Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 65

Náttúrufræðingurinn - 2013, Síða 65
65 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Kristján Lilliendahl, Erpur S. Hansen, Valur Bogason, Marinó Sigursteinsson, Margrét L. Magnúsdóttir, Páll M. Jónsson, Hálfdán H. Helgason, Gísli J. Óskarsson, Pálmi F. Óskarsson og Óskar J. Sigurðsson Inngangur Sumarið 2005 komu fram fréttir í fjölmiðlum um að varp sjófugla víða um land hefði misfarist. Einkan- lega virtist varp kríu Sterna paradisea á sunnanverðu landinu og lunda Fratercula arctica í Vestmanna- eyjum hafa brugðist. Fræðimenn sem stunda athuganir á varpi sjó- fugla staðfestu síðan lélegan varp- árangur sjófugla þetta sumar. Hand- bærar eru staðfestar upplýsingar um fækkun fýls Fulmarus glacialis, álku Alca torda, langvíu Uria aalge og stuttnefju U. lomvia bæði á landinu suðvestanverðu og norð- austanverðu.1,2 Þá kom fram að varp kríu um land allt og sílamáfs Larus fuscus suðvestanlands hefði gengið illa.3,4,5 Eina þekkta frávikið frá slökum varpárangri sjófugla sum- arið 2005 var að varp ritu Rissa tridactyla á suðvestanverðu landinu gekk vel, en varp hennar misfórst að mestu annars staðar.2,3 Ætla má að aðallega tvær ástæður geti orðið til þess að varp sjófugla misfarist, annað hvort óvenjulega erfitt tíðarfar eða lítið æti. Einnig getur verið um að ræða samspil þess ara tveggja þátta. Sumarið 2005 virðist ekki hafa verið óvenjulegt hvað umhverfiskilyrði varðar þann ig að horft hefur verið til þess að sjófugla hafi skort fæðu.1,2,3,4,6 Sumarfæða sex stærstu stofna sjó- fugla hér við land skiptist í tvö horn þar sem sandsíli Ammodytes marinus er uppistaðan í fæðunni sunnan- lands en loðna Mallotus villosus fyrir norðan.7,8,9 Svo virðist því sem báð ar þessar tegundir fiska hafi ver ið óaðgengilegar verpandi sjófuglum þetta sumar. Þetta hallæri hjá sjófuglum sumar ið 2005 varð til þess að vekja athygli á skorti upplýsinga um samspil fæðu og afkomu sjófugla hér við land. Ekki voru tiltækar niðurstöður um ástand stofns sand- sílis hér við land, enda höfðu engar reglubundnar rannsóknir verið gerð ar á tegundinni. Eldri rann- sókn ir á sandsílaætt við Ísland eru Sumarið 2005 virðist sem stofn sandsílis og varp sjófugla hafi beðið hnekki. Árið eftir hófust rannsóknir á sandsíli og árið 2007 rannsóknir á afkomu lunda við Vestmannaeyjar. Varp lunda hefur gengið illa frá árinu 2005. Holur með eggjum hafa verið mun færri en eðlilegt getur talist en þó með undantekningu vorið 2010 þegar varptilraunir voru fleiri. Varpárangur, mældur sem fjöldi pysja sem komist hefur á legg, hefur verið slakur frá upphafi rannsóknanna en árin 2007 og 2012 voru þó skást. Afar lítið hefur verið af ungfugli við eyjarnar, sem venjulega er uppistaðan í veiði á lunda. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að lundar við Vestmannaeyjar séu háðir aðgengi að sandsíli til að varp takist. Undanfarin ár hefur ýmist verið of lítið af sandsíli við Vestmannaeyjar eða það verið of langt frá varpinu. Stofn sandsílis þar er í mikilli lægð í samanburði við nokkur önnur svæði við Ísland. Nánast engin aukning hefur verið sjáanleg í sandsílastofninum við eyjarnar og nýliðun verið lítil, nema hvað 2007 árgangurinn var stór. Sá árgangur var áberandi við Vík í Mýrdal næstu árin en þangað sækja stundum lundar úr Vestmannaeyjum. Óljóst er hvað valdið hefur hruni sandsílastofns við eyjarnar en orsakir geta verið aukin samkeppni um fæðu, aukið afrán og breytingar í umhverfinu. Við Vestmannaeyjar virðist skorta aðrar fæðutegundir fyrir lunda sem gætu komið í stað sandsílis. Því verður að gera ráð fyrir að varp lunda í Vestmannaeyjum gangi illa á meðan stofn sandsílis er lítill. Engin teikn eru á lofti um að þetta ástand lagist í bráð. Viðkomubrestur lunda og sandsílis við Vestmannaeyjar Náttúrufræðingurinn 83 (1–2), bls. 65–79, 2013 Ritrýnd grein
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.