Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 31
18.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Sem betur fer er náttúran þeim
eiginleikum gædd að geta hreins-
að sjálfa sig, það er að segja fyrir
utan ruslið og draslið sem við
mannfólkið skiljum eftir okkur. En
plöntur geta nefnilega margar
hverjar hreinsað loftið af ýmsum
eiturefnum. Það er því snjallt að
vera með nokkrar vel valdar
plöntur inni á heimilinu og hlúa að
þeim. Ein planta, Drekatréð eða
Dracaena, er ein af þeim plöntum
sem auðvelt er að eiga við í
heimahúsum og reyndar alls stað-
ar. Drekatréð eyðir efnum á borð
við formaldehýð sem finnst í tepp-
um, lími, málningu og fleiru, ben-
zene sem finnst í plasti, gúmmíi
og skordýraeitri og tricloroethy-
lene sem finnst í ýmsum hreinsi-
efnum.
Drekatréð hreinsar ekki bara
loftið hjá okkur heldur er það ein-
staklega falleg planta, hún hentar
vel í hvaða birtu sem er og gott er
að halda moldinni rakri.
MÁTTUR NÁTTÚRUNNAR
Dracaena eða Drekatréð er fallegt og nytsamlegt inni á heimilinu.
Getty Images/iStockphoto
Hreinsum loftið heima
Kvíði og stress er eitthvað sem við
flest finnum fyrir einhvern tímann
á lífsleiðinni og þykir jafnvel eðli-
legur hluti af tilfinningaflórunni.
En hvenær hættir kvíði að vera
eðlilegur og fer að hafa neikvæð
áhrif á sálartetrið? Ef kvíði er eitt-
hvað sem er stöðugt til staðar þá
hlýtur eitthvað að vera að og að
leita til læknis er alls ekki eitthvað
til að skammast sín fyrir.
Samkvæmt tölum Lands-
samtaka um geðsjúkdóma í
Bandaríkjunum þjást um 18% full-
orðinna einstaklinga þar í landi af
kvíðaröskun. Hægt er að miða við
fimm einkenni og skoða hvort þau
eigi við til að athuga hvort kvíði sé
orðinn meiri en góðu hófi gegnir.
Stöðugar áhyggjur
Það er nokkuð gefið að stöðugar
áhyggjur hafa ekki góð áhrif á
neinn. Á meðan heilbrigður ein-
staklingur hefur áhyggjur í um
klukkutíma að meðaltali á dag, þá
hefur einstaklingur með kvíða-
röskun áhyggjur í um tíu klukku-
tíma á dag.
Erfiðleikar með svefn,
svefntruflanir
Fyrir einstakling með kvíðaröskun
getur svefnvandamál verið dag-
legt brauð. Svefnleysið bankar
yfirleitt upp á daginn fyrir eitt-
hvað mikilvægt, fyrirlestur í
vinnunni, ferðalög eða því um líkt.
Tíð kvíðaköst
Það segir sig sjálft að ef ein-
staklingur upplifir kvíðaköst iðu-
lega er ráð að leita sér hjálpar.
Það er mikilvægt að fá hjálp frá
lækni enda eru kvíðaköst afar
óþægileg og geta lýst sér í skjálfta,
erfiðleika með öndun og líf-
hræðslu við ótrúlegustu aðstæður.
Óræð hræðsla
Fóbíur falla undir kvíðaröskun og
getur einstaklingur fengið fóbíu
fyrir félagsskap. Ákveðnir staðir
geta kveikt á kvíðahnappi og
hræðsla brýst út sem er ekki í takt
við eðlileg viðbrögð.
Hræðsla við sleggjudóma
og höfnun
Margir verða stressaðir í stórum
hópi, fjölmennu teiti eða sam-
komum og eru varir um sig. Fá
smá sviðsskrekk og finnst allir
vera að dæma. En fyrir einstakling
með kvíðaröskun er hægt að
margfalda þá tilfinningu að
minnsta kosti tífalt. Tilfinningin
getur setið í viðkomandi í margar
vikur og jafnvel orðið til þess að
viðkomandi neiti að koma sér í
slíkar aðstæður aftur.
KVÍÐI OG STRESS
Hvenær
verður kvíði
að vanda-
máli?
Það getur verið erfitt að lifa með kvíða.
Morgunblaðið/ÞÖK