Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 44
44 Bókasafnið 40. árg – 2016
Við sáum orðsendingu um Cycling for libraries á póstlista norskra bókavarða í nóvember 2014. Fram kom að verið væri að skipuleggja fi mmtu
ferðina undir þessum hatti og væri þemað „New Nordic“.
Hjólaleiðin lægi í suður frá Osló, yfi r Oslóarfj örðinn og
eftir vesturströnd Svíþjóðar til Gautaborgar, þaðan yfi r til
Danmerkur og yrði endað í Árósum í tæka tíð fyrir Next
Library ráðstefnuna. Á dagskrá væru heimsóknir í háskóla-
bókasöfn, almenningsbókasöfn og sérsöfn af ýmsu tagi og
umræður um málefni bókasafna, með aðaláherslu á almenn-
ingsbókasöfn.
Okkur þótti þetta áhugavert og ákváðum við að setja okkur
í samband við Jukka Pennanen sem vísað var á í tölvu-
póstinum og grennslast betur fyrir um þessar ferðir sem
hvorug okkar hafði heyrt um áður. Þórhildur setti fyrirspurn
inn á Facebook-síðu Jukka og fékk svar um hæl þar sem
hann fagnaði áhuga okkar og lét þess getið að við yrðum þá
fyrstu íslensku þátttakendurnir í þessum ferðum. Hann fór
nokkrum orðum um fyrirkomulagið og sagði að um væri að
ræða hjólaferð sem allir ættu að geta tekið þátt í og benti á
heimasíðu og Facebook-hóp.
,,Hjólaráðstefnusamtökin“, undirbúningur
og tilhögun
Hugmyndafræðin og sagan er rakin á heimasíðu samtak-
anna og þar kemur fram að fyrsta formlega hjólaráðstefna
Cyc4Lib var farin árið 2011. Hugmyndin um að hjóla um
meginland Evrópu og ræða óformlega mikilvæg málefni
bókasafna vaknaði þó fyrst fyrir 10 árum. Á EBLIDA ráð-
stefnu í Helsinki 2010 og á IFLA ráðstefnunni í Gautaborg
sama ár komst hreyfi ng á hugmyndirnar og farin var
tilraunaferð, 70 km frá Borås til Gautaborgar.
Fyrri ferðir hafa verið 2011 frá Kaupmannahöfn til Berlínar,
2012 um baltnesku löndin, 2013 frá Amsterdam til Brussel,
2014 frá Montpellier til Lyon. Ferðirnar eru skipulagðar
í tengslum við stórar ráðstefnur þannig að þátttakendur
koma hjólandi á ráðstefnustað.
Cyc4Lib sem standa að þessum hjólaráðstefnum
(e. unconference1) eru óháð, alþjóðleg samtök en í tengslum
við IFLA og EBLIDA. Tilgangurinn er að styrkja starfs-
menn bókasafna bæði líkamlega og andlega, byggja upp
grasrótarnet og efl a alþjóðahyggju og síðast en ekki síst
benda á lykilhlutverk bókasafna fyrir samfélagið og fyrir
menntun og þroska einstaklingsins. Cyc4Lib gerir mörg
gildi úr bókasafnsfræðunum að sínum svo sem um opinn
og lýðræðislegan aðgang að upplýsingum og um fullorðins-
fræðslu og símenntun. Cyc4Lib þiggur styrk frá IFLA en
kostnaði er haldi mjög niðri til að auðvelda sem fl estum að
taka þátt í ferðunum. Ferðirnar eru opnar öllu starfsfólki
og vinum bókasafna. Samtökin leggja mikla áherslu á um-
hverfi svænan samgöngumáta og umhverfi smál almennt.
Í undirbúningsnefnd fyrir þessa ferð í september 2015
voru: Jukka Pennanen, upphafsmaður og aðalskipuleggjandi
frá Finnlandi, Jamie Johnston fyrir Noreg, Ann-Christin
Karlén Gramming fyrir Svíþjóð og Bo Jacobsen og Rasmus
Fangel Vestergaard fyrir Danmörku. Tungumál ferðarinnar
var enska, það er allar upplýsingar, vefurinn, málstofurnar
og heimsóknirnar voru á ensku.
Þann 1. maí var hægt að skrá sig í ferðina og miðað við
100 þátttakendur. Höfundar þessarar frásagnar skráðu sig
undir eins enda eins gott því plássin 100 fylltust fl jótt og
til varð biðlisti. Svo fór samt að nokkrir heltust úr lestinni
og hópurinn sem lagði af stað var á bilinu 80 til 90 manns.
Cycling for libraries
– Osló – Gautaborg – Árósar, 1.–10. september 2015
Erla Kristín Jónasdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur. Hún starfar sem safnstjóri aðalsafns
Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Þórhildur S. Sigurðardóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur, MSc (Econ). Hún er verkefnastjóri aðfanga
bókasafni Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.