Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 34

Bókasafnið - 01.06.2016, Síða 34
34 Bókasafnið 40. árg – 2016 samfélagsmiðla og fl eiri áhugaverðar nýjungar í starfi nu. Færslunum fylgja oft mikið af myndum sem varpa ljósi á lausnirnar sem hún vinnur með í starfi sínu og þær gæða bloggið lífi og lit. Stíllinn er léttur og lýsir mikilli starfsgleði en Jones er mjög virkur og hugmyndaríkur bloggari sem setur reglulega inn fræðandi og ítarlegar færslur um starf sitt og safn skólans. Joe Hardenbrook er upplýsingafræðingur sem starfar á háskólabókasafni í Wisconsin í Bandaríkjunum og sinnir þar meðal annars safnkennslu og upplýsingaþjónustu. Hann heldur úti blogginu www.mrlibrarydude.wor- dpress.com þar sem hann veitir áhugaverða innsýn bæði í daglegt starf á háskólabókasafni og ýmsar hugmyndir sem hann reifar um starfi ð og stéttina almennt. Meðal þess sem Hardenbrook er hugleikið eru atvinnumöguleikar nýútskrifaðra upplýsingafræðinga. Hann skrifar einnig um kröfurnar sem gerðar eru til upplýsingafræðinga í starfi , auk þess að velta fyrir sér ýmsum lausnum á atvikum sem upp koma í daglegu starfi hans. Færslurnar eru ekki mjög reglulegar um þessar mundir þar sem Hardenbrook er í framhaldsnámi en áhugavert að lesa aftur í tímann. Upplýsingafræðingar á fangelsisbókasöfnum Á blogginu https://librarianbehindbars.wordpress.com/ er starfi upplýsingafræðings á fangelsisbókasafni lýst og margt sem kemur á óvart. Sagt er frá starfsumhverfi sem er mjög ólíkt því sem fl estir upplýsingafræðingar á Íslandi (og efl aust víðar) þekkja og fj allað um atvik og vandamál sem koma upp í þessu sérhæfða starfi . Markmiðið með blogginu er að veita innsýn í þennan lokaða heim og varpa ljósi Blogg geta verið skemmtileg og lifandi leið til að kynna sér líf og störf fólks víðsvegar um heiminn. Þrátt fyrir að áhug- inn á því að halda úti bloggsíðum hafi dalað töluvert á undanförnum árum, kannski vegna tilkomu samfélags- miðla, er enn hægt að fi nna fj ölda áhugaverðra síðna til að fylgjast með. Hér verður litið á nokkrar slíkar þar sem upplýsingafræðingar blogga um starf sitt, fagið og lífi ð almennt. Daglegt starf hjá Library of Congress / Library of Congress Blog Hér er á ferðinni mjög fj ölbreytt og fræðandi blogg sem haldið er úti af þremur starfsmönnum Library of Congress og leggur áherslu á umfj öllun um starfsemi þess. Sagt er frá ýmsum hliðum starfsins, bæði daglegu lífi og sérstökum viðburðum. Af og til eru aðrir starfsmenn fengnir til að skrifa færslur sem veita innsýn í fl eiri hliðar starfseminnar en hún er gríðarlega umfangsmikil. Meðal annars hefur verið fj allað um bókmenntir, gagnasöfn safnsins um sögulega atburði, viðburði á safninu, nýjustu viðbæturnar við safnkost og margt fl eira. Færslunum er skipað í fl okka eftir umfj öllunarefni þannig að auðvelt er að lesa meira um það efni sem vekur áhuga. Bloggið nær aftur til fyrri hluta árs 2007 og höfundarnir hafa verið nokkuð virkir þannig að af nógu er að taka og hægt að fræðast mikið um safnið og ýmis mál sem tengjast því. Vefslóðin er http://blogs.loc.gov/loc/. Á vefslóðinni http://blogs.loc.gov/ er svo að fi nna fl eiri blogg á vegum starfsmanna Library of Con- gress þar sem er hægt að lesa sér til um starfsemi sérhæfðari deilda svo sem um stafræna varðveislu, lög og lagasöfn, landafræði og landakort, ljós- myndir og margt fl eira. Upplýsingafræðingar á skólabókasöfnum Th e Daring Librarian http://www.thedaringlibrari- an.com/ er blogg á vegum upplýsingafræðingsins Gwyneth A. Jones sem stýrir skólabókasafni í grunnskóla í Maryland í Bandaríkjunum. Bloggið hennar er litríkt og skemmtilegt og hún fer meðal annars yfi r það hvernig má nýta ýmsa nýja tækni, Bloggdómar – Nokkur áhugaverð blogg um bókasöfn og upplýsingafræði María Bjarkadóttir er MA í almennri bókmenntafræði og þýðingafræði og MLIS í bókasafns- og upplýsingafræði. Hún starfar sem upplýsingafræðingur á upplýsingamiðstöð Tækniskólans.

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.