Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.09.2016, Blaðsíða 44
Leikkonan Michelle Pfeiffer hafnaði nokkrum stórum hlutverkum á tíunda áratugnum. Hún hafnaði til að mynda hlutverki Vivianne í Pretty Woman þar sem henni þótti hlutverkið of djarft. Julia Roberts var ráðin í hennar stað og hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir hlutverkið. Einnig ofbauð Pfeiffer hlutverk Catherine Tramell í Basic Instinct. Hún greindi frá því í viðtali við Contact- music að sér hefði þótt of mikil nekt í myndinni. PRETTY WOMAN OG BASIC INSTINCT Michelle Pfeiffer Of mikil nekt 44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.9. 2016 LESBÓK KVIKMYNDIR Fyrir tæpu ári, eða í október 2015, birtist stikla á YouTube. Stiklan var stútfull af nostalgíu og vakti upp minningar margra. Stiklan rauf heimsmet í að ná flestum áhorfum á sem stystum tíma, 112 milljón áhorfum á 24 klukkustundum. Við erum að tala um Star Wars. En nú hefur ný stikla rofið þennan múr. Einhverjir verða fyrir vonbrigðum, aðrir ekki en um ræðir fram- haldsmynd 50 Shades of Grey, 50 Shades Darker. 114 milljónir manna horfðu á stikluna á 24 klukkustundum. Myndin er væntanleg á valentínusardegi á næsta ári og spurningin er sú, mun erótíska framhaldssagan toppa Star Wars á hvíta tjaldinu líka? Fimmtíu dekkri skuggar Grey slær met Star Wars eða Fimmtíu dekkri skugg- ar, hvort höfðar meira til þín? TÓNLIST Lítið hefur farið fyrir djasssöngfuglinum Norah Jones frá því að plata hennar Come Away With Me kom út árið 2002. Platan sló algjörlega í gegn og sópaði að sér verðlaunum, þar á meðal átta Grammy-verðlaunum og seldist í 11 milljónum ein- taka. Á milli 2004 og 2009 komu þrjár fínar plötur sem voru meira út í kántrítónlist og náðu ekki eins miklum hæðum og djass- platan fyrsta. Jones hefur ekki mikið verið í sviðsljós- inu síðan en kemur nú sterk inn á ný með nýja plötu sem er væntanleg 7. október næstkomandi og ber nafnið Day Breaks. Jones með hrúgu af Grammy- verðlaunum 2003. Reuters Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 19. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 23. sept Húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru sem prýða má heimilin með. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Misstu af stórum bitum Stundum taka leikarar og leikkonur afdrifaríkar ákvarðanir við val á hlutverkum. Mörg þeirra hafa farið flatt á því að hafna hlutverkum sem reyndust stærri bitar en þau töldu í upphafi. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Anne Hathaway hafnaði aðal- hlutverki í kvik- myndinni Silver Linings Playbook. Ástæða þess var ósætti milli henn- ar og leikstjóra myndarinnar, David O’Russel. Jennifer Law- rence var ráðin í staðinn og hreppti Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í myndinni. SILVER LININGS PLAYBOOK Ósátt við leikstjórann Anne Hathaway THE MATRIX Leikarinn Will Smith hafnaði að- alhlutverki í kvik- myndinni The Matrix og tók leikarinn Keanu Reeves hlutverkið að sér. Í viðtali við tímaritið Wired árið 2004 sagðist Smith þó sáttur við ákvörðun sína. „Ég segi þetta sjaldan, en ég hefði klúðrað þessu,“ sagði Smith meðal annars í viðtalinu. Hefði klúðrað hlutverkinu Will Smith Í viðtali við Enter- tainment Weekly ár- ið 2014 greindi leik- arinn Michael Keaton frá því að hann hafði hafnað aðalhlutverki í kvikmyndinni Groundhog Day vegna þess að hann „skildi hana ekki“. Keaton sagðist jafnframt sjá eftir því að hafa hafnað hlutverkinu en bætti síðan við að eng- inn gæti leikið hlutverkið betur en Bill Murray sem var ráðinn í hans stað. GROUNDHOG DAY Enginn betri en Murray Michael Keaton Stórleikarinn Bill Murray hafnaði hlut- verki Forrest Gump í sam- nefndri bíó- mynd. Í útvarps- viðtali í þætti Howard Stern sagðist Murray jafnframt aldrei hafa séð myndina. Tom Hanks var ráðinn í hlutverkið og vann Óskarsverðlaunin fyrir leik sinn. FORREST GUMP Sá aldrei myndina Bill Murray Ný plata frá söngfuglinum Norah Jones

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.