Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 14
14 Bókasafnið 40. árg – 2016
Athugasemd við töflu: Meðaltöl eru breiðletruð þar sem
martækur munur kom fram við p <0,05.
Ekki var marktækur munur á milli hópa ef skoðuð er
ánægja nemenda eftir því hvort þeir eru eingöngu í stað-
námi, eingöngu í fjarnámi og stað- og fjarnámi í bland.
Einnig var skoðað hvort munur væri á ánægju eftir því
hvort nemendur höfðu fengið kynningu á safninu eða ekki,
en svo reyndist ekki vera.
Umræða
Ef við horfum aftur til rannsóknarspurningarinnar: „Eru
nemendur Menntavísindasviðs ánægðir með þjónustu
safnsins?“ má í raun gefa stutt svar: „Já, nemendur eru
ánægðir með þjónustu safnsins.“ Niðurstöðurnar sýna að al-
mennt eru nemendur ánægðir með þjónustu bókasafnsins
þar sem meðalskor allra þjónustuþátta var 3,93 af 5 mögu-
legum. Ef við skoðum undirspurninguna sem lögð var fram:
„Hvaða þætti þjónustunnar eru nemendur helst ánægðir/
óánægðir með?“ má segja að notendur séu nokkuð ánægðir
með öll þjónustusvið safnsins en minnst er ánægjan með
aðstöðu sem var með meðaltalið 3,67 af 5 mögulegum en
mest er ánægjan með upplýsingaþjónustu og viðmót starfs-
fólks með meðaltalið 4,19 af 5 mögulegum.
Eins og fram hefur komið var svarhlutfall í könnuninni um
17% sem í fljótu bragði virðist mjög lítið. Hér þarf þó að
hafa í huga að ekki var tekið úrtak, heldur var könnunin
lögð fyrir allt þýðið og því má segja að fjöldi þátttakenda
(375) sé nokkuð stórt hlutfall af heildarþýði nemenda
(2150) sem stunda nám á sviðinu.
Þegar kemur að kynningu á safninu er áhyggjuefni að 27%
þátttakenda höfðu ekki fengið neina kynningu. En líkt og
rannsókn Condic (2004) við Oakland háskóla gefur til
kynna þá getur leiðsögn á bókasafninu meðal annars haft
áhrif á ánægju notenda með safnkost og ýtt undir fjölbreytt-
ari notkun upplýsingamiðla. Því er mikilvægt að nemendur
hafi greiðan aðgang að kynningum á safninu. Þetta háa
hlutfall nemenda sem ekki hafa fengið kynningu má þó
kannski skýra með háu hlutfalli fjarnema og nema sem eru í
stað- og fjarnámi í bland í þessum hópi. Gott væri þó að
kanna hvort þessi hópur kæri sig ekki um kynningu á safn-
inu, hvort að hann hafi ekki haft nægjanlegan aðgang að
kynningu, eða viti ekki af þeim þegar þær fara fram. Af
þeim sem höfðu fengið kynningu var algengast að hún hafi
farið fram í nýnemakynningu og því er nærvera safnsins þar
og þær upplýsingar sem þar er komið á framfæri mjög mik-
ilvægar bæði fyrir nemendur og safnið.
Alls höfðu 82% þátttakenda með einhverju móti kynnt sér
safnið á eigin vegum, en algengasta leiðin til þess var að
kynna sér safnið á staðnum og skoða heimasíðu safnsins.
Lítið var um að nemendur kynntu sér safnið í gegnum
bæklinga og Facebook. Þetta er ekki alveg í samræmi við
rannsókn Sackers, Secomb og Hulett (2008) við La Trobe
háskóla þar sem vinsælasta leiðin til að kynnast bókasafninu
var í gegnum internetið og þar á eftir í samskiptum við
starfsfólk og með leiðsögn um safnið.
Þegar kemur að kennslu á hin ýmsu hjálpartæki sem
gagnast geta námsmönnum, svo sem EndNote og Leitir.is/
Gegnir.is og fleira eru um tveir þriðju hlutar nemenda sem
hafa fengið einhverja kennslu og almennt þótti sú kennsla
gagnleg. Fæstir höfðu hlotið kennslu í EndNote en flestir í
Leitir.is/Gegnir.is. Vegna þess að kennslan telst vera gagn-
leg mætti vel hvetja nemendur enn frekar til að sækja þessi
námskeið þar sem þau geta auðveldað þeim námið og gert
þá að betri námsmönnum. Rannsókn Citti, Politi, Sabattini
og Semenzato (2012) gefur til kynna mikilvægi námskeiða
á vegum bókasafnsins þar sem nemendur áttuðu sig betur á
gagnsemi safnsins og fóru að líta meira á það sem upplýs-
ingaveitu. Því er mikilvægt að bókasafn Menntavísindasviðs
hugi að því að ná sem flestum nemendum inn á námskeið á
safninu. Hér er líka sérstaklega mikilvægt að tryggja að fjar-
nemar fái sambærilega þjónustu og þeir sem eru í staðnámi
því færni hópanna í upplýsingalæsi ætti að vera svipuð, líkt
og kveðið er á um í viðmiðum fyrir upplýsingalæsi innan
háskólageirans (Information Literacy Competency Standards
for Higher Education, 2000).
Grunnnám Framhaldsnám
Fjöldi M SF Fjöldi M SF
Þjónustusvið
Afgreiðslutími 135 3,64 0,79 121 3,76 0,94
Netviðmót 113 3,85 0,75 78 3,88 0,79
Safnkostur 148 3,94 0,72 128 4,05 0,83
Aðstaða 137 3,47 0,81 101 3,83 0,75
Upplýsingaþjónusta og viðmót starfsfólks 107 4,06 0,83 91 4,29 0,95
Aðgangur að safnkosti 68 3,68 0,68 61 3,85 0,73
Meðalskor allra þjónustuþátta 163 3,81 0,60 142 4,02 0,69
Ánægja almennt (sp 12) 173 4,34 0,67 150 4,46 0,65
Tafla 4. Ánægja nemenda með þjónustusvið safnsins eftir námsstigi.