Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 84

Náttúrufræðingurinn - 2013, Qupperneq 84
Náttúrufræðingurinn 84 árinu 1983 þegar Thermoanaerobacter ethanolicus og Clostridium thermo- cell um voru ræktaðar á hýdrólýsati úr birkivið.29 Hæstu gildin fengust með stökkbrigði af T. ethanolicus, eða 4,5 mM g-1 xýlósa sykruein- ing ar (xylose equivalent). Hreinn sellulósi hefur verið not- að ur í nokkrum rannsóknum. Þrír stofnar af Clostridium thermocellum framleiddu 1,40 til 2,60 mM EtOH g avicel-1 30 en mun hærri gildi (5,0 mM g-1 og 5,5 mM g-1) fengust síðar á þessu hráefni.31,32 Hæstu etanól gildin sem hafa fengist á filter papp ír eru 8,2 mM g-1 hvarfefni hjá C. thermocellum.33,34 Síðari tíma rannsóknir á raun veru- legum flóknum lífmassa hafa sýnt góða etanólframleiðslu í nokkr um tilfellum. Hálmur úr hveiti var t.d. notaður hjá Thermo anaerobacterium saccharolyticum en formeðhöndlun beindist að því að nota hemisellu- lósa hluta hálmsins.35 Hámarks- gildi etanóls sem fékkst var 6,3 mM g xylan-1. Thermo anerobacter math- ranii var einangraður úr Grensdal við Hveragerði árið 1993 og etanól- framleiðslugeta hans á hveiti- hálmi var rannsökuð.6,36,37 Frekar lág nýting fékkst en megin ástæðan var óvenjuhár styrkur hýdrólýsata eða um 60 g L-1. Hæstu gildi etanóls úr flóknum lífmassa eru frá rannsóknum á Thermo anaero bacter BG1L1, sem á einnig uppruna frá Íslandi.11,38 Lífmassinn sem var notaður voru stilkar korns og hveiti- hálmur og formeðhöndlun fólst í sýrumeðhöndlun eða s.k. blaut- oxun (e. wet oxidation). Bakterían fram leiddi 9,2 mM g-1 úr hýdró - lýsat inu. Rannsóknir á Thermoanaero- bacterium AK17, einangruðum úr Víti við Kröflu sýndi einnig mjög góða etanólframleiðslu.39 Marg vís- legur lífmassi var notaður (filter pappír, dagblaðapappír, gras, hampur, hálm ur). Einfaldar lokaðar (batch) ræktir á hýdrólýsötum (7,5 g L-1) sem voru formeðhöndlaðar með annað hvort vægri sýru eða basa leiddu í ljós etanól framleiðslu upp á 2,0 (dagblaðapappír), 2,91 (gras) og 5,81 (filterpappír) mM/g líf- massa. Rannsóknir hafa síðar leitt í ljós að hægt var að auka enn frekar framleiðsluna, með því að stjórna margvíslegum umhverfisþáttum, í 4,0 (gras) og 8,6 mM g-1 (filter- pappír)13. Eitt meginvandamál við að nota flókinn lífmassa er að við formeðhöndlun á slíku hráefni er oftast notaður hár hiti sem leiðir til myndunar á hindrandi efnum úr hráefninu. Vel þekkt er að við hitun- ina myndist efni eins og furfural og hydoxymethylfurfural sem geta hindrað vöxt örvera nái þau yfir ákveðin styrk.40 Þessu þarf að huga vel að við formeðhöndlun lífmass- ans og í sumum tilfellum eru þessi efni fjarlægð eftir formeðhöndlun áður en gerjun á sér stað og þá oft með kostnaðarsömum aðferðum. Umræður Hitakærar bakteríur hafa marga eigin leika sem eru mjög áhuga- verðir hvað varðar framleiðslu á etanóli, sérstaklega úr flóknum líf- massa sem er samsettur úr mörgum gerð um af sykrum og sykruaf- leiðum. Enn þann dag í dag eru þó gersveppir langmest notaðir til framleiðslu á lífetanóli og þá úr hráefni sem er mun einsleitara en flókinn lífmassi eins og t.d. sterkju- (korn) og sykurríkar (sykurreyr) plöntur. Flókinn lífmassi er hins vegar mun augljósari kostur hvað varðar etanólframleiðslu í fram tíð- inni, sérstaklega vegna samkeppni einfaldari hráefnis við fóður og matvælaframleiðslu.2 Vandamálið við nýtingu á slíku hráefni til etanól framleiðslu hefur hingað til verið sá aukni kostnaður sem felst í að nota bæði efni og ensím til formeð höndl unar sem og vöntun á öflugum örverum sem geta brotið niður allar þær sykrur sem eru í slíkum líf massa. Fæstar hitakærar bakteríur eru með nýtingu yfir 1,5 mól etanól/mól hexósu og oft fást slíkar heimtur eingöngu við mjög lágan styrk hvarfefnis. Annar galli er að hitakærar bakteríur þola illa aukinn styrk etanóls. Vöxtur náttúrulegra stofna hindrast oft ef styrkur sykru fer yfir 1% (v/v). Báða þessa galla hafa vísindamenn reynt að lagfæra, annars vegar með því að stökkbreyta bakteríum til að auka etanólþol og nota erfða- verkfræðilegar aðferðir til að klippa út framleiðslu á öðrum lokaafurðum og þar með auka etanólframleiðsluna. Þannig tókst að fá stofn af Thermoanerobacter ethanol icus sem þolir 8% etanól11 og stofn af Thermoanaerobacterium sacch aro lyticum sem framleiddi ein göngu etanól og koltvísýring sem lokaafurð.41 Við Háskólann á Akureyri, á verkfræðistofunni Mann vit og hjá Matis hafa undan- farin ár verið stundaðar rann- sóknir á bakteríum einangruðum úr íslensk um hverum með það að markmiði að fá fram öfluga etanól- framleiðandi stofna. Skimun á vetnis framleiðandi stofnum leiddi til einangrunar nokkurra áhuga- verðra stofna sem einnig voru öflug ir etanólframleiðendur.14 Einn þessarar stofna var Thermoanaero- bacterium AK17 sem mest hefur verið rannsakaður og hefur fram- leiðslu getu hans verið lýst í nokkr um vísindagreinum undan- far in ár.10,13,39 Meginniðurstöðurnar eru þær að stofninn er mjög öflugur etanólframleiðandi eða með 1,5 mól EtOH/mól glúkósa og 1,1 mól EtOH/mól xýlósa bæði í lokuðum ræktum13,39 og í sírækt10. Einnig er hann með talsvert breitt hvarfefnabil og þolir allt að 3,2% etanólstyrk. Framleiðslugeta hans á flóknum lífmassa hefur einnig verið rann sök uð. Í ljós kemur að framleiðslu geta stofnsins á sellulósa er 8,6 mM/g og á grasi 5,5 mM/g.13 Etanólframleiðslan á grasi sam svarar um 350 l lítrum fyrir hvert tonn af grasi. Hins vegar er stofninn hindraður af tiltölulega litlum upp hafs styrk af glúkósa sem gæti verið hindrun við uppskölun. Slíka hindr un mætti þó koma í veg fyrir með því að láta gerjunina fara fram í skammtaræktum eða í sírækt. Að lokum þá hefur verið unnið undan farið með þennan stofn með það að markmiði að klippa á hvarfefnarásir sem leiða til myndunar á ediksýru og mjólkur- sýru.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.