Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016
Hagræðingin núllast út
Í upphafi árs var fjárhagsáætlunskóla- og frístundasviðs Reykja-víkurborgar skert um 670 millj-
ónir króna og yfirmönnum á sviðinu
gert að hagræða sem nemur þeirri
upphæð. Áður hafði komið inn flatur
niðurskurður að fjárhæð 125 millj-
ónir króna en hann var hluti af að-
gerðum frá árinu á undan og því ekki
rétt að telja hann með í heildar-
upphæð hagræðingarkröfunnar fyr-
ir árið 2016.
Lagt var upp með að þessar 670
milljónir króna yrðu að meirihluta
teknar af miðlægri stjórnsýslu frek-
ar en að starfsstöðvarnar sjálfar,
þ.e. grunnskólar, leikskólar og frí-
stundaheimili, þyrftu að skera niður
hjá sér.
Utan við þessar 670 milljónir
króna sem hagræða átti um á sviðinu
var farið af stað með svokölluð um-
bótaverkefni í skólastarfi að andvirði
200 milljónir króna, sem ekki er hag-
ræðing heldur tilfærsla á fjár-
munum innan sviðsins.
Segja má að með nýrri aðgerð-
aráætlun í skólamálum borgarinnar
sem lögð var fram í borgarráði á
fimmtudag hafi áðurnefndri 670
milljóna króna hagræðingu verið
snúið við og gott betur.
Borgin leggur fram 83%
aukningarinnar
Samþykkt var að veita alls 919 millj-
ónum króna til skóla- og frí-
stundasviðs, en þar af koma 152
milljónir króna frá foreldrum barna í
leik- og grunnskólum borgarinnar í
formi hækkunar á
fæðisgjaldi.
Sú fjárhæð sem
eftir stendur, 767
milljónir króna, er
aukafjárveiting úr
borgarsjóði um-
fram það sem áætl-
að hafði verið á
sviðið í upphafi árs. En hvaðan koma
þessir peningar?
„Þetta aukna fé til málaflokksins
kemur til vegna þess að tekjur borg-
arinnar hafa reynst hærri en reiknað
var með, það sést á sex mánaða upp-
gjöri borgarsjóðs. Útsvarstekjur
hafa hækkað en einnig bætast við
ýmsar tekjur af sölu eigna, sölu
byggingarréttar og fleiru. Hagræð-
ingaraðgerðir borgarinnar í heild
eru að skila árangri miðað við það
sem við sjáum á þessu uppgjöri.
Við erum að ná tökum á þessum
hallarekstri sem var staðreynd í
fyrra. Ef það hefði ekki verið þá
hefðum við ekki haft neina stöðu til
að fara út með neinar fjárveitingar
til skólamála á þessum tímapunkti,“
segir Skúli Helgason, formaður
skóla- og frístundaráðs borgarinnar.
Minnihlutinn tók þátt í að
semja hagræðingartillögur
Minnihlutinn hefur sagt að hagræð-
ingaráform ykkar hafi verið óraun-
hæf til að byrja með, ertu ósammála
því?
„Ég held að menn verði að hafa í
huga samhengi hlutanna í þessu eins
og öðru. Þessar hagræðing-
araðgerðir sem við samþykktum
koma langflestar út úr vinnu sem
unnin var af þverpólitískum hópi.
Minnihlutinn átti sína fulltrúa í þeim
hópi og tók þátt í að búa þessar til-
lögur til. Í grunninn eru þetta skyn-
samlegar breytingar sem munu skila
okkur því að við nýtum fjármunina
betur. Þetta eru hlutir eins og hag-
kvæmari innkaup, sparnaður í orku,
sameiningarhugmyndir og fleira.
Þetta þýðir að við höfum meira svig-
rúm fyrir innra starfið sem er okkar
markmið.“
Heildarrekstrarkostnaður skóla-
og frístundasviðs eru 44,5 milljarðar
króna. Aukið fé borgar og foreldra
að andvirði 919 milljónir króna nem-
ur því rétt um tveimur prósentum af
heildinni.
Breytir þetta einhverju þegar upp
er staðið?
„Þetta breytir heilmiklu eins og
við heyrum á viðbrögðum stjórn-
enda á skóla- og frístundasviði.
Þetta er meira fé en væntingar stóðu
til að gætu fengist inn í þennan
málaflokk og við höfum strax fengið
mjög jákvæð viðbrögð.
Við lögðum okkur fram um að
hlusta á sjónarmið frá þeim sem
starfa í leikskólum og grunnskólum
um hvar væri brýnast að grípa inn
í.“
Skúli segir að margar af þeim
hugmyndum í þeirri aðgerðaáætlun
sem kynnt var í vikunni hafi verið
lengi í umræðunni, en nú hafi ein-
faldlega skapast fjárhagslegt svig-
rúm til að hrinda þeim í framkvæmd.
„Þetta þýðir í raun að við erum að
vega upp alla hagræðingu ársins og
gott betur. Við erum ekkert að
breyta hlutum sem við höfum þegar
samþykkt, það bara heldur sér. En
þær aðgerðir sem koma til fram-
kvæmda nú nýtast okkur fram á
næsta ár. Margt í skólaflokknum er
ekki hægt að setja í gang fyrr en á
hausti því það er ekki hægt að
breyta plönum á miðju skólaári,“
bendir Skúli á.
Mest sett í sérkennslu
Þær aðgerðir sem ráðist er í nú snúa
einkum að grunnskólum og leik-
skólum en að sögn Skúla stendur til
að frístundaheimilin komist betur á
dagskrá á næsta ári, þá verði sett
aukin áhersla á þeirra starf.
Stærstur hluti þess fjár sem nú er
bætt við hjá skóla- og frístundasviði
fer í sérkennslu, en þar hafði jafn-
framt einna mest verið skorið niður.
Alls er 110 milljónum bætt við fram-
lög vegna sérkennslu í leikskólum og
138 milljónum króna vegna sér-
kennslu í grunnskólum. Þá er einnig
bætt við fé til að bæta leik- og
grunnskólum upp kostnað vegna
langtímaveikinda starfsfólks, alls
bætast við 150 milljónir hjá leik-
skólum og 123 milljónir króna vegna
grunnskóla.
Þá felur aðgerðaráætlunin í sér að
unnin verða ný úthlutunarlíkön fyrir
leikskóla, grunnskóla og frí-
stundamiðstöðvar þar sem m.a. á að
byggja á ábendingum stjórnenda um
úrbætur á þeim.
Blessuð börnin þurfa sem
betur fer ekki að velta sér
mikið upp úr hagræðingu
og rekstrarfé heldur fá að
leika sér áhyggjulaus.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur var gert að spara 670 milljónir króna á árinu og var fjárhagsáætlun skert um þá upphæð.
Í vikunni ákvað borgarstjórn að veita 919 milljónir til leik- og grunnskóla en af þeirri upphæð koma 767 milljónir króna
frá borginni. Foreldrar greiða 152 milljónirnar sem eftir standa í formi hækkunar á fæðisgjöldum.
Viðsnúningur í skólamálum
Aðgerðir
haust 2016
Hagræðingar-
krafa 2016
M. kr.
Skóla- og frístundasvið
900
800
700
600
500
400
300
200
100
0
767
milljónir
152
milljónir
670
milljónir
Framlag foreldra með hækkun fæðisgjalds
Skúli Helgason
Skóla- og frístundasviði var gert að hagræða um 1,5% á
árinu. Nú hefur verið bætt við fjármagni sem nemur um
2% af heildarrekstrarfé sviðsins.
INNLENT
EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is