuls ins liggur lægra
en innri hluti Morsár dals.
Þótt Morsárjökull sé einungis um
8 km frá tjaldstæðinu í Skaftafelli, í
beinni loftlínu, er hann lítt áberandi
úr byggð þar sem fjöll skyggja á
hann. Hann er sýnilegur á stuttum
kafla af þjóðvegi nr. 1 á Skeiðarár-
sandi en annars þarf að ganga á
vesturbrúnir Skaftafellsheiðar eða á
Kristínartinda til að sjá jökulinn. Þá
er einnig hægt að ganga um Morsár-
dal að jöklinum og upp á hann.
Ganga á jökulinn krefst búnaðar og
kunnáttu til jöklaferða.
Tímasetning berghlaupsins
Þótt berghlaupið við Morsárjökul sé
stór atburður er ekki vitað hvenær
hann varð. Enginn sjónarvottur var
að hlaupinu. Ekki hefur tekist að
tímasetja berghlaupið með gögnum
frá jarðskjálftamælum. Næsti jarð-
skjálftamælir við berghlaupsstaðinn
er á Fagurhólsmýri, í 28 km fjarlægð.
Mælar á Grímsfjalli og á Kálfafelli
eru í 39 og 44 km fjarlægð. Mikið
er um grunna skjálfta sem tengjast
hreyf ingum jökla á svæðinu. Vorið
2011, þegar um 250 þús. tonna berg-
fylla féll úr nokkurri hæð niður á
Virkisjökul (8. mynd), tókst í byrjun
að einangra þann atburð við tíma-
bilið 28. mars til 21. maí. Við skoðun
á jarðskjálftagögnum fyrir það tíma-
bil fannst hreyfing við yfirborð á
skriðustaðnum sem kom greinilega
fram á Fagurhólsmýri en dauflega
á öðrum mælum. Þetta var kl. 04:42
þann 13. maí og var talið fullvíst að
skriðan hefði fallið þá. Nokkrum
vik um síðar kom í leitirnar
ljósmynd sem tekin var 11. apríl
er sýnir um merki eftir berghrunið.
Ákvörð un um tímasetningu út frá
jarðskjálfta gögnum féll þar með úr
gildi. Fagur hólsmýri er einungis
6. mynd. Langsnið af Morsárjökli 1904 og 2011. Byggt á herforingjaráðskorti frá 1905, mælingum árið 2011 og óbirtum gögnum um
botninn undir jöklinum frá Helga Björnssyni og Eyjólfi Magnússyni. – Longitudinal section of Morsárjökull, 1904 and 2011. Based
on a topographical map from 1905, measurements in 2011 and unpublished data from Helgi Björnsson and Eyjólfur Magnússon about
the bedrock under the glacier.
7. mynd. Séð frá Kristínartindum yfir Morsárjökul árið 1942.
Svigður áberandi á jöklinum. – A view from Kristínartindar to
Morsárjökull in 1942. Ogive banding on the glacier surface. Ljósm./
Photo: Ingólfur Ísólfsson.
8. mynd. Berghrun við Virkisjökul vorið 2011. – Rockslide at
Virkisjökull in the spring of 2011. Ljósm./Photo: Jón Viðar
Sigurðsson.