Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 81

Náttúrufræðingurinn - 2013, Page 81
81 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags sterkja) og flóknum lífmassa er sýnd á 2. mynd. Ger sveppurinn er einnig þeim takmörk unum háður að villigerð hans getur ekki brotið niður þær fjölmörgu gerðir pentósa sykra sem eru til stað ar í flóknum lífmassa. Augu manna hafa því beinst að því að nota bakteríur í stað gersveppa og þá sérstaklega hitakærar bakteríur. Slíkar bakteríur geta brotið niður mun fleiri tegundir af sykrum en gersveppurinn, eins og t.d. pentósa á borð við arabinósa og xýlósa.5,6,7 Ætla mætti að nýtingin við gerjunina myndi aukast fyrir vikið en sá galli er við slíka framleiðslu að nýt ing in er ekki jafnóð og hjá ger svepp um. Við gerjun ger- sveppsins á glúkósa í etanól er nýtingin mjög góð samkvæmt eftirfarandi efna jöfnu: 1 C6H12O6 + 2 H2O → 2 C2H5OH + 2 HCO3- + 2H+ Samkvæmt þessu fást tvö mól af etanóli úr hverju móli af hexósa. Þetta er þó ekki alveg rétt því svepp urinn notar hluta hvarfefnisins til viðhalds og vaxtar og einnig myndast örlítið af öðrum loka afurð um eins og t.d. glýseróli.8 Hámarks nýting í gersveppagerjun er því talin um 1,9 mól etanól/mól hexósa. Bakteríur er takmarkandi að því leyti að þær fram leiða aðrar gerjunarafurðir (edik sýru, smjör- sýru, mjólkursýru) auk etanóls og koltvísýrings sem leiðir til minni nýtni.5,6,7,9 Sem dæmi þá er bakt- erí an Thermoanero bacterium AK17 með eftirfarandi efnajöfnu14: 1 C6H12O6 + 3 H2O → 1,5 C2H5OH + 0,5 CH3COO- + 1 H2 + 2 HCO3 - + 2H+ Hins vegar geta hitakærar bakt- erí ur nýtt sér fleiri sykrur en ger- sveppir og eru því álitlegur kostur þegar flókinn lífmassi er not að ur sem hráefni. Nýting baktería í etanólframleiðslu úr hexósum er oft á bilinu 0,8 til 1,5 mól-etanól/mól hexósu og 0,6 til 1,3 mól-etanól/mól pentósu.5,6,7,9,10 Hitakærar bakteríur hafa oft mjög breitt hvarfefnasvið og hafa þess vegna verið rannsakaðar m.t.t. etanólframleiðslu úr flóknum líf- massa á síðari árum. Auk þessa eigin leika þá eru hitakærar bakteríur mjög þolnar gegn margvíslegu umhverfisáreiti eins og lágu eða háu sýrustigi og styrk brennisteins- efnasambanda.7 Hins vegar er ljóst að engin ein örvera er til í dag sem hefur alla þá kosti sem þarf til að framleiða etanól úr flóknum líf- massa. Hitakærar bakteríur hafa t.d. minna þol gegn etanóli en ger- sveppir og þola mun minni upp- hafs styrk af sykrum við gerjun- ina.11,12,13 Hugsanlega mætti þó rækta hitakærar bakteríur í sírækt við það hátt hitastig að hægt væri að nota s.k. sjálfeimingu (e. self- distillation). Ljóst er á síðustu 30 árum að margar áhugaverðar hitakærar bakteríur geta framleitt etanól með góðum heimtum. Oftast er um að ræða tegundir sem tilheyra ætt- kvísl um Thermoanaerobacter, Thermo- anaerobacterium og Clostridium. Í þessari yfirferð er farið í þá lífefna- fræðilegu ferla sem hitakærar bakt- erí ur nota við etanólframleiðslu, helstu ættkvíslir sem og heimtur etanóls, bæði úr sykrum og flóknum lífmassa. Sérstök grein er gerð fyrir bakteríum sem hafa verið einangr- að ar og rannsakaðar úr hverum á Íslandi. Framleiðsla á etanóli með gerjun Algengast er að bakteríur framleiði etanól með gerjun sykra þó svo að sumar geti notað önnur hvarfefni eins og t.d. amínósýrur. Mynd 3 sýn ir hefðbundið gerjunarferli hjá bakteríum þegar glúkósi er hvarf- efni. Glúkósi er brotinn niður í pýru v at með glýkólýsu (EMP) sem er umbreytt í acetyl-CoA og áfram í acetaldehyde og etanól með ensím- unum acetaldehyde dehydrogenase og alcohol dehydrogenase.7 Ger- svepp ir nota einnig glýkólýsu en brjóta pýruvat beint í acetaldehyde með pyruvate decarboxylase í stað þess að fara í acetyl-CoA sem milliefni. Það að fara í acetyl-CoA gefur bakteríum möguleika á að framleiða ediksýru og fá þannig auka orku í formi ATP í stað þess að framleiða etanól.7 Bakteríur geta einn ig framleitt aðrar afoxaðar af urð ir eins og smjörsýru og mjólkur sýru úr pýruvati og hafa því mun fjölbreyttari gerjunarferla en gersveppir.5,6,7,9 Mjög mismun- andi er hvaða afurðir eru fram- leidd ar hverju sinni og er háð bæði 1. mynd. Sýnir á skematískan hátt einfaldar byggingareiningar lignósellulósa (lignín, sellulósa og hemisellulósa) og aðskilnað þeirra með formeðhöndlun. – Simplified structure of components of lignocellulose (lignin, cellulose and hemicellulose) and its separation with pretreatment.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.